19. júní


19. júní - 19.06.1996, Page 53

19. júní - 19.06.1996, Page 53
Agostino Carraci 1584-87. ^ -jtfk '■''-''fSwk H'iii mmjm Ay t Wvj villigötum. Klám hefur því haft fáa málsvara. Nú víkur svo við að vaxandi fjöldi menntamanna er ikrinn að taka upp hanskann fyrir klámið. Þetta er nú meðal annars tilkomið vegna þess hvernig hin Pólitíska umræða hefur þróast. Ykjukennt tal um klám sem flæðir óáreitt um tölvunet hefur verið úotað sem tylliástæða fyrir ríkistjórnir til að sljórna umferð um Internetið með valdboði. Litið er á tilraunir til að hemja klám með valdboði sem varasama þróun í átt til aukinnar ritskoðunar, og eftn eitt skref valdhafa í átt að því að hafa stjórn á vúundarlífi fólks. Hversu langt á að ganga í því að reyna að innprenta í fólki sjálfvirka ritskoðun á eigin draumórum og fantasíu? Nú er sú spurning lafnvel rædd hvort verið geti að menn eigi rétt á klámi. * leit að nýrri sýn þessi umræöa um klám getur gefið villandi mynd af því sem er aö gerast meöal listamanna. Þaö er ekki nekt, eöa form mannslíkamans, eöa erótískar lvsingar á ástarleikjum, sem listamenn eru fást viö í áag. Líkaminn, sem vettvangur sálrænna og félags- legra átaka, er oröinn eitt af brýnustu viðfangsefnum lístamanna, og einnig fræðimanna. Það vill svo til að konur hafa verið leiðandi í Þessum efnum um nokkurt skeið. Spurningin Sem þær hafa staðið frammi fyrir er þessi: hvernig eiga þær að lýsa eigin hugarheimi á vettvangi þar Sem karlmenn hafa verið allsráðandi um aldarað- lr? Margir líta svo á að möguleikar kvenna til að tjá sig um líkamann og hið kynferðislega hafi tak- markast við þann tjáningarmáta og hefðir sem ^eim hafa staðið til boða, og hefðirnar og tjáning- ermátarnir hafa verið mótaðir af karlmönnum. Það nrá kannski segja að konur hafi búið við tákn- tænt ofríki karlmanna. Margt af því athyglisverð- asta sem hefur verið gert í myndlist síðustu árin hefur verð gert af konum sem hafa reynt að glíma við þetta ástand: Cindy Sherman, Jenny Holzer, Barbara Kruger, Rosmarie Trockel, Annette Messager, og svo mætti lengi telja. Um þessar mundir er klám umdeilt, spenn- andi og í sviðsljósinu. Vera má að einhverjir lista- menn notfæri sér það til að draga að sér athygli. Slíkar tískur koma og fara. Eftir stendur að líkam- inn, kynlífið, þrár og hugarórar eru viðfangsefni sem listamenn munu ávallt takast á við. Og þeir munu ávallt lenda upp á kant við almennt sam- komulag um velsæmi, skráð eða óskráð. I því andrúmslofti upplausnar og óvissu sem nú ríkir í menningarsamfélögum Vesturlanda þá geta þeir gegnt mikilvægu hlutverki í því að lýsa marg- breytileika mannlegrar reynslu, brjóta upp stirðn- aðan hugsunarhátt og skapa nýja sýn á hlutina sem víkkar sjóndeildarhringinn og gefur okkur færi á sjá hlutina frá ólíku sjónarhorni. Þetta á ekki síst við um þau svið mannlegrar reynslu sem eru hvað viðkvæmust. Greinina vann Gunnar upp úr fyrirlestri sem hann flutti á kynlegum dögum Stúdentaráös. Ljósmynd Roberts Mapplethorpes frá 1985. Menningarmiöstööin Gerðuberg - eitthvað fyrir þig! Gerðubergi -111 Reykjavík Sími 567 40 70 • Fax 557 91 60 51 19.júní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.