19. júní


19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 72

19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 72
Jafnréttisbaráttan framhald af bls. 69 Aðalfundur 1995 Á aðalfundi árið 1995 urðu þær breytingar á stjórn félagsins að Inga Jóna Þórðardóttir gaf ekki kost á sér til formanns, en í hennar stað var Bryndís Hlöðversdóttir kjörin formaður til tveggja ára. Ellen Ingvadóttir var kjörin vara- formaður í stað Bryndísar til eins árs, Valgerð- ur K. Jónsdóttir var kjörin'í aðalstjórn til tveggja ára og Málfríður Gísladóttir var kosin í aðalstjórn til tveggja ára í stað Guðnýjar Bene- diktsdóttur er gaf ekki kost á sér áfram. í vara- stjórn voru kosnar Margrét Vala Kristjánsdóttir til tveggja ára í stað Ragnhildar Hjaltadóttur er gaf ekki kost á sér áfram og Hrund Hafsteins- dóttir sem var kosin til eins árs. Að loknum aðalfundi skipti stjórnin með sér verkum þannig að Hulda Karen Olafsdóttir var kjörin gjaldkeri, Málfríður Gísladóttir ritari og Valgerður K. Jónsdóttir meðstjórnandi. Fundir stjórnar og framkvæmdastjórnar Frá síðasta aðalfundi voru haldnir 8 stjórn- arfundir, en framkvæmdastjórn heldur fundi að jafnaði vikulega. Þann 19. maí komu stjórnarkonur saman ásamt ritnefnd 19. júní og héldu vorblót um leið og Inga Jóna Þórðardóttir, fráfarandi for- maður, var kvödd. Henni var færður penni að gjöf, áritaður með kveðju frá stjórninni. Þann 26. október buðu stjórnarkonur öllum þingkonum til morgunverðarfundar til að ræða dóma sem kveðnir voru upp á árinu um ör- orkubætur til stúlkna, en dómar þessir höfðu verið gagnrýndir fyrir að vera í andstöðu við lög og alþjóðasamninga um jafnrétti kvenna og karla. Lára V. Júlíusdóttir kynnti dómana og að því loknu voru umræður. Fundinn sóttu 11 manns, þrátt fyrir aftakaveður og slæma færð. Samþykkt var á fundinum að beina áskorun til Lögmannafélags íslands, lagadeildar Háskóla íslands og Dómarafélags íslands um að standa að fræðslu og kynningu á ákvæðum laga og al- þjóðasamninga um jafnrétti kvenna og karla en á fundinum komu fram áhyggjur af því að ekki væri nægilega vel staðið að þessum málum. Bréf voru send til ofangreindra aðila og undir- rituðu svo til allar stjórnarkonur KRFÍ og all- flestar þingkonur bréfin. Nú nýlega fór formað- ur ásamt Láru V. Júlíusdóttir á fund Þorgeirs Örlygssonar, forseta lagadeildar Háskóla fs- lands, en á þeim fundi voru reifaðar hugmynd- ir um að komið yrði á kennslu í kvennarétti við lagadeildina. Var vel tekið í þá hugmynd og ákveðið að vinna áfram að henni í samráði við deildina. Foreldrar framtíöarinnar - vilji og væntingar Þann 6. maí var haldið málþing í tilefni af ári fjölskyldunnar árið 1994. Málþingið var haldið á Kornhlöðuloftinu og stóð frá kl. 10.30-14.00. Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóðfá- lagsfræðingur og fulltrúi félagsins í landsnefnd um ár fjölskyldunnar, hélt inngangserindi en aðrir framsögumenn voru Sigríður Jónsdóttir ABYRGÐAR BÓNUS Fjölskyldur sem vátryggja ALLT HJÁ ÁBYRGÐ fá allt aö 20% afsláttcA heimilistryggingu og 10% af öðrum vátryggingum nema öku- tœkjatryggingum og geta unniö sér rétt til 10% endurgreiðs/u iðgjalda. Þú nýtur einnig aukinnar bónusverndar og átt rétt á fríum bílaleigubíl í viku ef þú lendir í kaskótjóni! Kynntu þér kjörin hjá okkur TAKTUÁBYRGÐ! Vátryggingafélagið til efiingar bindindis og heilsu Lágmúla 5 - Reykjavík - sími 588 9700 ■■■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.