19. júní


19. júní - 19.06.1996, Side 5

19. júní - 19.06.1996, Side 5
Ritstjóraspjall Að hrökkva eða stökkva s g var að fletta nokkrum gömlum 19.júní blöðum um daginn og rakst þá á ársritið frá 1954. Þar eru nokkrar konur spurðar að því hvernig þær hefðu varið lífi sínu hefðu þær verið karlmenn. Ein hefði viljað vera sjómaður, önnur bóndi og sú þriðja menntamaður. Það er ekki lengra síðan að það var ekki hugsanlegur möguleiki að konur gætu tekist á við þessi störf. Allar voru þær þó sammála um að þær hefðu frekar viljað vera karlmenn en konur, því að það hefði gefið þeim svigrúm til að gera það sem hugur þeirra hefði staðið til. Núna, rúmum fjöru- tíu árum síðar ganga konur í flestöll störf sem karlar hafa áður gegnt, þær eru læknar, lög- fræðingar, prestar, sjómenn, flugmenn, fallhlífa- stökkvarar, svo aðeins eitthvað sé nefnt. Reynsluheimur kvenna er orðinn fjölbreyttur og spannar allt litróf lífsins. Rúm 80 ár eru liðin frá því konur fengu kosn- ingarétt hér á landi og síðar í þessum mánuði iýkur 16 ára embættisferli frú Vigdísar Finnboga- dóttur, sem kvenna fyrst í heimi var þjóðkjörin forseti. Kosning Vigdísar var stórt framfararspor, ekki bara fyrir íslenskar konur, heldur allar kon- ur heims. Því þó að konur séu farnar að fást við flest það sem áður voru talin karlmannsstörf þá hafa þær ekki haft völd eða áhrif, eiga hvorki peninga né eignir á við karla í heiminum. Þar til sjónarmið kvenna fá að njóta sín til jafns við karla þurfa konur að standa saman. Hinn sameig- inlegi reynsluheimur þeirra er valda- og áhrifa- leysi, launamismunur, fátækt og eignaleysi. Konur í dag hafa öll formleg réttindi á við karla og sömu menntun. Þó mikið hafi unnist verða konur þó að halda vöku sinni og sækja áfram fram og berjast gegn þeim þáttum sem hindra þær í að nýta hæfileika sína og getu til fulls. Þar má m.a. telja ýmsa fordóma, kynferðislegt áreiti og ofbeldi, innan heimila sem utan. I blaðinu að þessu sinni beinum við sjónum að ungu kyn- slóðinni og jafnréttisbaráttunni, vinnu, tækni og fjölbreytileika íslenskra kvenna. Gleðilegt Útsölustaðir Reykjavík: Hárgreiðslustofan Gresika, Suðurgötu 7. Reykjavíkurapótek. Hárgreiðslustofan Kambur, Kambsvegi 18. Hárgreiðslustofan ÝR, Lóuhólum 2-6. Hárgreiðslustofan Hótel Loftleiðum. Seltjarnarnes: Nesapótek. Kópavogur: Apótek Kópavogs, Hamraborg. Snyrtistofa Þórunnar Sunnuhlíð. Hafnarfjörður: Hárgreiðslustofan Meyjan, Reykjavíkurvegi 62. Hárgreiðslustofan Björt, Bæjarhrauni 20. Hafnarfjarðarapótek, Nýja miðbænum. Keflavík: Snyrtistofa Guðrúnar, Baldursgötu 2. Apotek Suðurnesja Stykkishólmur: Aðalbjörg Hrafnsdóttir, Skólastræti 14. Akureyri: Snyrtivöruverslunin ísabella, Hafnarstræti 97. Dalvík: Snyrtistofa Tanja. ísafjörður: Apótek ísafjarðar, Hafnarstræti 18. Hella: Verslunin Ýr, Þrúðvangi 34. Selfoss: Snyrtistofa Ólafar Bergs, Austurvegi 9. lumene HYDRO UPOSOME kosteuttava ‘^tensiivigeei UKTANDE . ^ENSIVGELE LUMENE ^posome eliksiiri ELlXfR LUMENE Einkaumboð: Elding Trading CO.Hafnarhvoll, Pósthólf: 895, 101 Rvk. 3 19.júní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ISLANDS

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.