19. júní - 19.06.1987, Blaðsíða 59
Danfríftur Skarphéöinsdóttir Margrét Frímannsdóttir Raj>nhildur Helgadóttir Jóhanna Siguröardóttir
því að starfið á þeim vettvangi ætti að
vera konum í senn góður skóli og
hvatning til undirbúnings virkari þátt-
töku í landsmálum. Með aukinni
reynslu ættu konur að verða í betri
aðstöðu til að knýja á unr það innan
flokka sinna að komast í öruggari
framboðssæti í þingkosningum.
FRAMBOÐSLISTAR
En lítum þá aðeins á hversu
miðar í þeim tröppugangi.
Pegar bornir eru saman fram-
boðslistar gömlu blönduðu
flokkanna fjögurra til þingkosning-
anna árin 1983 og 1987 kemur í ljós
að í þremur efstu sætum þeirra hefur
konum fjölgað úr þrettán í tuttugu og
tvær samtals á landinu öllu, þ.e. í öll-
um kjördæmum. innan flokkanna
hefur þróunin verið sem hér segir: (í
samanburði þessum verða til hægðar-
auka notaðir listabókstafir flokk-
anna).
Á A-listum fjölgaði konunum úr
fjórum í sex, á B-listum úr einni í
fimm, á D-listum úr einni í tvær, á G-
listum úr sjö í níu. En sé aðeins litið
á tvö efstu sætin dökknar myndin
hcldur betur. Þá kenrur í ljós, að eng-
inn flokkanna hafði konu í fyrsta sæti
árið 1983 og aðeins ein kona komst
svo hátt nú, á G-lista í Suðurlands-
kjördæmi. í öðru sæti voru sex konur
árið 1983, fjórar á G-listum, tvær á
A- listum og fjölgaði ekki í kosning-
unum nú, - reyndar fækkaði um eina
á G-listum cn í staðinn var ein kona í
2. sæti B-lista í ár. Á D-listum var
engin kona í 2. sæti.
Sú litla fjölgun sem orðið hefur er
því aðeins í þriðja sæti og þar fyrir
neðan þar sem kjörlíkur eru litlar
sem engar nema í Reykjavík. Og þar
var staðan í 4.-6. sætum framboðs-
lista gömlu flokkanna fjögurra verri í
ár en 1983, konunum fækkaði úr sjö í
fimm. Á lista Alþýðuflokksins var
aðeins eitt þessara sæta, 4. sætið skip-
að konu í ár, en flokkurinn var með
konur í þeim öllum þremur í síðustu
kosningum. Hjá B-listanum voru
konur í 4. og 6. sæti í bæði skiptin. Á
D-listanum var kona í 5. sæti árið
1983 nú færð upp í 3ja sætið og skip-
uðu karlar 4.-6. sæti í ár. Eini flokk-
urinn sem hugsanlega hefði fengið sjö
þingmenn kjörna í Reykjavík er
Sjálfstæðisflokkurinn. Hann setti
konu í 7. sæti listans í ár en karl árið
1983. Hvorugt náði kjöri.
Á árinu 1983 bauð hver þessara
fjögurra flokka fram 98 manns. Þar af
voru konur á listum Alþýðuflokks 30,
Framsóknarflokks 28, Sjálfstæðis-
flokks 20 og Alþýðubandalags 38.
Árið 1987 eru konurnar á listum
Sjálfstæðisflokksins komnar upp í þá
tölu, 38, en í þetta sinn af samtals 124
frambjóðendum - en jafnframt eru
konurnar á framboðslistum hinna
þriggja flokkanna komnar upp í 46
hjá Alþýðuflokki, 49 hjá Framsókn-
arflokki og 57 hjá Alþýðubandalagi,
einnig af 124 frambjóðendum hjá
hverjum flokki.
Framboö annarra flokka er ekki
jafn gott að bera saman milli ára en
þeir áttu konur í tveimur efstu sæturn
í ár sem hér segir: Bandalag
Jafnaðarmanna eina konu í 1. sæti,
enga í 2. sæti. Flokkur mannsins:
þrjár konur í 1. sæti og sex í 2. sæti.
Borgaraflokkur enga konu í 1. sæti,
en þrjár í 2. sæti. (Eina konan sem
náði kjöri á hans vegum skipaði 3.
sæti listans í Reykjavík, þar sem vit-
að var að fylgi flokksins var mest).
Þjóðarflokkurinn átti eina konu í 1.
sæti og fjórar í 2. sæti, en Samtök um
jafnrétti og félagshyggju átti enga
konu í tveimur efstu sætum.
Frammistaða sumra þessara flokka
í framboðsmálum kvenna er því ögn-
inni skárri - en Ijóst er að betur má ef
duga skal hjá öllum blönduðu flokk-
unum, eigi að stemma stigu við
áframhaldandi kyngreiningu stjórn-
málaflokka á Alþingi.
Svo sem drepið var á í upphafi eru
kosningarnar til Alþingis nú athyglis-
verðar fyrir margar hluta sakir, sem
hér verður að láta liggja milli hluta,
en eiga vafalaust eftir að verða þjóð-
inni allri íhuganarefni á næstunni.
Framtíð kvenna í stjórnun landsins er
þar aðeins eitt atriði af mörgum. En
hver sem staða þeirra þrettán kvenna
verður, sem nú hafa verið kjörnar til
setu á Alþingi - hvort sem hún verður
utan eða innan stjórnarbúða - virðast
þær allar þesslegar að eiga þangað er-
indi sem þær muni reka með fullum
sóma. Megi þeim öllum vel farnast
hvar í flokki sem þær standa.
1. maí 1987
59