19. júní


19. júní - 19.06.1969, Síða 32

19. júní - 19.06.1969, Síða 32
BROSTNIR HLEKKIR Frá því 19. júní kom út fyrir einu ári, hafa 9 félagar K.R.F.l. látizt; er það stórt skarð í einu fé- lagi. Allra þeirra ágætu kvenna vill blað félagsins minnast með þakklæti fyrir störf þeirra og sam- heldni. Ása GuÖmundsdóttir var fædd á Isafirði 17. nóv- ember 1906. Hún var dóttir hjónanna Rebekku Jónsdóttur Sigurðssonar alþingismanns og bónda á Gautlöndum, og Guðmundar Guðmundssonar prests í Gufudal, A.-Rarðastrandarsýslu, og var yngst bama hans, en hann fluttist til ísafjarðar haustið 1905, og þar ólst hún upp og dvaldist til ársins 1936, er hún fór til Reykjavíkur og réðst þá til starfa í Landsbanka fslands, þar sem hún vann óslitið og oftast sem gjaldkeri frá þeim tíma og meðan heilsa hennar leyfði, en hún andaðist 8. marz 1968. Ása Guðmundsdóttir var fjölda mörg ár endur- skoðandi reikninga Kvenréttindafélags íslands, og hún var jafnan reiðubúin til hvers þess starfs, sem henni var falið eða óskað var eftir, að hún tæki að sér. Hún var hin mætasta kona og hvers manns hugljúfi, er kynni höfðu af henni. Ingibjörg GuÖmundsdóttir var fædd 18. marz 1916, dóttir hjónanna Guðmundar Þorbjarnarsonar múrarameistara á Seyðisfirði og Aðalbjargar Stef- ánsdóttur konu hans. Hún vann í mörg ár á Veð- urstofu fslands, og fyrsta árið, sem veðurathugun- arstöð var rekin á Hveravöllum, var hún þar með manni sínum, Björgvin Ólafssyni vélsetjara, og annaðist veðurathuganir þar. Um þessa ársdvöl á Hveravöllum skrifaði hún í blaðið 19. júní 1967 ítarlega og skemmtilega grein. fngibjörg giftist 11. ágúst 1937 Kristmanni Guð- mundssyni rithöfundi, og eignuðust þau saman eina dóttur, Vildísi, sem gift er Árna Edwins verzl- unarmanni. Þau skildu. Með öðrum manni sínum, Geir Gunnarssyni, ritstjóra, átti hún son, sem heitir Óðinn. Þriðji maður hennar var Bjarni Dan- íelsson. fngibjörg var lengi i K.R.F.Í. og var góður félagi. Hvert það starf, sem hún tók að sér, leysti hún af hendi vel og samvizkusamlega. Hún lézt 9. sept. 1968. Halldóra B. Björnsson skáldkona var fædd að Litla-Botni í Hvalfjarðarstrandarherppi. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Pétursdóttir frá Drag- hálsi og Beinteinn Einarsson bóndi í Litla-Botni, sem seinna bjuggu á Draghálsi í Borgarf jarðarsýslu. Hún giftist 26. des. 1936 Karli Leó, syni Guð- mundar Björnssonar sýslumanns á Patreksfirði og seinna í Borgarnesi. Þau eignuðust eina dóttur, Þóru Elfu Björnsson, sem gift er Gísla Guðmunds- syni loftskeytamanni. Mann sinn missti Halldóra 6. júli 1941. Halldóra Björnsson var i ritnefnd 19. júní frá 1959 til 1964 og gegndi því starfi af miklum áhuga og lét þar mikið til sín taka, bæði með eigin fram- lagi í ljóðum, smásögum og ritgerðum, og með fundvísi á annarra verk. Eftir hana hafa komið út: Ljóð, 1949. Eitt er það land, 1954. Trumban og lútan (ljóðaþýðingar), 1959. Við Sanda, 1968, og Jarðljóð í des. 1968. Halldóra var félagslynd og gegndi formanns- störfum í Rithöfunafélagi fslands og Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna. Hún starfaði við skjalavörzlu á lestrarsal Alþingis frá 1944 til aprílloka 1968. Mörg Ijóð og sögur eftir hana hafa birzt í timaritum og safnritum. Hún var mikils metin skáldkona, vinsæl og samvinnugóð. Hún hné að velli of fljótt, frá mörgum ófullgerðum ritverk- um, en átti samt margt fullgert í handraða sínum, bæði ljóð, sögur og safn fróðleiks. Stærstu afrek 30 19. JÚNÍ

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.