Sólskin - 01.07.1935, Page 36

Sólskin - 01.07.1935, Page 36
þekkir hvern boða og blindsker við strendurnar. Hann fer í litla bátnum sínum út á sjóinn í vondu veðri, þoku og stormi, og oft þegar hafnsögumað- urinn getur ekki hjálpað skipum, sem þurfa á að- stoð úr landi að halda. Leiðsögumaðurinn býður hjálp sína fyrir litla borgun þeim skipum, sem geta ekki fengið hinn eiginlega hafnsögumann. Einnig er hann oft viðlátinn, þegar skip kemst í hættu á grynningum eða skerjum. Til eru margar sögur um hina miklu hjálp, sem menn þessir hafa veitt ferðamönnum. Þeir verða að vera hraustir og harðgerir menn, er sækja út á sjó- inn í litlum bát í vondum veðrum, oft kaldir, votir og svefnvana og matarlitlir. Þeir þekkja skipaleiðirnar, jafnvel í þoku, þá er ekkert vísar leið. Líf leiðsögu- mannsins er hörð barátta. Hann er alltaf tilbúinn að Ieggja það í hættu, öðrum til hjálpar. Hann er sannur sjóskáti. Hér á landi eru ekki til sjóskátar. En þið munuð hafa heyrt margar sögur um dáð, dug, fórn- fýsi og hjálp fólksins austur í Skaftafellssýslu, á Suður-Nesjum eða annars staðar, þar sem sjómen* hafa brotið skip sín við ströndu hér á landi, hverr- ar þjóðar sem þeir hafa verið. Fólkið á bæjunum lætur þá hátta í rúm sín, og hjúkrun er veitt eins og ▼it og kunnátta er til. Matföng eru fram borin, hestar eru lánaðir og fylgdarmenn ljá þeim lið sitfc langar leiðir. Sjómenn. Þið hafið, ef til vill, heyrt eða lesið um gömlu hákarlamennina. S4

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.