Sólskin - 01.07.1935, Page 22
sýnist það allt hvítt, eins og óskrifað blað. En ef
betur er að gáð, þá sjást litlir blettir og för, og ef
þú ert læs á þau, hafa þau margt í fréttum að segja.
Við skulum taka okkur göngu út í snjóinn og vita,
hvað hann hefir að segja okkur.
Hvað er nú þetta? Hér hefir snjótittlingur verið
á ferð. Hvernig fer eg að vita það? Hér á landi eru
ekki aðrir smáfuglar á veturna. Þó eru þrestir hér
einstöku sinnum, en þeir hafa stærri spor og hoppa,
svo að báðir fætur eru jafnframarlega, hlið við hlið,
eins og aðrir smáfuglar sem lifa í trjám. Hænuspor-
in eru auðþekkt með þrjár tærnar fram og enga
aftur. Krummasporin eru langstærst. Sporrjúpunn-
ar eru lík sporum hænunnar, að öðru leyti en því,
að rjúpufæturnir eru kafloðnir, svo að hárin koma
njður aftan við sporin.
Fuglar, sem lifa í vatni, slabba með flata fætur
og tærnar snúa inn. Svo er um önd og gæs.
Hvað er nú þetta?
Hér hefir snjótittlingurinn numið staðar og flog-
0
Kanína á ferð.
Athugið spor hennar í snjónum.
ist á við brauðmola, sem hann hefir náð í. Svo hefir
hann hoppað með hann í nefinu, af því að hann
20