19. júní - 19.06.1987, Side 77
Sýnishorn úr litskyggnuflokknuni fyrir yngri nemendur: Eldhús. Hvað þarf að gera í
þessu eldhúsi? Hverjir eiga að gera það? Hvers vegna? Hvað verður ef enginn gerir það?
kynjanna meiri athygli en áður og
horfi jafnframt gangrýnni augum á
viðtekin viðhorf og hefðir. Efnið er
ekki í samhangandi röð og t.d. má vel
taka fyrsta kaflann fyrir en sleppa
hinum.
ASKJA FYRIR EFNI UM STÖÐU KYNJANNA.
Samfara þessu námsefni lét
Námsgagnastofnun hanna öskju
fyrir skóla til að safna í og
varðveita efni til fræðslu um
stöðu kynjanna.
KYNNING OG TILRAUNAKENNSLA.
Þetta námsefni var fyrst kynnt
á fjölmiðlafundi sem jafnréttis-
nefndirnar, Námsgagnastofnun
og Jafnréttisráð héldu 19. sept.
1985. Það var síðan kynnt og sýnt
nokkru síðar í Kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar á dagskrá urn
jafna stöðu kynja til náms og starfa,
„Stelpa - strákur, skiptir það máli?“
í nóvember sama ár var síðan hald-
ið tveggja daga námskeið fyrir kenn-
ara og var hverju fræðsluumdæmi
boðið að senda tvo kennara sem væru
tilbúnir til að tilraunakenna námsefn-
ið, kynna það á sínu svæði, semja
skýrslu um kennsluna og reynslu af
efninu og koma á fund í lok skólaárs-
ins. Endurmenntun Kennaraháskól-
ans sá um kennslukostnað og Jafn-
réttisráð og jafnréttisnefndir greiddu
ferðakostnað Jtátttakenda. Um 16
konur tóku þátt í námskeiðinu, flest-
ar kennarar yngri barna. Leiðbein-
endur voru höfundarnir og Elín G.
Ólafsdóttir kennari. Hópurinn hittist
aftur einn dag í byrjun júní á næsta
ári til þess að gera upp tilraunina.
í tilboði K.H.Í. um endurmenntun-
arnámskeið fyrir kennara sumarið
1986 var boðið upp á námskeiðið
„Jöfn staða kynja til náms og starfs".
Það stóð í fjóra daga og sóttu það 18
konur og einn karl. Sá hópur hittist
aftur 19. mars s.l. með leiðbeinend-
um af námskeiðinu til þess að bera
saman bækur sínar. Á vegum endur-
menntunar K.H.Í. var haldinn fund-
ur með öllum stjórnendum nám-
skeiða sumarið 1986 og þeir hvattir til
að tengja umræðu um stöðu kynj-
anna inn í sitt efni. Ekki er vitað til að
sá fundur hafi borið árangur.
Boðið var upp á sams konar nám-
skeið á Akureyri í tengslum við verk-
efnið „Brjótum múrana", en það
varð aðeins tveir dagar vegna lítillar
þátttöku.
Höfundarnir hittu Jafnréttisnefnd
Reykjavíkur nokkrum sinnum til
þess að ræða efnið. Jafnréttisnefndir
Kópavogs og Hafnarfjarðar efndu til
kynningarfunda um efnið fyrir nefnd-
armenn, skólastjóra og fleiri. Skóla-
stjórarnir sendu flestir áhugasamar
kennslukonur í sinn stað. Á hvorn
fund komu einn skólastjóri, í öðru til-
fellinu kona! Höfundar litu einnig við
á fundi fræðslustjóra í menntamála-
ráðuneytinu og sýndu þeim efnið.
Efnið hefur einnig verið kynnt á
vinnufundi kennara í Hafnarfirði og
haldið var eins og hálfs dags nám-
skeið um efnið í Fossvogsskóla vegna
þemaverkefnis í öllum bekkjum skól-
ans um stöðu kynjanna. Því nám-
skeiði var fylgt eftir með eins dags
vinnufundi með höfundum meðan
verkefnið stóð sem hæst.
Þátttakendur af námskeiðunum
kynntu einnig efnið ýmist í sínunt
skóla eða á fundum með kennurum
úr fleiri skólum í fræðsluumdæminu.
REYNSLA AF NÁMSEFNINU.
au sent unnið hafa með þetta
námsefni virðast öll gleðjast yfir
því að loksins sé eitthvað til
fyrir nemendur um stöðu kynj-
anna, sbr. ritdóma þeirra Bryndísar
Guðmundsdóttur og Ingibjargar
Einarsdóttur í Nýjum menntamálum,
3. tbl. 1986. En það fara ýmsar sögur
af því hvernig tókst að vekja nem-
endur til umhugsunar og þátttöku og
hvernig samkennarar litu á efnið og
tilraunakennsluna.
Yfirleitt voru nemendur jákvæðir,
einkum þeir yngri. Orðið „jafnréttis-
kjaftæði“ heyrðist hjá sumum þeim
eldri. Kennararnir eru allir sammála
um að efnið stuðli að auknum þroska
nemenda og æfi þau vel í að tjá sig.
í sumum skólum sýndu kennararn-
ir þessu mikinn áhuga og skoðuðu
efnið vel og litu í öskjuna til að skoða
annað efni þessu tengt, annars staðar
fengu konurnar háðsglósur og níðvís-
ur! „Hverju viljið þið eiginlega ná
fram með þessu?“ spurði einn skóla-
stjórinn. Víða var ekkert spurt og
enginn skoðaði efnið.
Yngri barna efnið hefur verið not-
að mun meira en eldri barna efnið allt
frá 6 ára bekk og upp í 12 ára. í yngri
bekkjum hafa kennararnir gjarnan
sleppt verkefnablöðunum, en þau
hafa gefist vel með eldri nemendum.
Ótrúlegt er hvað kennararnir hafa
látið sér detta margs konar verkefni í
hug í tengslum við efnið, þar má
nefna alls konar myndræna vinnu úr
fjölbreyttu efni, heimsóknir á vinnu-
staði og úrvinnslu í skólanum á eftir,
kannanir, athuganir á eigin námsefni,
leikræna tjáningu, ljóðagerð o.fl.
Eldri barna efnið hefur verið kennt
í 8. og 9. bekk. Sum verkefnin þykja
nokkuð þung fyrir 8. bekk. Gaman
væri ef einhver tæki það fyrir í fram-
haldsskóla, annað hvort í ákveðinni
grein eða heilum skóla. Fáir kennarar
hafa tekið allt efnið fyrir, en nokkrir
hafa valið úr efninu og bætt ýmiss
konar vinnu við, eins og heimsókn-
um, könnunum, viðtölum o.fl. Mjög
erfitt virðist að finna efninu stað t.d. í
9. bekk, þar er starfið nokkuð njörv-
að niður í undirbúning undir sam-
ræntd próf. Efnið ætti að falla vel inn
77