Sólskin - 01.07.1935, Blaðsíða 52
að anda gegnum nefið með því að binda munninn
aftur dag og nótt. Þeir gera þetta til þess að koma
í veg fyrir hrotur, sem eru algengar hjá sofandi
fólki með opinn munn. En það er hættulegt fyrir
Rauðskinnann að hrjóta, þar sem óvinir eru á
næstu grösum. Þeir renna á hljóðið og geta orðið
að meini.
Neglumar.
Hermenn Japana eru mjög hreinlegir, eins og
þjóðin yfirleitt. Þeir verða að þvo sér um hendurn-
ar undan hverri máltíð og mega aldrei hafa óhrein-
ar neglur. Þetta er talið auka mjög heilbrigði.
Það er líka skiljanlegt, því að sóttkveikjurnar,
sem sveima um í loftinu, lifa góðu lífi í allskonar
óhreinindum, og þeim þykir ágætt að fela sig undir
nöglunum. Þess vegna skaltu halda höndunum
hreinum, þegar þess er kostur, og þvo þér alltaf og
hreinsa neglurnar áður en þú matast. Klipptu negl-
urnar á höndum og fótum, svo að þær verði aldrei
of stórar.
Fólk verður stundum fótaveikt og halt af því að
nöglin á annari stóru tánni vex inn í hina öðrum
megin. Þetta kemur oftast af því, að nöglin hefir
orðið of löng, og skórinn hefir þrýst henni niður í
tána. Þess vegna skaltu klippa neglumar á tánum
vikulega með beittum skærum.
Neglurnar á höndunum þarf einnig að klippa
reglulega í hverri viku. Þær eiga að vera boga-
dregnar eins og gómurinn.
Það er ósiður að naga negluraar.
50