Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 84

Fréttablaðið - 15.01.2011, Side 84
56 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR56 menning@frettabladid.is Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sig- urjónsson gengur í endurnýj- un lífdaga í Norðurpólnum í dag. Marta Nordal leikstjóri segir það áskorun að setja upp klassískt verk í hráu rými. „Þetta er langþráður draumur að ræt- ast,“ segir Marta Nordal leikstjóri um Fjalla Eyvind, sem frumsýnt verður í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi í dag í sviðsetningu leikhópsins Aldrei óste- landi. „Við Edda Björg Eyjólfsdótt- ir stofnuðum þennan hóp sérstaklega í kringum þetta verk. Við sátum einhvern tímann yfir kaffibolla og vorum að tala um hvað það væri spennandi að setja upp Fjalla Eyvind. Eftir dálitla umhugs- un ákváðum við að taka slaginn og leit- uðum til fólks sem við vildum vinna með.“ Leikritið Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson er eitt af perlum íslenskra bókmennta og var frumsýnt fyrir réttri öld. Það byggir á samnefndri þjóðsögu og segir frá ekkjunni Höllu og vinnu- manninum Kára sem fella hugi saman. Kári á sér leyndarmál sem reynist þeim afdrifaríkt. Þegar Halla kemst að sann- leikanum verður hún að gera upp við sig hvort hún eigi að flýja til fjalla ásamt ástmanni sínum eða lifa áfram í öryggi án ástar. „Það sem heillar mig við þetta verk er þessi sterka ástarsaga,“ segir Marta. „Jóhann skrifar gífurlega fallegan texta og hefur mikið næmi fyrir sambandi karls og konu. Ég er líka mjög áhugasöm um að setja upp sígild íslensk leikverk. Þau fara ekki oft á fjalirnar en það er mjög spennandi að glíma við menningar- arfinn.“ Rýmið í Norðurpólnum er lítið og hrátt og segir Marta það hafa verið krefjandi að setja verkið upp þar. „Það er mikil ögrun fyrir leikarana að flytja svona melódramatískan og ljóðrænan texta í jafnmikilli nálægð við áhorfend- ur.“ Með hlutverk Höllu og Kára fara Edda Björg Eyjólfsdóttir og Guðmundur Ingi Þorvaldsson en með önnur hlutverk fara Valdimar Örn Flygenring og Bjartur Guðmundsson. Nánari upplýsingar um sýningartíma má finna á nordurpollinn. com. bergsteinn@frettabladid.is Spennandi glíma við menningararfinn Helga Laufey Finnbogadóttir píanóleikari, Gunn- ar Hrafnsson kontrabassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari leiða saman hesta sína í Norræna húsinu á sunnudag á djasstónleikum undir yfirskriftinni Leikið af fingrum fram. Þetta er í fjórða sinn sem þau leika saman á tónleikum, en síð- astliðið sumar tóku þau þátt í sumardagskrá Múlans ásamt hollenska saxófónleikaranum Efraim Truj- illo. Á efnisskránni verða aðallega útsetningar Helgu Laufeyjar á djasslögum og íslenskum söng- og þjóð- lögum í bland við frumsamið efni. Helga stundaði framhaldsnám við Sweelinck-tón- listarháskólann í Amsterdam, fyrst í klassískum píanóleik en færði sig síðan yfir í djassdeild skólans og lauk píanódeildinni þar, fyrst kvenna, árið 1994. Gunnar og Einar eru í hópi þekktustu djassleikara landsins og hafa starfað með fjölda tónlistarmanna innanlands og utan. Djass í norræna húsinu GUNNAR, HELGA LAUFEY OG EINAR VALUR Leika útsetningar Helgu Laufeyjar á djasslögum og íslenskum söng- og þjóðlög- um í bland við frumsamið efni. FÍFA (Húsgagnahöllinni) – Sími 552 2522 – www.fifa.isOpið: Mán. - Fös: 10-18 Lau.: 10-17 - Sun.: 13-17 Allt fyrir börnin 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FATNAÐI ÚTSALAN ER HAFIN FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. KRISTJÁN TEKINN TIL KOSTANNA Bergsveinn Þórsson fjallar um innsetningu Kristjáns Guðmundssonar, Environ- mental Sculpture frá árinu 1969, á Listasafni Íslands klukkan 14 á morgun. Bergsveinn skoðar verkið út frá lokaritgerð sinni í listasögu þar sem hann fjallaði um sögu þess og samhengi, í umfjöllun um upprunaleika, söfnun og varðveislu samtímalistar. Verkið var umdeilt á sínum tíma og var fyrst sýnt í Gallerí Súm 1969. MARTA NORDAL Er áhugamanneskja um íslenskar leikbókmenntir og vill gjarnan fá fleiri klassísk verk sett á svið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.