19. júní - 19.06.1996, Page 29
Konan sem heillaði heiminn
Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands 1980-1996
ðfararnótt 30. júní 1980 hefur orðið ógleymanleg
mörgum íslenskum konum og körlum. Undir
morgun varð ljóst að Vigdís Finnbogadóttir hefði
náð kjöri sem forseti Islands, sá fjórði í röðinni frá
lýðveldisstofnun.
Fólk þusti út á götur og tók stefnuna að heimili Vigdísar á
Aragötu. Eg var ein af íjöldanum og stóð þarna háólétt í
morgunsólinni. Eg man hvernig gæsahúðin spratt út á mér
tvíbreiðri þegar Vigdís kom út á svalirnar, klædd hvítri
handprjónaðri lopadrakt sem einhver listfeng kona haföi sent
henni að gjöf. Hún brosti og veifaði til mannfjöldans. Eg man
ekki hvort hún sagði eitthvað, ég man bara að það hrukku tár af
augum mínum eins og svo margra annarra, djúp gleði streymdi frá
manni til manns og maður hugsaði bara hvað íslenskir
sumarmorgnar geta verið einstaklega vel til þess fallnir að lifa
heimssögulega atburði.
Því þetta var heimssögulegur atburður.
Vigdís Finnbogadóttir var íyrsta konan í heiminum sem haföi
verið kosin þjóðhöföingi í lýðræðislegum kosningum.
Síðan eru liðin f)ögur kjörtímabil og 16 ár. Allan þann tíma
hefur henni tekist að halda athygli heimsins, jafnt á sinni eigin
persónu og forsetaembættinu sem og íslensku þjóðinni. Hún hefur
farið langtum víðar sem fulltrúi íslands en tyrri forsetar gerðu, sem
sumpart stafar af bættum samgöngum og opnari veröld, en einnig
af einstakri stöðu hennar í heiminum og meðfæddum hæfileikum
til þess að koma fram og umgangast fólk, jafnt háa sem lága, landa
sína sem fulltrúa annara þjóða. Vigdís er kona sem hefur heillað
heiminn.
Það eru ekki síst íslendingar sem hafa búið erlendis sem skynja
hvílík landkynning Vigídís Finnbogadóttir hefur verið. Það getur
verið dapurt á erlendri grund að tilheyra þjóð sem fáir hafa heyrt
getið um, tala tungu sem fólk trúir ekki að sé til og koma frá landi
sem menn vita ekki hvar staðsett er á jarðarkringlunni, en hressast
svo, því víst rámar fólkið í eitt: „Jú, alveg rétt, það eruð þið sem
hafið konu fyrir forseta. Hún heitir Vigdís!”
Tími Vigdísar Finnbogadóttur á forsetastóli er einstætt tímabil í
sögu íslands sem mun vafalítið verða skoðað sérstaklega af
sagnfræðingum framtíðarinnar. Það er of snemmt að meta
heildaráhrif Vigdísar á framvindu sögunnar en á því er ekki
nokkur vafi að fordæmi hennar hefur haft mikið gildi fyrir
íslenskar konur og konur á öllum Norðurlöndum. Það hefur haft
áhrif á konur um allan heim. Þar sem staða kvenna hefur batnað er
það m.a. fyrir áhrif brautryðjenda á borð við Vigdísi
Finnbogadóttur. Það að Vígdís, forseti Islands, var fengin til þess
að opna kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kína síðastliðið
haust er til vitnis um þá viðurkenningu og virðingu sem hún nýtur
á alþjóðavettvangi. Sama má segja um fyrsta alþjóðlega fund
kvenleiðtoga í heiminum sem haldinn var í Stokkhólmi nú í
byrjun maí. Vígdís Finnbogadóttir var hinn sjálfsagði forseti þess
fundar.
Ferill Vigdísar verður ekki rakinn í smáatriðum í þessu blaði, en
nú þegar sú stund er að renna upp að hún láti af embætti vill
19.júní heiðra hana með því að birta svipmyndir frá glæsilegum
ferli hennar á forsetastóli.
Islensk kvennahreyfing og íslenskar konur eiga Vigdísi
Finnbogadóttur mikla þökk að gjalda. Og ég leyfi mér að ljúka
þessari grein á orðsendingu sem mun á sinn hátt halda gildi sínu
einnig eftir að hún hefur látið af störfum.
Forseti minn, ég hneigi mig djúpt.
Steinunn Jóhannesdóttir