19. júní


19. júní - 19.06.1969, Page 37

19. júní - 19.06.1969, Page 37
HUGLEIÐING ganga veginn til enda. Og ef til vill er enginn endir. Lífið er án upphafs og endis eins og hringurinn. Ni'i hafa margir reynt það að missa hluta af lík- ama sínum, til dæmis hönd eða fót, og þessi miss- ir verður til trafala oftast í þessari líkamlegu til- veru. En maðurinn sjálfur, þetta ég, sem talar, hefur ekki minnkað, aldrei hef ég vitað til þess. Eg er ég eftir sem áður. Má þá ekki eins hugsa sér, að hægt sé að taka allan likamann í hurtu og ég standi eftir óbreytt. Þetta finnst mér liklegast. Eg trúi þvi ekki, að svo auðvelt sé að sleppa frá öllu, sem maður hefur gert, gott eða verra. En þetta er auðvitað bara min skoðun. Og menn hafa ótal skoðanir. Ef til vill er bezt að hafa enga, vera aðeins með eins opin augu og kostur er. Reyna að finna það, sem allir leita mitt á milli dags og næt- ur, þegar hvorki er dagur né nótt, heldur eilifð, kannski er það auðveldast, þegar miðnætursólin vaggar sér á bárunum. Það er aftur farið að dimma. Okkar stutta sum- ar er fljótt að líða. Þó að enn syngi lóan við glugg- ann, finn ég haustið nálgast. Mér finnst fylgja rökkrinu aukinn friður og öryggi. Fólk kemur hingað utan úr heimi til að fá að lifa hinar björtu nætur og lita miðnætursólina augum. Víst er sá tími þrunginn töfrum, en ein- hvern veginn finnst manni hitt eðlilegra, að nóttin komi og breiði yfir alla hlýtt teppi. Hún er sögð systir dauðans. Það er annars einkennilegt þetta með dauðann. Flestir munu ekki hugsa mikið um hann. Þegar hann svo kemur, stundum öllum óvörum, er ekki timi til umhugsunar. En oft er líka beðið eftir honum lengi og honum fagnað sem vini. Hvað er dauði? Hættum við að vera? Liggur vitund okkar í frumum likamans, sem leysast sund- ur og dreifast? Dreifast sálir okkar þannig um viða veröld til þess að brotin megi seinna verða notuð sem uppi- staða í nýjar sálir? Þetta eru kjánalegar spurning- ar og ég ætlast ekki til svars, því að algild svör eru ekki til. Hver og einn hefur sina reynslu. Við fáum ekki lært af öðrurn. Við verðum sjálf að Til útsölumanna Eins og að undanförnu verður 19. júni, blað Kvenréttindafélags fslands, sent kvenfélögum og öðrum þeim, sem hafa liaft útsölu blaðsins út um land. Sölulaun 15% dragast frá útsöluverðinu eins og meðfylgjandi reikningar sýna. Auk þess má draga frá sendingarkostnað þeirra peninga, sem inn koma, og er æskilegt, að þeir verði sendir í póstávísun og er þá nóg að taka póstkvittun, svo að ekki þurfi að senda sérstakar kvittanir til útsölu- manna. Ekki er nauðsynlegt að binda sölu blaðs- ins við 19. júni, þótt góður söludagur sé, það má geyma óseld blöð til haustsins, þegar félagsstörf hefjast, en senda greiðslur sem fyrst fyrir það, sem selst, og gera skil ekki seinna en i nóvember vegna ársreikninganna. Afgreiðsla 19. júní er nú á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík, skrifstofu K.R.F.I., og er hún opin þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga klukkan 16—18. Sínti: 18156. Póstliólf 1078. 19. JÚNÍ 35

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.