Sólskin - 01.07.1935, Side 61
Jósafat.
Myndið hring og haldist í hendur. Látið tvo ylf-
inga vera innan í hringnum, og bindið fyrir augun
á öðrum þeirra. Sá „blindi“ kallar „Jósafat", og
hinn verður að svara undireins: „Eg er hér“. Sá
„blindi“ rennur þá á hljóðið og reynir að ná í
„Jósafat“. Þegar hann hefir náðst, eru aðrir tveir
ylfingar settir inn í hringinn, og svo koll af kolli.
Að grípa prikið.
Myndið hring. Inni í hringnum standi ylfingur,
sem styður aópskaft (stutt), með því að hvíla hend-
ina á efri enda þess. Því næst tekur hann allt í einu
hendina af prikinu og kallar um leið á einhvern í
hringnum með nafni. Sá á að reyna að grípa prik-
ið, áður en það dettur á gólfið. Ef honum heppnast
það, fer hann í miðju hringsins og styður prikið,
og Leikurinn heldur áfram eins og áður. Mistakist
honum, verður sá, sem styður prikið, kyrr, en kall-
ar á annan ylfing. (Ekki má halda prikinu, heldur
aðeins styðja það, með því að ýta lófanum á enda
þess.)
59