19. júní - 19.06.1996, Blaðsíða 19
Jafnréttisbaráttan
í þessari skýrslu er einnig að finna
kannanir á því hvers vegna fólk skilur, en
tíðni hjónaskilnaða á íslandi er geysimikil.
Fram kemur að í flestum tilvikum er það
konan sem á frumkvæði að skilnaðinum og
þær orsakir sem þær tína til koma ekki á
óvart. Erfileikar í tjáskiptum og ójöfn verka-
skipting á heimili. En það sem kemur kannski
á óvart er; að það sem karlar segjast sakna
mest úr hjónabandinu er kynlíf og félagsskap-
ur eiginkonunnar. Það sem konur segjast
sakna mest er tekjur eiginmannsins.
Eg gæti svo sem haldið áfram endalaust að
telja upp þær niðurstöður sem þessi skýrsla
hefur að geyma, en óg bendi hér með á skýrsl-
una sjálfa. En ég verð að segja eins og er, mér
varð um og ó að komast að þessum niðurstöð-
um, eitthvað er ekki eins og það á að vera.
Hvort sem rekja má það til menningarlegra or-
saka, skattkerfisins eða sjálfstæðis íslenskra
kvenna. Það er líka staðreynd að á Islandi er
minnstum fjárframlögum varið í þennan mála-
flokk (hvað sem hann kallast, kannski einka-
mál kvenna) í samanburði við önnur
Norðurlönd. En ef þessar orsakir eru
svona menningarlegar, af hverju kemur þá
ekki kerfið ekki til móts við þær? Og svona
ein spurning í lokin; hver er hlutur karla í
þessu sem tvímælalaust gæti kallast vanda-
mál? Það er efni í aðra grein.
Þjónusturáðgjafi Heimilislínunnar aðstoðar þig við að
koma skipulagi á Ijármál heimilisins. Ejárhagsáœtlun og
heimilisbókhald tryggja betri nýtingu fjármuna þinna.
Reglubundinn sparnaður verður að veruleika.
Pantaðu tíma hjá þjónusturáðgjala
í næsta útibúi eða hringdu og fáðu
upplýsingar í sima 91-603272
®BUNAÐARBANKl
ÍSLANDS
HEIMILISLINAN
- Eirifaldarfjármálin
„Peningamir nýtast okkur miklu betur
eftirað við fengum greiðsluáætlun hjá
bankanum. Núna getum við lagt fyrir
dágóða upphæð í hverjum mánuði."
Hclga Birgisdóttir. húsmóðir/ljósmóðir
1 7 19.júní
RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS