Sólskin - 01.07.1935, Page 55

Sólskin - 01.07.1935, Page 55
Taktu nál og berðu að henni logandi eldspýtu, til þess að drepa sýkla, sem á henni kunna að vera. Stingdu nálinni í rönd blöðrunnar á tveim stöðum. Það er ekki sárt. Þrýstu svo vatninu út um nálar- gatið. Bind þú svo um með hreinu bindi. Blöðrur koma oft af því, að skórnir eru of stórir og nudda fæturna. Úr því má bæta með tvennu móti, þykkum sokkum, eða ól, sem brugðið er undir ilina, víxllögð á ristinni og spennt utan um mjóa- legginn, eins og sýnt er á myndinni. Ef þú ætlar í langa göngu, skaltu forðast að vera á þröngum skóm, því að þá máttu búast við að gef- ast upp fyrr en seinna. Fæturnir þrútna dálítið við áreynsluna. Sjálfsagt er að vera í tvennum sokkum. Þú getur haft gaman eða leiðindi af gönguför, en það fer eftir því, hve vel þú manst og breytir eftir þessum ráðum. Leikur. Tannbursti og sýkill. Ylfingar standa í hring, hendur tengdar, armar vel út. Einn ylfingur er inni í hringnum og leikur tannbursta, annar er fyrir utan og leikur sýkil eða sóttkveikju. Tannburstinn á að ná í sýkilinn. Allir 53

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.