19. júní - 19.06.1987, Side 65
Samskiptanet kvenna í
viöskiptalífinu
Ein yngstu, ef ckki yngstu, sam-
tök kvenna sem vinna að því
að styrkja stöðu kvenna er
Netið, sem stofnað var haustið
1986. Tildrög að stofnuninni voru
þau að á námskeiði sem Iðntækni-
stofnun hélt fyrir konur með áhuga á
að stofna fyrirtæki, komust þátt-
takendur að þeirri niðurstöðu að
þeim fannst þær ekki vita nóg um
hvað aðrar konur væru að starfa og
fannst þörf á að mynda einhvers
konar samskiptanet. Þessar konur,
ásamt fleirum, stofnuðu síðan Netið
sem hefur það að aðalmarkmiði að
stuðla að því konur í ábyrgðar- og
stjórnunarstörfum kynnist og geti
þannig veitt hvor annarri nauðsynleg-
an stuðning.
Guðbjörg Ársælsdóttir, deildar-
stjóri í Samgöngumálaráðuneytinu,
er ein þeirra kvenna sem eru í Netinu
og veitti hún fúslega upplýsingar um
starfsemina. Netið er óformleg sam-
tök kvenna sem í raun er opið öllum
konum sem eru lifandi og áhugasam-
ar um slík samtök. Fundir eru haldnir
á sex vikna fresti og eru meðlimir
u.þ.b. 140 talsins. Konurnar skipta
sér í hópa, en innan hvers hóps eru
konur í skyldum greinum. Nú eru
tveir hópar þar sem í eru konur sem
starfa við stjórnunarstörf, einn hópur
kvenna sem starfar við verslun og síð-
an einn hópur kvenna sem starfa við
ýntis mismunandi störf.
Starfsemin er enn í mótun og engin
Mynd frá fundi í Nctinu sem haldinn var í Sóknarhúsinu í vorbyrjun.
formleg stjórn er starfandi. I hverjum
hópi er tengill og tenglarnir skipta á
milli sín að sjá um dagskrá funda. Á
hverjum fundi hefur verið um
klukkustundarlangur fyrirlestur um
mismunandi efni. Að því loknu hefur
tíminn farið í almennt spjall. Með-
limir greiða árgjald til að standa
straum af kostnaði svo sem pósti og
pappír.
Flestar konurnar eru ánægðar með
samstarfið og sérstaklega eru verslun-
arkonur áhugasamar. Þær miðla milli
sín upplýsingunt t.d. um heildsölur og
segja hver annarri frá því hvar þær
geta fengið vörur sem þær eru að leita
að og geta þannig sparað hvor ann-
arri mikla vinnu og fyrirhöfn. Konur í
stjórnunarstörfum geta leitað upplýs-
inga hver hjá annarri, líkt og tíðkast í
hinum ýmsu samtökum karla. Má
sem dæmi nefna konu sem er í stjórn
fyrirtækis ásamt hópi karla. Á stjórn-
arfundum hefur oft komið á daginn
að karlarnir cru búnir að mynda sér
santeiginlega skoðun á ýmsum mál-
um sem eru á dagskránni, fyrir
fundinn, þar sem þeir hafa hist
nokkrunt sinnum áður í hinum ýms-
um sameiginlegu samtökum sem þeir
eru meðlimir í. Konur hafa hingað til
ekki haft slík samtök og því ekki get-
að haft samstarf af þessu tagi.
Netið starfar að mörgu leyti á lík-
um grundvelli og BPW klúbburinn,
en konunum í Netinu finnst full
ástæða til þess að fleiri en ein samtök
kvenna á vinnumarkaðinum séu
starfandi og berjist fyrir stöðu kon-
unnar þar. Þær telja að samtökin séu
skref í þá átt að efla baráttu kvenna
fyrir jafnrétti á vinnumarkaðinum.
B.K.
KVENFATABUÐIN
ÚRVAL AF DAG- OG KVÖLD-
KJÓLUM
Sumarkjólar, pils og blússur st. 38-60.
Fatnaður í yfirstæröum ávallt í úrvali.
Litmyndalisti
Póstsendum
KVENFATABÚÐIN
LAUGAVEGI 2 101 REYKJAVÍK
S:12123
65