Fréttablaðið - 15.01.2011, Qupperneq 102
74 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
Eva Rut Hjaltadóttir
Aldur: Verður 24 ára í
lok mánaðarins.
Starf: Vinnur á lager
hjá Heilsu og þjálfar
súludans í Xform.
Fjölskylda: Aron Guð-
mundsson, kærasti, og
Emilíana Aronsdóttir,
stjúpdóttir.
Foreldrar: Edda Linda Gunn-
laugsdóttir, stuðningsfulltrúi í
Álftanesskóla, og Hjalti Þórarinsson,
sölumaður hjá Mítra.
Búseta: Álftanes.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Eva Rut Hjaltadóttir keppir á Norður-
landamótinu í súlufimi í Stokkhólmi í
næstu viku.
„Aðsóknin hefur verið mjög góð
og það hafa í kringum 25 þús-
und séð myndina. Við reiknum
fastlega með því að hún fari yfir
þrjátíu þúsund gesta markið um
helgina, það hefur verið það góður
gangur á henni,“ segir Sigurður
Victor Chelbat hjá Sambíóunum.
Ekki hefur verið hefð fyrir
því að Íslendingar þyrpist í bíó
til að sjá evrópskar kvikmynd-
ir, þar sem aðalleikararnir tala
ekki ensku. Og þaðan af síður
ef myndirnar hafa verið á ein-
hverju af Norðurlandamálunum.
Á þessu varð hins vegar breyting
þegar Karlar sem hata konur var
frumsýnd í júlí 2009. Myndin var
gerð eftir samnefndri bók Stiegs
Larsson og þegar yfir lauk höfðu
52 þúsund Íslendingar séð hana.
Hinar myndirnar tvær, Stúlkan
sem lék sér að eldinum og Loft-
kastalinn sem hrundi, komust
ekki nálægt þessari aðsókn. Tæp-
lega 32 þúsund sáu Stúlkuna og
„aðeins“ 26 þúsund borguðu sig
inn á Loftkastalann.
Snæbjörn Steingrímsson hjá
Smáís, sem heldur utan um
aðsóknartölur kvikmyndahús-
anna, leyfir sér að efast um að
aðsókn á myndir frá þessum
löndum hafi einhvern tímann
verið svona góð. „Karlar sem
hata konur var náttúrulega ein-
stök því þá kom í bíó fólk sem er
ekki vant því að fara í bíó. En ég
á alveg eins von á því að Klovn
slái henni við, hún hefur verið að
spyrjast það vel út og fólk virðist
ekki hika við að sjá hana tvisvar,“
segir Snæbjörn.
Formlegar mælingar hófust
ekki fyrr en 2005 og því er nokkuð
erfitt að fullyrða að þessar fjór-
ar myndir séu best sóttu skand-
inavísku kvikmyndirnar frá upp-
hafi. „En menn skulu hafa það í
huga að hér áður fyrr þótti það
bara nokkuð gott ef kvikmynd frá
Skandinavíu fékk yfir tíu þúsund
gesti,“ segir Snæbjörn.
Klovn-myndin er nú þegar orð-
inn aðsóknarmesta kvikmynd
Dana síðustu tíu ár og hefur sleg-
ið við Flammen og Citronen sem
sló í gegn 2008. Alls hafa nú rúm-
lega 680 þúsund Danir greitt sig
inn á Klovn: The Movie sem þýðir
að bónus Klovn-tvíeykisins hækk-
ar eflaust eitthvað frekar. Kvik-
myndasérfræðingar í Danmörku
eru sannfærðir um að aðsókn-
in eigi enn eftir að aukast og að
Klovn gæti jafnvel átt eftir að slá
fleiri met.
SNÆBJÖRN STEINGRÍMSSON: MYNDIR FRÁ NORÐURLÖNDUM Æ VINSÆLLI
Klovn spáð viðlíka vin-
sældum og Stieg Larsson
ÓTRÚLEGA VINSÆLIR Alls hafa 25 þúsund Íslendingar séð Klovn-myndina í bíó og er
búist við því að hún fari yfir þrjátíu þúsund gesti um helgina. Aðsókn á kvikmyndir
frá Skandinavíu hefur aukist síðust ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Netrisinn Google hefur stofnað
fyrirtæki á Íslandi. Google er
með íslenska kennitölu og lög-
heimili að Stórhöfða 21. Stofn-
endur fyrirtækisins samkvæmt
Lögbirtingablaðinu eru Graham
Law, fjármálastjóri hjá Google,
og Ronan Aubyn Harris, fram-
kvæmdastjóri hjá Google. Báðir
eru þeir skráðir til heimilis á
Írlandi en höfuðstöðvar Google
í Evrópu eru einmitt í höfuðborg
Írlands, Dublin.
Ráðgjafarfyrirtækið Hyrna
sem er til heimilis að Stórhöfða
21 aðstoðaði við að stofna fyrir-
tækið hér á landi. Bernhard Peter-
sen, framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins, staðfesti þetta í samtali
við Fréttablaðið en sagðist hins
vegar ekki vita til hvers Google
væri að stofna fyrirtækið hér á
landi og vildi ekkert tjá sig frek-
ar um málefni þess. Á hinn bóg-
inn sagði hann að þegar erlend
fyrirtæki stofnuðu fyrirtæki hér
á landi mætti gera ráð fyrir „að
þau væru að skoða möguleikann
á því að vera með tekjuskapandi
verkefni hér á landi“.
Fréttablaðið hafði samband við
Laurie Mannix hjá fjölmiðladeild
Google á Írlandi. Hún hafði fátt
um þetta fyrirtæki að segja en
bætti því við að Google Europe
hefði ekki í hyggju að opna skrif-
stofu á Íslandi í bráð.
- fgg
Google stofnar fyrirtæki á Íslandi
RISI Google er eitt af stærstu fyrirtækj-
um í heimi. Fyrirtækið hefur nú fengið
íslenska kennitölu og heimilisfang að
Stórhöfða 21. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Franski leikstjórinn Romain Gavras verður
gestur og dómari á Northern Wave-kvikmynda-
hátíðinni sem haldin verður í Grundarfirði
fyrstu helgina í mars. Gavras hefur unnið með
ýmsum þekktum tónlistarmönnum og leikstýrði
meðal annars hinu umdeilda myndbandi söng-
konunnar M.I.A. við lagið Born Free. Auk þess
hefur hann unnið með bresku hljómsveitinni
The Last Shadow Puppets og hinni vinsælu dans-
sveit Justice.
Gavras þykir mjög efnilegur kvikmynda-
gerðarmaður og hefur frægðarsól hans risið
hratt undanfarin ár. Hann er einnig sonur
gríska leikstjórans Costa-Gavras, sem er þekkt-
astur fyrir kvikmyndina Z, og hefur því ekki
langt að sækja hæfileikana.
Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri
Northern Wave, segist mjög ánægð með þátt-
töku Gavras enda sé hún mikill aðdáandi
verka hans. „Mér datt í hug að athuga hvort
hann hefði áhuga á að koma og taka að sér
að dæma þau tónlistarmyndbönd sem taka
þátt í ár. Hann tók mjög vel í boðið og situr
því bæði í dómnefnd og verður með fyrir-
lestur á hátíðinni,“ segir Dögg og bætir
við: „Þetta er í annað sinn sem franskur
leikstjóri er í dómnefnd hjá okkur. Sá
fyrri endaði á því að taka upp heila
kvikmynd hér á landi eftir dvölina
hér og sú var meðal annars sýnd
á kvikmyndahátíð í Feneyjum.
Það verður spennandi að sjá hvort
heimsókn Romains verði honum
líka innblástur.“ - sm
Frægur leikstjóri á leið til Grundarfjarðar
Helgi Jean Claessen, sem gaf fyrir jól út bók um hinn
umdeilda Jón stóra, er kominn undir verndarvæng Björns
Inga Hrafnssonar og félaga á Pressunni. Helgi verður
ritstjóri nýrrar karlasíðu á þeirra vegum sem mun
eiga að verða einhvers konar systurvefur Bleikt.
is. Hermt er að slóðin á karlavefinn verði Boltinn.
is. Sú síða hefur hingað til verið helguð fótbolta
og þurfa aðdáendur hennar því ekki að leita langt
yfir skammt, vilji þeir fá nýjasta karlaslúðrið beint
í æð. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
GÓÐ SAMAN Hér má sjá leikstjórann Romain
Gavras ásamt söngkonunni M.I.A. Hann verður í
dómnefnd á Northern Wave-kvikmyndahátíðinni.
Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar,
en ánægð með þátttöku hans. NORDICPHOTOS/GETTY
50 stólar til sölu.
Verð 3.900 kr. stk.
Hentar t.d. vel fyrir samkomusali.
Upplýsingar í síma 665 0555
Lau 15.1. Kl. 19:00
Sun 16.1. Kl. 19:00
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Lau 29.1. Kl. 19:00
Fös 4.2. Kl. 19:00
Lau 5.2. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 20:00
Sun 16.1. Kl. 20:00
Fim 20.1. Kl. 20:00
Lau 22.1. Kl. 20:00
Sun 23.1. Kl. 17:00 Allra síð.sýn.
Sun 23.1. Kl. 20:00 Síð. sýn.
Sun 16.1. Kl. 13:00
Sun 16.1. Kl. 15:00
Sun 23.1. Kl. 13:00
Sun 23.1. Kl. 15:00
U
Fíasól (Kúlan)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
Sun 13.2. Kl. 13:30
Sun 13.2. Kl. 15:00
Sun 20.2. Kl. 13:00
Sun 20.2. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Fim 20.1. Kl. 20:00
Sun 30.1. Kl. 20:00
Lér konungur (Stóra sviðið)
Ö
Ö
Fim 3.2. Kl. 18:00
Sun 6.2. Kl. 14:00
Sun 6.2. Kl. 17:00
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
U
Ö
Ö
Hænuungarnir (Kassinn)
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn
Fim 27.1. Kl. 20:00
Fös 28.1. Kl. 20:00
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Þri 18.1. Kl. 20:00
Mið 19.1. Kl. 20:00
Þri 25.1. Kl. 20:00
Mið 26.1. Kl. 20:00
Hvað EF – skemmtifræðsla (Kassinn)
Ö
Ö Ö
U
Ö
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö Ö
U
U
U
U
U