19. júní


19. júní - 19.06.1996, Page 44

19. júní - 19.06.1996, Page 44
• kð/et að lat. drauma Okkar ræ „Mitt mottó er að maður á að finna út hver draumurinn er í lífinu og svo á maður að elta hann. Stundum krefst það þess að maður þarf að vinna eins og hestur og það hef ég gert,“ segir Sólveig Þorvalds- dóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins. Sólveig er 34 ára, hefur verið helming æv- innar í björgunarsveit og stokkið 400 sinnum í fallhlíf. Hún er ógift og barn- laus, segist ekki hafa haft tíma fyrir fjölskyldu- líf. „Annars er búið að spyrja mig svo oft um þetta í fjölmiðlum upp á síðkastið að maður ætti kannski að fara að auglýsa eftir góðum manni. Það hefur bara verið svo mikið flakk á mér. Starfið hefur gengið alveg fyrir og mór hefur tekist að sameina það áhugamálum mín- um. Mér finnst ég ekki hafa þurft að fórna neinu. Líf mitt hefur þróast á þennan veg og ég er mjög ánægð með þá þróun. Svona vil ég hafa lífið og ef einhver annar vill hafa lífið einhvern veginn öðruvísi, til dæmis giftast, eignast börn og hugsa um fjölskyldu, og ef það er hans draumur þá finnst mér það líka mjög fínn draumur. Menn eiga bara að leggja sig fram um að vera góðir í því sem þeir gera, hvað sem það er. Eg held að það skipti ekki máli hver draum- urinn er svo lengi sem ekki er verið að skaða aðra, menn eiga að elta hann.“ Almannavarnir eru komnar vestur í bæ í húsnæði Landhelgisgæslunnar. Þar eru ekki venjuleg málverk á veggjum heldur blasa við skammbyssur í glerskápum og fágaðir sprengjuoddar standa sperrtir á gólfinu. Skrif- stofa Sólveigar er samt ekki á neinn hátt frá- brugðin hefðbundnum skrifstofum; tölva, pappír, pottaplanta og kaffikrúsir, meira að segja súkkulaðikex á undirskál. Hvaða leið skyldi hafa legið þangað inn? „Það yrði löng og margþætt saga að tína til allt sem ég hef gert sem hefur átt þátt í að und- irbúa mig fyrir þetta starf. Eg lærði byggingar- verkfræði í Háskóla Islands og vann hjá Istaki í tvö ár sem verkfræðingur. Það var mjög gott að vinna þar. Eg er vel heima hjá mér þegar ég er að vinna svona úti í mörkinni, enda vann ég hjá Kópavogsbæ í mörg sumur við gatnagerð og malbikun. Mér líður jafnvel hvort sem ég er í drullugallanum að moka malbik eða í fínni ráðherraveislu. Eftir það leitaði ég að leið til að sameina frama minn í verkfræðinni og áhugamál mitt í sambandi við björgunarstörf. Eg byrjaði í björg- unarsveit 1979, í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, og 1986 var ég farin að vinna í hlutastarfi við Björgunarskóla Landssambands Hjálparsveita Skáta, nú Landsbjargar. Þá kynntist ég fyrst al- þjóðabjörgunarstarfsemi, fór út á ráðstefnu og komst þar í kynni við prófessor sem tengist al- þjóðabjörgunarsveit Bandaríkjanna. Síðan fór 42 19.jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS (SLANDS

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.