Sólskin - 01.07.1935, Page 56

Sólskin - 01.07.1935, Page 56
í hringnum reyna að tefja fyrir sýklinum, þegar hann ætlar út eða inn, en tannburstinn er látinn vera frjáls ferða sinna. Hvað er klukkan? Fyrir æfa-löngu, þegar maðurinn var næstum allan daginn að veiða, slátra og matbúa, þar til hann lagðist til svefns, hafði hann enga þörf fyrir að vita nákvæmlega hve framorðið var. En nú þarf svo mörgu að sinna, að nauðsynlegt er að vita „upp á mínútu“ hvað tímanum líður. Ef þú hefir lært tímatal í skólanum, veistu að 60 sekúndur eru í mínútu, 60 mínútur í klukkustund og 24 klukkustundir í sólarhring eða degi (og nótt). Líttu á klukkuna. Þú sérð stóra og litla vísinn á henni, 12 tölur og 60 smá-strik. Litli vísirinn hreyfist hægt og telur stundir dag6 og nætur. Stóri vísirinn fer miklu hraðara, því að hann tel- ur mínúturnar. Hann fer heilan hring, frá 12 til 12, á hverri klukkustund, meðan litli vísirinn fer aðeins milli tveggja talna. Búðu þér til klukkuskífu úr pappa og festu vísa á með títuprjóni eða heftibólu, svo að þeir geti enúist. Þá verðurðu fljótur að þekkja á klukkuna, og ef gömul, sjóndöpur kona spyr þig, hvað klukk- an sé, geturðu sagt henni það, en þarft ekki að svara: „Eg veit það ekki“. Með því að segja fólki, hvað klukkan sé, getur þú veitt þvi aðstoð þína. 54 j

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.