19. júní


19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 38

19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 38
framhald af bls. 35 takast megi að uppræta fordóma og venjur sem byggjast á hugmyndinni um vanmátt eða ofur- mátt annars hvors kynsins eða á viðteknum hlutverkum kynjanna. Ég mun gera þau ákvæði sem hér hafa verið nefnd sérstaklega að umtalsefni nú en samningurinn kveður á um fjölda annarra atriða, m.a. um jafnrétti til náms, heilsugæslu og félagslegrar þjónustu, svo eitthvað sé nefnt. Dómar falla konum í óhag Á síðasta ári féllu margir dómar hér á landi er snerta konur og kvenfrelsisbaráttu er urðu tilefni mikillar umræðu. Má hér nefna dóma í málum vegna örorkubóta stúlkna þar sem stúlkum voru dæmdar bætur á grundvelli kyn- ferðis síns, þrátt fyrir ótvíræð ákvæði jafnrétt- islaga og alþjóðlegra skuldbindinga sem leggja bann við mismunun á grundvelli kynferðis. Svo virðist sem iagatúlkun í umræddum dóm- um hafi leitt til niðurstöðu sem ekki tók tillit til umræddra ákvæða um bann við mismunun á grundvelli kynferðis en ef til vill er hluta skýringarinnar að leita í því að málin hafi ver- ið lögð þannig upp af verjandum stúlknanna að niðurstöðurnar hafi orðið þeim í óhag. Þá hafa fleiri dómar fallið sem mörgum þykja endurspegla fordóma og þröngsýni í garð kvenna og nægir þar að vitna til harðorðrar greinar í 1. tbl. Vogarinnar árið 1996, en þar er fjallað um dóma sem fallið hafa í málum sem höfðuð hafa verið af kærunefnd jafnréttismála. Þegar greinin var skrifuð höfðu fjórir dómar fallið í slíkum málum en síðan þá hefur enn einn bæst við. Niðurstaðan er alltaf á einn veg dómarnir hafa fallið konunum í óhag. í grein Vogarinnar er spurt þeirrar spurningar í lokin hvort dómarar landsins séu í stakk búnir til að takast á við ný réttarsvið (eins og jafnréttislög- gjöf) sem ekki hefur verið fjallað mikið um innan lögfræðinnar hér á landi. Spurningin á fyllilega rétt á sér, því staðreyndin er sú að áhersla á löggjöf og alþjóðasamninga um rétt- indi kvenna hefur ekki verið mikil í lagadeild Háskóla Islands, fræðimusteri íslenskra lög- fræðinga. Og þá er til lítils unnið að fullgilda alþjóðasamninga og setja lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, ef lagatúlkunin leiðir jafnan til þess að fram hjá þessum ákvæðum verður auðveldlega komist í dóms- niðurstöðum, þrátt fyrir skýrt ákvæði CEDAW- sáttmálans um að stjórnvöld skuli tryggja fyrir dómstólum landsins, og hjá öðrum opinberum stofnunum raunverulega vernd til handa kon- um gegn hvers konar misrétti og að þau skuli breyta eða afnema gildandi lög, reglugerðir, 36 AIþ j ó ö a Qa m venjur og starfshætti er fela í sér mismunun gagnvart konum. íslensk lagatúlkun á villi- götum? íslenskt réttarkerfi hefur byggt á því sem kallað er tvíeðli réttarins en í því felst m.a. sú grundvallarregla að þjóðréttarsamningar fá ekki sjálfkrafa lagagildi við fullgildingu þeirra heldur þarf að taka efni þeirra upp í íslensk lög eigi þeir að gilda sjálfkrafa fyrir íslenskum dómstólum. Dómstólar, stjórnvöld og þegnar ríkisins eiga að fara eftir landslögum þar til þeim hefur verið breytt með lögformlegum hætti í þá veru sem viðkomandi alþjóðasamn- ingur kveður á um. Því hefur í auknum mæli verið haldið fram af fræðimönnum á síðari árum að kenningin um tvíeðli réttarins verði æ erfiðari í framkvæmd og að ákvæði íslenskra laga beri að skýra til samræmis við mannrétt- indasáttmála sem fullgiltir hafa verið af ís- lands hálfu. Sumir íslenskir fræðimenn hafa gengið svo langt að fullyrða að ákvæði alþjóð- legra mannréttindasamninga séu nú hluti landsréttar og að ákvæði landslaga sem eru ósamþýðanleg mannréttindaákvæðum slíkra samninga verði að víkja. Þannig sé íslenskum dómstólum skylt að beita reglum slíkra samn- inga sem gildur landsréttur væri. Ekki verður lagt mat á það hér hvort slíkar kenningar séu réttar, þótt óneitanlega virðist til lítils að full- gilda alþjóðlega samninga ef ekki er ætlunin að beita þeim í raun við lagatúlkun og úrlausn- ir dómstóla. Það má líka velta því fyrir sér hvort ástæða sé til að lögleiða ákvæði CEDAW- sáttmálans í því skyni að tryggja frekari fram- gang efnis hans fyrir íslenskum dómstólum, en sú leið var farin með ákvæði Mannrétt- indsáttmála Evrópu, með lögum frá árinu 1994. Tilmæli CEDAW-nefndarinn- ar til íslenskra stjórnvalda I byrjun ársins 1996 komu íslensk stjórn- völd fyrir nefnd SÞ sem hefur eftirlit með sátt- málanum um afnám allrar mismununar gagn- vart konum og gerði nefndin nokkrar athuga- semdir við framkvæmd Islands á sáttmálanum í formi tillagna og tilmæla. Meðal annars er þar lagt til að stjórnvöld geri ráðstafanir til að tryggja að grundvallaratriði sáttmálans séu að fullu felld inn í íslensk lög og að íslenskir dómstólar geti framfylgt þeim. í því skyni er lagt til að framkvæmdar séu sérstakar aðgerðir til að kynna íslenskum dómstólum áætlun um upplýsingadreifingu og fræðslu varðandi sátt- n i n g a r málann og að hann verði kynntur sérstaklega innan dómskerfisins. Þá leggur nefndin til að íslensk stjórnvöld byggi upp skipulagða fræðslustarfsemi sem ynni gegn hefðbundnum hugmyndum um hlutverk kynjanna og beind- ist að því að opna augu barna og fullorðinna um jafnréttismál. Sérstaklega er að því vikið að ríkisstjórnin láti fella niðurstöður kvenna- rannsókna inn í endurskoðað námsefni í skól- um og hið sama verði gert í menntun og þjálf- un kennara til þess að auðveldara verði að út- rýma rótgrónum hugmyndum um hlutverk karla og kvenna. Fjölmörg fleiri atriði eru nefnd í athugasemdum nefndarinnar en hér hafa þau helstu verið rakin er snúa beinlínis að hinni margumtöluðu viðhorfsbreytingu og aðgerðarskyldu stjórnvalda til að breyta ríkj- andi ástandi í málefnum kvenna. Hlutverk óháöra félaga- samtaka I nágrannaríkjum okkar, einkum Dan- mörku, hafa óháð félagasamtök er starfa í þágu kvenna, leikið lykilhlutverk varðandi eftirlit með sáttmálanum um afnám allrar mismunun- ar gagnvart konum. Dönsk systursamtök Kven- réttindafélags Islands, Dansk kvindesamfund, hafa látið gera sérstakan upplýsingapakka um samninginn og staðið fyrir kynningu á honum. Kvenréttindafélag íslands hyggst nú láta kveða meira að sér en verið hefur á þessu sviði og á þessu ári er ætlunin að hefja sérstakt átak í þeim efnum. Landsfundur félagsins sem hald- inn verður í haust mun m.a. fjalla um samn- inginn og ætlunin er að standa fyrir sérstakri kynningu á honum ef unnt verður að tryggja fjármuni til þeirra hluta, en verkið er kostnað- arsamt. Væntir félagið þess að stjórnvöld sjái sér fært að styrkja framtakið svo unnt verði að uppfylla betur þær skyldur sem íslenska ríkið hefur tekist á hendur með fullgildingu sátt- málans. Nú þegar hefur félagið staðið fyrir fundi um jafnréttisfræðslu þar sem beinlínis var komið inn á hluta samningsskyldnanna en CEDAW-nefndin lýsir því einmitt yfir að efla þurfi almenna og sérstaka fræðslu um það svið er sáttmálinn nær yfir. Þá mun fulltrúi félags- ins sækja ráðstefnu Evrópuráðsins í sumar um hlutverk óháðra félagasamtaka í jafnréttisbar- áttunni og þar eru líkur á að reynsla systur- samtaka okkar í öðrum löndum geti kennt okk- ur nýjar áherslur og mögulegar leiðir til að ná fram markmiðunum. 19.jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS (SLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.