Sólskin - 01.07.1935, Side 32
maðurinn og kona hans æfi sinni, undir öldum ís-
kaldrar iðunnar.
Hnútar.
Það er auðvelt að vita hlutina eftir á, en þessi
atburður er verður þess, að um hann sé hugsað.
Hvað myndir þú hafa gert, of þú hefðir verið þarna
viðstaddur? Það er skylda hvers ylfings að hugsa
sér ráð og framkvæma það, þá er svona atburðir
koma fyrir.
Skátaforingi í Kanada sagði mér, að hann hefði
verið á ferð í járnbrautarlest skömmu eftir að slys
þetta vildi til. Sumir ferðamannanna voru að tala
um þennan hryllilega atburð. Þeir vissu ekkert um,
að skátaforinginn var með þeim í lestinni, en einn
þeirra sagði: „Eg held, ef skáti hefði verið þarna
viðstaddur, þá hefði hann fundið eitthvert ráð til
þess að bjarga veslings fólkinu". Þarna getur þú
séð, hvaða kröfur menn gera til skátanna nú á
tímum. Þú skalt því alltaf vera viðbúinn að leysa
af hendi það, sem heimtað er af þér.
Maður sér vel á eftir, en það mundi vera gagn
og gaman að hugsa um, hvað hefði verið hægt að
gera þarna, svo að ef eitthvað svipað kæmi fyrir
aftur, og þú værir þar viðstaddur, þá vissir þú,
hvað til bragðs skyldi taka.
Hvað myndi skáti hafa gert?
Einu skulum við taka vel eftir, er við tölum um
þetta slys, og það er, hve nauðsynlegt er að kunna
að hnýta hnúta, og það kunna allir skátar. Margir
30