19. júní - 19.06.1996, Síða 48
framhald af bls. 45
Auk þess hef ég mjög gaman að því að tengja
saman hópa fólks sem hefði aldrei grunað að
ætti samleið. Fyrir fáeinum árum kom hingað
hundaþjálfari sem kenndi björgunarfólki að
þjálfa hunda til leitar í vatni. Þá þurfti að fá kaf-
ara til að fela sig í vatninu, þannig að allt í einu
voru hundamenn og kafarar farnir að vinna
saman. Þessir hópar hafa hingað til ekki þótt
eiga margt sameiginlegt."
Hvað með sjálft leitarstarfið. Ertu enn virk í
björgunarsveit?
„Ég er enn í hjálparsveitinni í Kópavogi þótt
ég hafi ekki starfað mikið síðastliðin sjö ár, fór
reyndar í útkallið til Flateyrar því þá var ég
stödd hér í síðbúnu sumarleyfi. Sem fram-
kvæmdastjóri Almannavarna kem óg ekki til
með að verða í útkalli með hjálparsveitinni, ef
stórslys verður, heldur mun ég vinna að sam-
ræmingaraðgerðum á björgunar- og hjálparstarf-
inu ffá stjórnstöð almannavarna."
Ermikið um konurí björgunarsveitunum?
„Konur eru í miklum minnihluta, þær virð-
ast hafa minni áhuga og það er bara allt í lagi.
Það á ekkert alltaf að hafa „fifty-fifty" alls stað-
ar. Hins vegar er það út í hött, ef það eru ein-
hverjar konur með áhuga að banna þeim að vera
með af því að þær eru konur, rétt eins og það er
fáránlegt að troða konum eitthvert til þess eins
að það verði „fifty-fifty“. En þær konur sem hafa
komið inn hafa yfirhöfuð staðið sig mjög vel,
þótt auðvitað séu alltaf einhverjar lélegar sem
þurfa að hætta, það á að sjálfssögðu jafnt við um
6.280.-
Frúarbolir
frá
SDQDDSQflDfir
Trium/ih
Margar gerðir
og litir
Verðfrá 3.790.-
UTILIF
H
F
Álfheimum74- 104Reykjavík
■
Vi ðtaI
konur og karla.“
Hvað þarfþá til að lifa af starf í björgunar-
sveit?
„í fyrsta lagi þarf mikinn áhuga og mikinn
dugnað. Fyrstu árin er maður að þvælast uppi á
fjöllum allar helgar. Maður þarf að hafa gaman
af því að fara á fjöll því 90% af útköllunum snú-
6.870.-
46 19.júní
RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS