Sólskin - 01.07.1935, Side 23
hefir verið of stór til þess að gleypa hann. Það sést
á farinu eftir hann í snjónum. — En ekkert af hon-
um sést hér, og ekki hefði hann getað etið hann
allan, svo að hann hlýtur að hafa borið hann áfram
í nefinu. —Sjáið, þarna liggur molinn, og sporin ná
fast að honum. En hvað er þetta, sem liggur þarna
þvers yfir slóð snjótittlingsins? Það er slóð eftir kan-
ínu. Litlu lengra burtu liggur brauðmolinn, þar sem
fuglssporin enda. Hann hefir flogið upp.
Má vera, að kanínan hafi styggt hann. Nei, það
getur ekki verið, því að fuglssporin liggja ofan á
sporum kanínunnar. Hann hefir verið hér á eftir
henni. Svo hefði kanínan líklega hirt molann, ef
hann hefði orðið hér á leið hennar.
En hvað hef.ir getað komið snjótittlingnum til
að sleppa molanum og fljúga upp?
Ó, nú sé eg.
Hér eru önnur fótspor. Hver er það, sem hefir
gengið svona varlega. Afturfæturnir hafa seilst
&
*>
Frú kisa á veiðum.
fram undir framfótasporin, svo að það lítur út fyrir
að hér hafi v,erið gengið á tveim fótum.
Það er frú kisa. Hún hefir verið á veiðum líka.
21