Sólskin - 01.07.1935, Page 10

Sólskin - 01.07.1935, Page 10
boði Jesú Krists, að slíðra sverðin og vega ekki með vopnum. Allir menn eiga að óska þess og vona það, því að stríð og styrjaldir eru það Ijótasta og heimsku- legasta, sem þjóðirnar hafa nokkurn tíma aðhafst. En styrjaldir munu hætta, þegar stríðunum lýkur í hjörtum manna, þegar sjálfselskan víkur sæti fyrir bróðurást, og mannúð, drenglyndi og ráðvendni er meira virt en auður, völd og virðing. En þótt þjóðirnar hætti að berjast og læri að lifa í friði, þá halda þær áfram að elska og virða fánana sína. Nú verður fánanum okkar lýst. Það er rauður og hvítur kross á bláum feldi. Mest ber á bláa litn- um. Hann er aðallitur Islands. Bláminn er allsstaðar um heiðan himinn og haf, bláf jallageim, ár og heiðar- vötn. En efst yfir bláum möttli fjallanna skína hvítir jöklar og hefja björt höfuð hátt í himinbláma. Á það á hvíti liturinn í fánanum að minna. En þótt ættjörðin gangi oft í hvítavoðum frosts og fanna, á hún yl í æðum og eld í hjarta. Á það minnir rauði liturinn. Áttundi biti. Sjá lögmál skógarins letrað jafn langlíft og festingin blá. Úlfum, sem hlýða því, heppnast, en hver, sem það brýtur, er frá. 8

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.