19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 45

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 45
SVAFA ÞORLEIFSDÓTTIR: Ingunn Jónsdóttir frá Kornsá Aldarminning. (Flutt i ríkisútvarpinu 31. júlí 1955). Það ber alloft við, að minnzt er karlmanna, sem á einn eða annan hátt hafa þótt bera af öðrum. Hitt er fátíðara, að kvenna sé minnzt með sama hætti, enda eru þau tiltölulega fá, kvennanöfnin, sem skráð eru á söguspjöld íslenzku þjóðarinnar, þótt vitað sé, að konur engu síður en karlar hafa tekið þátt í því, sem gerzt hefur á liðnum öldum og einnig hitt, að þær hafa borið sinn hluta erfið- leikanna, þegar að hefur sorfið. En konurnar hafa yfirleitt aðeins unnið „kyrrlátu, góðu störfin“, eins og Þórhallur biskup Bjarnason komst eitt sinn að orði. Þeirra verkahringur hefur verið innan veggja heimilisins, og þaðan fara fáar sögur, sem í letur eru færðar. Þarna hafa konurnar stritað og stritt, hlúð að og annazt um uppvaxandi kynslóð- ina og þar með i raun réttri lagt grundvöllinn að framtíð þjóðarinnar. Fáum þeirra hefur enzt þrek til frekari starfa. Flestar verið þrotnar að kröftum að þessum störfum loknum, hafi þeim þá enzt lengra líf. En svo undursamlegri lífsorku var hún gædd konan, sem hér verður minnzt, að eftir að hún hafði staðið í vafstri umfangsmikils sveitabú- skapar og erfiði af uppeldi eigi allfárra barna, vannst henni þrek til að inna af höndum ritstörf, sem lengi mun á lofti haldið, ef að líkum lætur. Þessi kona er Ingunn Jónsdóttir frá Kornsá. Ingunn Jónsdóttir er fædd að Melum í Hrúta- firði 30. dag júlimánaðar 1855. Foreldrar hennar voru þau Jón bóndi Jónsson að Melum og Sigur- laug Jónsdóttir kona hans. Höfðu forfeður Jóns bónda í beinan karllegg þá búið að Melum að minnsta kosti í 200 ár, en bæði voru þau hjónin komin af merkum bændaættum i Húnaþingi. Á heimili foreldra sinna ólst svo Ingunn upp og naut þeirrar fræðslu og menntunar, er góð sveitaheim- ili þeirra tíma veittu börnum sinum. Nokkur bóka- kostur var á heimilinu og las Ingunn allt, er hún náði til. Jón bróðir hennar, síðar prófastur að Stafafelli, gekk menntaveginn, en las um tíma heima. Fékk þá Ingunn nýjar bækur í hendur, auk þess sem bróðir hennar veitti henni nokkra tilsögn í dönsku og reikningi. Árið 1876 ræðst Ingunn til ferðar austur að Bjarnarnesi í Hornafirði til þess að standa fyrir búi Jóns bróður síns, sem þá var orðinn prestur þar. Varð ferð þessi allsöguleg, eins og siðar mun að vikið. I Hornafirði dvaldi Ingunn næstu fjögur árin, og telur hún þau liafa verið einhver beztu ár ævi sinnar. Er það og svo sem að líkum lætur. Hún stendur þá í blóma æskimn- ar og er i fyrsta sinni á ævinni fullkomlega sjálf- ráð og ábyrg gerða sinna, auk þess sem hún kynntist þar eystra nýju umhverfi bæði meðal manna og eins hvað umhverfið snerti. Skömmu eftir dvöl sina í Hornafirði fer hún utan, til Dan- merkur fyrst, til að kynna sér þar smjörgerð og osta, en dvelur að því búnu á stuttu námskeiði við lýðháskólann Vilan í Svíþjóð. Alls mun hún hafa dvalið erlendis um það bil eins árs tíma. Mun för þessi jafnan hafa verið ljúf endurminning í huga Ingunnar, enda án efa haft rík áhrif á hina gáfuðu, ungu konu og leyst úr læðingi ýmislegt, er i sál hennar bjó. Árið 1883 giftist Ingunn Birni syni sr. Sigfús- ar Jónssonar frá Reykjahlið, lengstum prests að Tjörn á Vatnsnesi, og konu hans, Sigriðar Björns- dóttur Blöndal. Bjuggu þau, Björn og Ingunn, fyrstu þrjú árin að Hofi i Vatnsdal í Húnavatns- sýslu, en fluttu þá að Grímstungu í sömu sveit. Bjuggu þau þar í 13 ár, en fluttu vorið 1899 að Kornsá í Vatnsdal. Bjuggu þau hjónin þar allan sinn biiskap upp frá því eða til ársins 1925, er þau brugðu búi, en við tók sonur þeirra, Runólfur. Þá um haustið flutti Ingunn til Reykjavíkur til Sigríðar dóttur sinnar, þar sem hún svo dvaldi síðan til dauðadags, en hún lézt 9. ágúst 1947, rúmlega 92 ára að aldri. 19. JtJNl 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.