19. júní - 19.06.1987, Side 56
ÓLAFUR FRIÐRIKSSON
FRÉTTAMAÐUR
KONUR VINNI
SIGUPPÍÆÐSTU
Spurningin er bæði gildishlaðin
og rangt fram sett að mínu
mati, því hún gengur út frá að
það sé til einhver góð leið til að
koma konum á þing, - leið sem eigi
þá ekki við karla. Ég get ekki séð að
konur hafi neina sérstöðu í samfélag-
inu að þessu leyti. En besta ráðið til
að koma konum á þing hlýtur að vera
að tryggja þeim örugg sæti á fram-
boðslistum þeirra flokka sem flesta
hafa þingmennina. Það virðist kjós-
endur hins vegar ekki vilja, hvorki
konur né karlar ef dæma má eftir
niðurstöðum prófkjara og forvala.
Ástæðan fyrir því virðist vera sú að
endurnýjun á framboðslistum til
Alþingis fer í flestum tilfellum eftir
framgöngu frambjóðenda á öðrum
sviðum. Þannig hafa þeir sem ná betri
kosningu í prófkjörum og komust í
líkleg eða örugg sæti unnið sig upp í
gegnum lægri stig stjórnsýslunnar, í
bæjar- og sveitastjórnum eða orðið
áberandi af öðrum störfum svo sem
forystumenn hagsmunasamtaka eða
forsvarsmenn fyrirtækja eða stofn-
ana. Flestir þeirra eiga líka að baki
langan feril í flokkstarfinu, verið for-
menn félaga og svæðasambanda
flokkanna, þótt ekkert af þessu sé þó
einhlítt.
Meðan svo fáar konur sem raun
ber vitni sitja í bæjar- og sveitastjórn-
um, svo fáar eru í forsvari fyrir hags-
munasamtök, í forsvari fyrir fyrirtæki
og stofnanir eða eru í forystu félaga
innan flokkanna, eru Iitlar líkur á að
hlutfall kvenna á Alþingi breytist
verulega.
Svarið við spurningunni hlýtur því
að vera að hlutfall kvenna aukist í
beinu framhaldi af aukinni þátttöku
þeirra á fyrrgreindum sviðum og þá
er það besta leiðin. Konur hoppa
ekki alskapaðar inn í æðsta stjórn-
sýslustigið, Alþingi, frekar en karlar.
ALLT í LEIKFIMINA
Franskur þýskur, ítalskur
leikfimifatnaður.
★
Leikfimibolir
Leikfimibuxur
Samfestingar
Upphitunarbuxur
Legghlífar
Skór og fleira
NÝKOMD)
★
Barna-, unglinga-
og fullorðinsstærðir
© nSTUDD ©
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68 Austurver
Sími 8-42-40 ssst
Póstsendum.
56