19. júní


19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 73

19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 73
Frá starfi KRFI námsstjóri, Þorvaldur Karl Helgason forstöðu- maður fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Sóley Bender lektor, Sólveig Þórðardóttir ljósmóðir, Sigurður Snævarr hagfræðingur og Gígja Sig- urðardóttir og Sveinn Helgason töluðu í nafni foreldra. Umræðustjóri var Ingibjörg Broddadóttir, deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneyti. Málþingið sóttu 25 manns. Launamisréttið eykst - Hvað er til ráða? Þann 16. maí var haldinn morgunverðar- fundur um skýrslu Jafnréttisráðs um launa- myndun og kynbundinn launamun, á Hótel Sögu. Lára V. Júlíusdóttir, fráfarandi formaður Jafnréttisráðs, Guðrún Hallgrímsdóttir verk- fræðingur og Guðrún Guðmundsdóttir lækna- uemi héldu framsöguerindi en að því loknu voru umræður. Fundinn sóttu 65 manns og í lok fundar var samþykkt áskorun til stjórn- valda um að grípa strax til aðgerða til að upp- ræta kynbundið launamisrétti, en Alþingi ís- lendinga var sett sama dag. Ályktunin var send öllum Alþingismönnum og félagsmálaráð- herra. Einoka mæður börnin sín? Þann 14. september var haldinn morgun- verðarfundur á Hótel Sögu um föðurhlutverk- ið. Svíinn Göran Wimmerström, sem þekktur er í heimalandi sínu fyrir feðrafræðslu og með- ferð á körlum er beita ofbeldi, hélt erindi um þátttöku feðra í uppeldi barna sinna á fyrstu æviárum þeirra. Göran er einn af frumkvöðl- unum í jafnréttisbaráttu karla í Svíþjóð en Kvenréttindafélag íslands átti þátt í að undir- búa komu hans hingað í samstarfi við karla- nefnd Jafnréttisráðs og jafnréttisnefnd Reykja- víkurborgar. Málfríður Gísladóttir var fulltrúi KRFI í undirbúningnum. Fundarstjóri á fund- inum var Hrund Hafsteinsdóttir en hann sóttu 36 manns. 24. október - 20 ár frá kvennafrídegi Þann 24. október stóð félagið ásamt fleiri samtökum að undirbúningi hátíðarfundar í ís- lensku óperunni vegna 20 ára afmælis kvenna- frídagsins, 24. október 1975. Að fundinum stóðu fulltrúar stjórnmálaflokkanna, ASI, BSRB, SFR, KÍ og KRFÍ auk Skrifstofu jafnrótt- ismála. Framkvæmdastjórn skipuðu Steinunn V. Oskarsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir og Bryndís Hlöðversdóttir. Á hátíðarfundinum var fluttur leikþáttur sem Þórhildur Þorleifs- dóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir sömdu, en Þórhildur leikstýrði jafnframt. Heiðursgestur fundarins var frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri, hélt hátíðarræðu. Konur úr sönghópnum Áfram stelpur sungu gömul baráttulög. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir var kynnir á fundinum en gestir voru rúmlega 250 talsins. Að loknum fundinum var fjölmennt í Hlaðvarpann. Formenn, kjör og kerlingar Þann 16. nóvember var haldinn fundur á Grand Hótel í tilefni af 80 ára afmæli kosninga- réttar kvenna á árinu. Forystumenn stjórnmála- flokkanna voru beðnir um að svara nokkrum áleitnum spurningum um stöðu kvenna innan flokkanna og um stefnu flokkanna í jafnréttis- málum. Framsögumenn á fundinum voru Rannveig Guðmundsdóttir frá Alþýðuflokki, Friðrik Sophusson frá Sjálfstæðisflokki, Margét Frímannsdóttir frá Alþýðubandalagi, Kristín Einarsdóttir Kvennalista, Jóhanna Sigurðar- dóttir frá Þjóðvaka og Valgerður Sverrisdóttir frá Framsóknarflokki. Fundarstjóri var Hansína B. Einarsdóttir en fundinn sóttu um 70 manns. Jólafundur Jólafundur félagsins var haldinn 5. desem- ber í kjallara Hallveigarstaða. Undirbúnings- nefnd skipuðu Jónína M. Guðnadóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir, Dóra Guðmundsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir og Edda H. Steingrímsdóttir. Ellen Ingvadóttir flutti stutt ávarp og bauð fundargesti velkomna, séra Auður Eir flutti hugvekju og lesið var upp úr nýútkomnum bókum. Þá söng Diljá Sigursveinsdóttir við pí- anóundirleik Önnu Emilíu Pétursdóttir en Soffía Guðmundsdóttir undirbjó tónlistarflutn- inginn. Fundinn sóttu 47 manns. framhald á bls. 72 Jafnréttisfræðsla Þann 23. febrúar 1996 var haldinn morgun- verðarfundur um jafnréttisfræðslu á Korn- hlöðuloftinu. Leitað var svara við spurningum 71 19.júní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ISLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.