19. júní - 19.06.1996, Síða 42
Kvennarannsóknir
FLORA,
ullarbandið sem þolir vélarþvott
ISTEX.
ISLENSKUR TEXTILIÐNAÐUR HF.
framhald af bls. 39
un okkar, tali og skrifum og hvernig þær hafa haft
áhrif á líf karla og kvenna í fortíð og nútíð.
Þema vetrarráðstefnunnar var „De maskuline
kroppe" eða karllíkaminn, og fyrirlestrarnir voru fjöl-
breyttir. Einn fjallaði um rannsóknir á nemendum I
finnskum íþróttaháskólum. Annar um þá karl-
mennskuímynd sem ríkir á líkamsræktarstöðvum í
Svíþjóö og þann menningarkima sem myndast hjá
alhörðustu vaxtarræktarmönnunum á slíkum stöö-
um. Sá þriöji fjallaði um framsetningu karllíkamans
í nokkrum bandariskum bíómyndum frá síöustu 40
árum. Þá var fyrirlestur um samskipti ungra karla í
norska hernum sem nefndist Reisebrev fra en
kjpnnsafari. Om menn, makt og seksualitet i mili-
tæret, og var fluttur af félagsmannfræðingi (konu)
sem haföi farið í vettvangsferö og dvalið með norsk-
um hermönnum í nokkrar vikur, rétt eins og mann-
fræðingar dvelja stundum með framandi þjóðum
um árabil til aö kynnast menningu þeirra. Auk fyrir-
lestranna voru líflegar umræöur, bæði á ráðstefn-
unni sjálfri og á sænskum veitinga og öldurhúsum
á milli funda. Umræða um kynferði og um karl-
mennsku er augljóslega í tísku í Svíþjóö, maður
opnaöi ekki blað svo aö ekki væri þar grein um
karla, hvort sem þaö var frétt um karlmennskuí-
mynd sænskra orrustuflugmanna, eöa buxnasídd
karla í listdansi á skautum. Sjónvarpiö lét heldur
ekki sitt eftir liggja. Svíar eru komnir svo langt á fjöl-
miðlabrautinni að þar getur maður horft á morgun-
sjónvarp með kaffinu um helgarogviti menn! Égvar
ekki fyrr tekinn til við morgunverð á sunnudeginum
en á skjánum birtist frjálslegur ungur maður sem
haföi uppi miklar meiningar um það hvernig þaö
væri að vera karlmaður í Svíþjóö á því herrans ári
1996.
Fyrirlestrarnir á ráöstefnunni voru allir áhuga-
verðir, sumir frábærir. Það sem er þó kannski allra
best við að komast í svona hóp, og það sem var
verulega afslappandi, var að geta setiö heila helgi
með fólki sem getur rætt um kynferöi og um karl-
menn án þess að glotta sífellt viö tönn, fólk sem
hefur áhuga á því aö brjóta til mergjar þann sess
sem kynferði og hugmyndir okkar um þaö skipa í
lífi okkar.
Eftirminnilega gott
BRAGA
KAFFI
- islenskt og ilmandi nýtt