19. júní


19. júní - 19.06.1956, Síða 29

19. júní - 19.06.1956, Síða 29
innbyrSis ófriði, og það voru hinir ekki seinir að nota sér, byggðu sér virki og lögðu undir sig strandlengjuna og héldu henni að miklu leyti þang- að til Hollendingar ráku þá burt 1658. Portúgalar lögðu mikið kapp á að kristna þjóðina, og á þeirra gamla yfirráðasvæði eru margir ennþá rómversk- kaþólskir. Hollendingar settu lög i landinu, seni mörg eru enn í gildi, byggðu dómhallir og kirkjur, lögðu vegi og gerðu skurði til að auðvelda verzlunina. 1796 skarst i odda með þeim og Englendingum og lögðu Englendingar undir sig allar eignir þeirra. f öll þessi ár, undir erlendum yfirráðum, var þó einn landshluti, sem aldrei glataði frelsi sínu, það var konungsdæmið Kandy. Þeim tókst að hrinda öllum árásum, þangað til árið 1815, að Englend- ingar náðu þeim undir sin yfirráð með samningi. Stjórn Englendinga á Ceylon var að mörgu leyti góð. Þeir byggðu skóla og kirkjur, lögðu vegi og járnbrautir, ruddu frumskóginn og létu planta te, kaffi og gúmmitrjám. Eftirspurn eftir cocoshnet- um óx og lífskjör fólksins bötnuðu, þótt þau séu ennþá léleg á okkar mælikvarða. Ceylonbúar eru gáfaðir og fljótir að taka við nýjungum, og nú eru flestir læknar, lögfræðingar og verkfræðingar inn- fæddir menn. Á árunum milli heimsstyrjaldanna urðu miklar frámfarir á eyjunni. Ceylon varð fyrst af öllum Asíuþjóðum til að veita konum og körlum almenn- an kosningarétt, og 1948 var hún viðurkennd sem frjálst samveldisland í brezka heimsveldinu. Þing þeirra er sniðið eftir brezka parlamentinu. FUNDURINN. Fundurinn byrjaði með garðveizlu hjá formanni Asiudeildar Y. N.A.W., frú Ezlynn Deranyagala, Var ævintýri líkast að koma þangað, því að garð- urinn var allur upplýstur, trén voru með marglit- um ljósum og glitti á blómin rauð og gul á milli ljósanna. Hringinn í kring og meðfram öllum gangstígum voru ljós með stuttu millibili, þannig að kókósolía er látin í örlitlar leirskálar og kveikur settur í. Skiptu ljós þessi hundruðum. Formaður- inn var áður búinn að segja mér, að stundum hefði hún lítinn dreng til að kveikja aftur, ef slokknaði á einhverri skálinni. En svo var kyrrt þetta kvöld, að hann var atvinnulaus. Formaðurinn og móttökunefndin tóku á móti gestunum í anddyri hússins, sem var fagurlega blómum skreytt. Þar afhenti ég gjöfina frá K.R.F.f., sem var fánastöng með landvættunum, og vakti hún mikinn fögnuð, því að það var eina gjöfin, sem félaginu var gefin. Seinna skrifaði ég eftir beiðni upp fyrir hana hvað myndirnar á stönginni táknuðu. f garðinum var komið fyrir smáborðum og þar svifu berfættir, hvitklæddir þjónar í sarong um, og báru gestunum kaffi, te, kalda drykki og allskonar sælgæti. Var það mjög skemmtilegt, að heilsa upp á gamla kunningja frá fyrri fundmn í þessu ævin- týralega umhverfi. Þegar við fórum stóðu lögreglu- þjónar fyrir utan húsið til að stjórna umferðinni, en bílarnir, sem við höfðum komið í, biðu allan tímann. Hátíðleg opnun fundarins fór svo fram daginn eftir í kaþólskum skóla, sem lánaður var til funda- haldanna. Salurinn var fagurlega skreyttm: með fánum félagsins, pálmablöðum, kókóshnetum og ljósum. Formaður E. G. og heiðursformenn tóku á móti landstjóranum og borgarstjóranum í Colombo, og þegar þau gengu inn í salinn dönsuðu litlir drengir Kandy-dansa á undan þeim við trumbu- slátt. Og á meðan á athöfninni stóð, stóðu tveir trumbuslagarar, fagurlega búnir, sinn hvorum megin við sviðið og börðu bumbur sínar þegar við átti. — Landstjórinn hélt ræðu og talaði um það mikla starf, sem Ceylonskar konur jrnnu fyrir land sitt, og vænti hann þess, að þessi fundur yrði þeim hvatning í starfi þeirra. — Borgarstjórinn bauð fulltrúa velkomna til Colombo. Kvaðst hann hafa verið hlynntur kvenréttindum allt frá stúdentsár- um sínum. Lagði hann mikla áherzlu á það, hversu nauðsynlegt það væri, að konur legðu fram krafta sína þjóðfélaginu til heilla. f svarræðu sinni gat formaður þess, að markmið félagsskapar okkar væri það sama og birtist i mann- réttindaskrá S. Þ. Hvort sem við kæmum frá austri eða vestri, suðri eða norðri væru vandamálin í grundvallaratriðum þau sömu, þótt við værum mis- jafnlega langt á veg komnar með að leysa þau. Fé- lagið hefði áhuga á að fjöldanum væri gefin kostur á að leggja fram sinn skerf til velfarnaðar í þjóð- félaginu. Yið trúum á réttmæti kröfunnar um jafn- rétti kynjanna, ekki einungis frá sjónarmiði mann- réttinda, heldur engu siður að ]tjóðfélögin, á þess- um umrótatímum, vinni við að njóta samvinnu kvenna og karla. En til þess að sú samvinna geti tekizt vel, þurfa konur að njóta aðstoðar karl- manna alveg eins og karlmenn þurfa aðstoðar kvenna. 19. JÚNl 17

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.