19. júní - 19.06.1987, Síða 62
Soroptimista, er lögö áhersla á aö
kynnast sent breiöustu sviði meðal
starfandi kvenna og er því jafnan
reynt að fá til liðs við samtökin konur
sem eru brautryðjendur á nýjum
starfsvettvangi. Þátttaka er alltaf
boðin af samtökunum og er það skil-
yrði að konur sem boðin er þátttaka
hafi atvinnu sem veitir tekjur þar
með talin húsmóðurstörf. Þegar kona
í ákveðinni starfsgrein hefur verið 10
ár í samtökunum má bæta við annarri
í sömu starfsgrein, þannig eru sjaldn-
ast fleiri en 2-3 í sömu starfsgrein í
sama klúbbi. Meðal starfsheita í fé-
lagatali Soroptimista má sjá tölvu-
skrárritara, snyrtifræðing, húsmóður,
bónda, bókavörð, símstöðvarstjóra,
tollþjón, fóstru, kennara og starfs-
mannastjóra svo nokkuð sé nefnt.
í innra starfi klúbbanna er stefnt
markvisst að því að konurnar kynnist
hvor annarri í lífi og starfi. Hver
kona heldur erindi um sig og starf
sitt. Einnig heimsækja þær vinnustaði
allra klúbbfélaga. Konur innan sam-
takanna hafa rétt til að sækja fundi
hjá öðrum klúbbum en sínum eigin
og á það einnig við á alþjóðavett-
vangi.
Gerður Hjörleifsdóttir, fyrrverandi
forseti samtakanna, sagði að það væri
sérstök upplifun að heimsækja er-
lenda klúbba, því þær fyndu skýrt að
þær væru allar hluti af heild og mikil
tengsl mynduðust strax milli félag-
anna. Eins sagði hún, að það væri
mikið öryggi á ferðalögum erlendis,
að hafa félagatalið í farteskinu, því ef
eitthvað bjátaði á, væri alltaf hægt að
hafa samband við soroptimista á
staðnum.
BÁGSTADDIR í AFRÍKU -
ALDRAÐIR Á ÍSLANDI.
Hver klúbbur hefur sín rnark-
mið að vinna að, sem tengjast
þörfum þess samfélags sem
klúbburinn er í, en jafnframt
er unnið að alþjóðlegum verkefnum.
T.d. var ákveðið að verja fé því, sem
safnaðist 10. des. sl. á Alþjóðadegi
Soroptimista til styrktar bágstöddum
konum og börnum á þurrkasvæðinu í
Súdan.
Á íslandi hefur kröftum og fjár-
söfnunum einkum verið beint að
heilsufars- og menningarmálum. í
þessu skyni hafa Soroptimistar selt
alls konar varning, m.a. kerti, serví-
ettur, sápur, heimabakaðar kökur og
fleira. Á ári aldraðra sameinuðust all-
ir íslensku klúbbarnir um það að selja
þýska sápu með áletruninni FA eða
fyrir aldraða. Varð ofan á að verja
söfnunarfénu til þess að gefa Reykja-
lundi 40 sjúkrarúm af fullkomnustu
gerð og auk þess dýnur og röntgen-
tæki. í Póstinum í Mosfellssveit var
haft eftir forstöðumanni Reykjalund-
ar að þetta væri stórkostlegasta gjöf
sem Reykjalundur hefði fengið, þótt
þeir hafi oft notið góðs frá almenn-
ingi.
Evrópuforseti samtakanna er
norsk, Eva Skaarberg. Hún hefur
lagt mikla áherslu á að koma á sam-
starfi milli Soroptimista í Evrópu og
Afríku. í þessu skyni hefur hún unnið
að því að koma á svokölluðum
„twinning-prógrömmum“ sem eru
tveggja þjóða samvinna á milli
klúbba í þróunarlöndum og klúbbs
innan Evrópusambandsins. ísland er
fyrsta landið til að fá slíkt verkefni.
íslensku Soroptimistarnir koma til
með að tengjast klúbbi í borginni
Accra í Ghana. Þetta verkefni verður
í þágu blindra. Soroptimistaklúbbur-
inn í Accra hefur þegar sent óskalista
yfir það sem blinda vanhagar mest
um. Samskipti við Afríku eru þó
erfið, bæði er crfitt að koma tækjum
inn í landið og eins hafa Soroptimist-
ar þar þurft að hafa hægt um sig, því
ekki hefur ríkt skilningur á starfi
þeirra. Þurft hefur að senda bréf í
pósthólf á flugvellinum. En þetta er
nú að breytast og skilningur að auk-
ast á þessu starfi. Lúísa sagði, að syst-
urnar á íslandi væru afskaplega ham-
ingjusamar yfir því að hafa fengið
þetta verkefni og væru áhugasamar
um að hefja starfið.
I.E.G.
Ilandinu eru þúsundir vinn-
andi kvenna; lögfræðingar,
læknar, kennarar, bókasafns-
verðir, gjaldkerar sem eru að
vinna hver í sínu horni einna líkast
því sem þær væru umkringdar þoku.
Aflétta verður þessari þoku.“ Þannig
var ástandið meðal starfandi kvenna
á vinnumörkuðum Bandaríkjanna á
árunum í kringum 1920 að áliti Lenu
Madesin Phillips, sem var aðalhvata-
maðurinn að stofnun BPW sem eru
samtök starfandi kvenna, fagiærðra
sem annarra.
BPW stendur fyrir Business and
Professional Women’s Club og í
Reykjavík hefur slíkur klúbbur verið
starfandi síðan árið 1979. íslenska
heitið cr Félag starfandi kvenna í
62
Frá fundi BPW klúbbsins í maíbyrjun.
Reykjavík, en í daglegu tali er klúbb-
urinn ávallt kallaður BPW klúbbur-
inn. Markmiðið er að efla samstarf og
gæta hagsmuna þcirra kvcnna sem
starfa sjálfstætt eða sem launþegar á
vinnumarkaðnum. Reglur félagsins
kveða svo á að 75% félagskvenna
skuli vera starfandi á vinnumarkaði,
BWP KLUBBURINNIREYKJAVÍK
Sjálíur Reagan vill ekki
móðga BPW konur