19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 48

19. júní - 19.06.1956, Qupperneq 48
— VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR: GLEÐI Hamingjan fyllir hundraSföld hugann fögrum vonum. Pósturinn hérna kom í kvöld, kom rneð bréf frá honum. ÞORRAÞRÆLL Þegar illur þorri fer, þrengir nœturskugga. Fylkir úfinn fœrSi mér frosna rós á glugga. \______________________________/ hún upp þann sið, að leggja blað og blýant á borðið við rúmið sitt, er hún gekk til hvílu á kvöldin og notaði svo andvökustundirnar til ritstarfa. Á þenn- an hátt varð víst flest það til, er hún ritaði. Var eigi ætlun hennar í fyrstu að 'láta koma á prent það, sem hún skrásetti, heldur líklega fremur hitt, að láta það iiggja sem handrit t. d. í Landskjala- safninu til fróðleiks fyrir eftirkomendurna. En fyrir atbeina dr. Sigurðar Nordal og fleiri góðra manna fór þó handritið til prentunar. tJt kom svo „Bókin mín“ á öndverðu ári 1926, og var höfund- urinn þá á fyrsta árinu yfir sjötugt. Tilgangi sín- um með bókinni lýsti Ingunn með vísu sr. Einars í Eydölum: Heilagur andi hvert eitt sinn hefur það kennt mér, bróðir minn, lífsins krydd, ef lítið finn, að leggja það ekki í kistur inn. Mjög var Ingunn hvött til að halda áfram rit- störfum, enda hægara um vik fyrir hana eftir að hún lét af búskap. Kom svo önnur bók hennar, „Minningar“, út árið 1937, og hafði Ingunn þá tvo um áttrætt. En jafnvel eftir þann tíma skrifaði hún enn nokkuð. Birtust þeir kaflar í bókinni „Gömul kynni“, ásamt efni fyrri bóka hennar, „Bókin mín“ og „Minningar“. „Gömul kynni“ kom út árið 1946, ári áður en Ingunn dó. Eins og kunnugt er lilutu bækur Ingunnar á Kornsá ágæta dóma hinna ritfærstu manna þjóð- arinnar. T. d. sagði dr. Sigurður Nordal meðal margra annara lofsamlegra orða: „Hún (þ. e. Bók- in mín) er sönn, einlæg, blátt áfram, skemmti- leg, spakleg“. Sigfús Halldórs frá Höfnum kvað svo fast að orði um sömu bók: „Það þarf ekki lang- ar forsendur að því, að þessi bók er svolítið meist- araverk“. Jóhannes úr Kötlum ritaði meðal ann- ars um „Minningar“ Ingunnar þetta: „Eins og áð- ur hjá þessum höfundi, er það hinn hlýi, kyrrláti andi mæðra vorra, sem svífur yfir þessari bók, — manni verður einkennilega notalegt í skapi, eins og hin aldna kona sitji við hlið manns í skammdegis- rökkrinu og dragi dýrgripi reynslu sinnar upp úr djúpi liðinnar ævi“. Einhver ónafngreindur skrif- aði í blaðið „Tímann" ásamt mörgum fleiri sterk- um lofsorðum um bækur Ingunnar: „Ég hygg, að ekki sé til önnur verðmætari Islandssaga en ein- mitt þessar bækur, það sem þær ná“. Sigurður Guðmundsson skólameistari sagði í bréfi til S. H. frá Höfnum: „Afskaplega þótti mér gaman að „Minningum11 Ingunnar frá Kornsá. Þær rifjuðu svo margt upp fyrir mér, sem móðir mín kenndi mér á æskudögum mínum og sagði mér frá fólki og hefðarmönnum í Vatnsdal og Þingi. Þær minntu mig á vísur, sem hún kenndi mér, og mér hafa eigi komið í hug milli 40 og 50 ár. Málfar og skýrleiki hennar er hvort tveggja í bezta lagi.“ Enda þótt ummæli þessara manna séu sam- hljóða um ágæti þess, er Ingunn ritaði, er hér í engu of mælt. Getur hver maður sannfærzt um það sjálfur, er bækur hennar les. Ósjálfrátt verður manni að hugsa: „Hvað veldur því, að bækur Ing- unnar frá Kornsá eru svo ágætar, sem raun ber vitni?“ Jóhannes úr Kötlum segir á einum stað í ritdómi sínum um „Minningar11: „Hún lítur jafn vingjarnlega til beggja, Blöndals sýslumanns og Magnúsar „blessaða11, og því verður öll frásögn hennar svona hugnæm, að æðasláttur hins stríð- andi lýðs niðar þar á bak við“. Mér er nær að halda, að liér sé svarið við spurningunni. Ekkert mannlegt var Ingunni óviðkomandi. Sérhver mannssál, jafnt barnsins sem hins fullþroska manns, umkomuleysingjans engu síður en hins, sem hærra var settur, átti rétt til þess, að sam- ferðamennirnir gerðu sér far um að skilja hana. Ingunni var sú list lagin, að íhuga og meta og byggja dóma sína á rólegri yfirvegun, en ekki augnabliksáhrifum. Þess vegna er það, sem hún ritaði svo hugðnæmt og satt, og hún sjálf er hin spakvitra, umburðarlynda og æðrulausa kona í minningu allra þeirra, sem gæfu báru til að kynn- ast henni í lifanda lífi. 36 19. JÚNl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.