Sólskin - 01.07.1935, Síða 33
hugsa svona: „Hvaða gagn er að læra svo lítilfjör-
legt?“ En í þetta skipti hefði verið hægt að bjarga
þremur mannslífum, hefðu menn kunnað nógu vel
að hnýta hnúta. Þegar köðlunum var rennt niður
frá brúnni, hefði átt að hnýta á þá eina eða tvær
lykkjur handa hinu dauðvona fóiki, til þess að
stinga örmum sínum eða fótum í. En á köðlunum
voru hvorki hnútar eða lykkjur, og fólkið, sem átti
að nota kaðlana til þess að bjarga sér, kunni ekki
að hnýta góða lykkju eða duglegan hnút, — það
gat ekki bjargað sjálfu sér á þennan hátt.
Hver ylfingur verður að kunna vel að hnýta
hnúta. Margir drengir eru mestu klaufar að hnýta
hnúta. Þeir hnýta kannske hnút á snæri eða kaðal,
sem þeir sennilega geta elcki leyst aftur. En þegar
reynir á hnútinn, leysir hann sig sjálfur, einmitt
þegar mest ríður á, að hann dugi sem best. Þetta
væri ekki gott fyrir sjómennina, sem verða að
treysta því, að hvert band sé öruggt, þó að á reyni.
Það er mjög auðvelt að læra að hnýta hnúta, og
jafnskjótt og þú hefir lært þá sjálfur, getur þú
kennt öðrum þá. Til þess að fá fyrstu stjörnuna,
verður þú að læra fjóra algengustu hnútana. Not-
aðu reipi eða kaðal, en ekki snæri, er þú ert að
læra þá. Þegar þú heldur, að þú kunnir þá vel,
skaltu reyna að hnýta þá í myrkri eða þegar bund-
ið er fyrir augu þín. Ef til vill muntu þá komast að
raun um, að þú ert ekki eins snjall eins og þú
hélst. En mundu, að ekki er víst, að alltaf sé bjart,
er þú þarft að hnýta hnút. Það getur verið, að þú
liggir úti í tjaldi og stormurinn ætli að feykja því
31