Sólskin - 01.07.1935, Síða 53

Sólskin - 01.07.1935, Síða 53
Tennumar. Herforingi nokkur var að rannsaka mann, sem vildi ganga í herinn. Hæð, afl og sjón var í besta lagi. En svo leit herforinginn upp í manninn og /sagði: „Þú ert stór og sterkur, en eg get samt ekki tekið þig í herinn, af því þú ert svo illa tenntur“. Maðurinn varð hissa og sagði félögum sínum, að nú ættu hermennirnir ekki e.inungis að fella óvin- ina, heldur líka að éta þá. En sannleikurinn er sá, að þeir hermenn eru gagnslausir, sem ekki geta tuggið hart kex og seigt kjöt, þegar með þarf. Það þarf að tyggja matinn vel, svo að maginn geti melt hann, og hin góðu efni úr fæðunni komist út í blóðið. En það er, eins og áður er getið, mjög nauðsynlegt fyrir heilsuna. Gættu tannanna vel. Bakteríurnar hafa greiðan aðgang að þeim. Þessir litlu, hættulegu óvinir taka sér bólfestu utan á tönnunum og milli þeirra. Fái þeir að vera þar í friði, éta þeir sig inri í tennurnar og valda sárum kvölum, sem margir þekkja, tann- verk eða tannpínu. Ef tennurnar skemmast mikið, verður að draga þær út. En þá verður erfitt að tyggja matinn nógu vel. En þú g.etur komið í veg fyrir að tennurnar skemmist, með því að þvo og bursta sýklana út úr munninum. Til þess þarf tannbursta. Hann kostar 1—2 krónur og fæst í öllum lyfjabúðum og mörg- um verslunum. En hann er auðvitað gagnslaus, nema hann sé notaður, og tennurnar burstaðar á hverju kvöldi, áður en farið er að sofa, og líka helst á morgnana og eftir miðdagsmatinn. 51

x

Sólskin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.