19. júní - 19.06.1996, Qupperneq 55
erótík eöa klám
Annie Sprinkle um kynlíf á tuttugustu öldinni
Svört og hvít nekt.
Ljósmynd eftir
Guglielmo Pliischow frá
1890.
1. Bindindi getur verið hættulegt heilsu þinni.
Bindindi getur orsakað geigvænlegan kvíða, von-
leysi, depurð, veikindi, ofbeldiskennd auk margra
annarra eyðileggjandi þátta. Ef þér þykir kynlíf gott,
hættu því þá ekki. Það er of dýrmæt gjöf.
2. Endurskilgreindu hugmyndir þínar um kynlíf.
Vegna þess að við lifum á tímum AIDS er mikilvægt
að finna nýjar leiðir til þess að vera náin og tjá kyn-
langanir okkar og tilfinningar. Kynlíf snyst um orku,
ekki um hvernig líkamar snertast. Einbeittu þér að
orkunni.
3. Sættu þig við þá staðreynd að þú lifir
Á TÍMUM AIDS.
Hættu að kvart yfir því að kynlíf sé ekki eins og áður
og að þú hatir smokka. Alger sátt við staðreyndina
um AIDS losar þig undan oki hræðslu og vonleysis.
Sjáðu fyrir þér örugga og fullnægjandi framtíð fyrir
kynlíf þitt og kynlíf komandi kynslóða.
4. Láttu kynorkuna flæða.
Ef þú hefur bælt kynhneigð þína vegna hræðslu við
AIDS þarftu þess ekki lengur. Komdu þérí skilning
um að AIDS er vírusi að kenna. Kynhneigð þín or-
sakar ekki AIDS. Það eru trilljón, billjón, milljón leið-
ir til að lifa kynlífi án þess að eiga það á hættu að
fá AIDS eða smita einhvern annan. Njóttu þeirra
leiða.
5. Elskastu með jörðinni og himninum.
Jörðin okkar og himininn eru átakanlega menguð.
Elskastu með þeim og þau munu elskast með þér.
Sendu þeim af kynorku þinni. Þau elska hana.
6. Taktu þér tíma til að njóta kynlífsins.
Ef þér finnst kynlíf gott - veittu þá þér og öðrum ást-
ríka munaðarfulla kynferðsilega unun. LOSAÐU ÞIG
VIÐ SJÓNVARPIÐ.
7. Dæmdu hvorki þig né aðra.
Við erum öll á réttum stað og stund í kynlífsþroska
okkar. Kynlíf eins og annað í lífinu gengur í gegnum
ýmis breytingartímabil. Leyfðu öðrum að fara sínar
leiðir. Leyfðu þér að fara þína leið.
8. Lærðu um andardrátt þinn.
Kynferðisleg og fullnægjandi orka búa í andardrætt-
inum. Öndunartækni gerir kynlífið kraftmeira og full-
nægjandi.
9. Vertu meðvitandi um að þú getur valið
hvernig þú tjáir þig kynferðislega: sjálfs-elskandi
eða sjálfs-eyðandi. Margir loka á kynhneigð sína
vegna þess að þeir hafa áttað sig á að þeir hafa
afar sjálfseyðandi hvatir tengdar kynlífi. En þú hefur
val, rétt eins og um það hvað þú borðar. Það er til
rusl-kynlíf, heilbrigt -kynlíf og eöal-kynlíf. Reyndu að
taka sjálfselskandi ákvarðanir.
10. Hugsaðu vel um líkama þinn.
Borðaðu vel, stundaðu reglulega hreyfingu og dekraðu
við líkamann með löngum böðum og óheyrilega dýrum
snyrtivörum.
53 19 .jÚní RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ISLANDS