Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi
Einar Hafsteinn
Guðmundsson
skipstjóri
sem lést á heimili sínu þ. 21. nóv. verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. des. kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Ása Lúðvíksdóttir
Magnús Einarsson Salvör Jóhannesdóttir
Sólveig Einarsdóttir Gunnar Már Eðvarðsson
Guðrún Einarsdóttir Árni Blandon Einarsson
Gísli Hafsteinn Einarsson Kolbrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi
Guðjón Guðmundsson
frá Bakkagerði,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtudaginn
2. desember kl. 13.00.
Sæunn Guðjónsdóttir
Birgir Guðjónsson
Björn Guðni Guðjónsson
Halldóra Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Heklu Árnadóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Geir Guðmundsson
Margrét Geirsdóttir Gestur Jónsson
Árni Jón Geirsson Sigríður Þ. Valtýsdóttir
Guðrún Geirsdóttir Jón Friðrik Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Móðursystir okkar
Bryndís Jóhannsdóttir
áður Hlaðhömrum 3, Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
29. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Ólafsson
Bryndís Fanný Guðmundsdóttir.
Bróðir minn og frændi okkar
Hilmar Bárðason
frá Holti í Álftaveri,
lést fimmtudaginn 28. október s.l. á hjúkrunar-
heimilinu Eir. Útför hefur farið fram.
Fyrir hönd ættingja,
Sigríður Bárðardóttir
Garðar Einarsson.
Okkar ástkæri
Jónas Kr. Þ. Kristjánsson
lést mánudaginn 22. nóvember s.l. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda
samúð, hlýhug og ómetanlegan stuðning á þessum
erfiðu tímum. Þeim sem vildu minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Þórdís Sigurgeirsdóttir
Arnar Geir Jónasson
Hanna Rún Jónasdóttir
og aðrir aðstandendur
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
Hermann Stefánsson
Vallargerði 2c, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 29. nóvember. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Kristín Friðbjarnardóttir
Ólafur Ingi Hermannsson Bjarnheiður Ragnarsdóttir
Elva Hermannsdóttir Einar Jóhannsson
Atli Hermannsson Ingibjörg Róbertsdóttir
afa- og langafabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við fráfall og útför
Sigurbjörns
Þorsteinssonar
Hellulandi, Langanesbyggð.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Kjarnalundar Akureyri.
Einar Sigurbjörnsson
Þorsteinn Sigurbjörnsson
Stefán R. Sigurbjörnsson Sigríður M. Hlöðversdóttir
Guðrún Sigurbjörnsdóttir Sigurjón Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Rögnvaldsdóttir
áður til heimilis að Skálarhlíð,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar mánudaginn
29. nóvember. Úförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 11. desember kl. 14.00.
Guðbjörg Baldursdóttir Sveinbjörn Vigfússon
Bryndís Baldursdóttir Gunnar Steinþórsson
Guðrún Baldursdóttir Viktor Ægisson
Ólafur Baldursson Margrét Jónasdóttir
Brynhildur Baldursdóttir Jóhann Ottesen
ömmubörn og langömmubörn
Málþing um ofbeldi verður haldið á Háskólatorgi á morg-
un milli 14 og 16 í tilefni útgáfu bókarinnar Ofbeldi: Marg-
breytileg birtingarmynd eftir Erlu Kolbrúnu Svavarsdóttur,
prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Þar er
sagt frá fjórum nýlegum rannsóknum sem hún og kollegar
hennar hafa unnið að undanfarin ár. Bókin er hugsuð sem
fræðslurit fyrir starfandi heilbrigðisstarfsmenn en einnig
nemendur á heilbrigðis- og félagsvísindasviði og í guðfræði.
Hún er þó að sögn Erlu Kolbrúnar skrifuð á aðgengilegu máli
og hentar öllum sem vilja kynna sér málaflokkinn betur.
Í bókinni er sagt frá ólíkum birtingarmyndum ofbeldis og
er staðan á Íslandi borin saman við stöðuna hjá öðrum þjóð-
um og sett í samhengi við alþjóðlega vitneskju. „Þá er rætt
um hlutverk heilbrigðisstarfsmanna og hver æskileg fyrstu
viðbrögð séu þegar unnið er með þolendur ofbeldis,“ segir
Erla Kolbrún.
Rannsóknirnar sem sagt er frá í bókinni eru landskönnun
á ofbeldi gegn konum sem gerð var árið 2006 og náði til tæp-
lega 2.800 kvenna. Þá er sagt frá rannsókn á þolendum ofbeld-
is meðal kvenna sem leita til Slysa- og bráðadeildar Landspít-
alans, rannsókn á þolendum ofbeldis á meðal barnshafandi
kvenna sem eru í áhættumeðgöngu og rannsókn á ofbeldi
gegn konum með líkamlega fötlun. Á slysa- og bráðadeild náði
úrtakið til rúmlega hundrað kvenna sem leituðu til deildar-
innar af ýmsum ástæðum. Fjórtán hjúkrunarfræðingar tóku
að sér að leggja fyrir þær spurningar um það hvort þær hefðu
orðið fyrir líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
Á meðal niðurstaðna má nefna að tuttugu prósent þessara
kvenna höfðu upplifað kynferðislegt ofbeldi einhvern tímann
á lífsleiðinni. Sama hlutfall barnshafandi kvenna í áhættu-
meðgöngu höfðu upplifað kynferðislegt ofbeldi og segir Erla
Kolbrún þessar niðurstöður sláandi.
Við gerð rannsóknarinnar á þolendum ofbeldis meðal
kvenna sem leita til slysa- og bráðadeildar og á þolendum
ofbeldis á meðal kvenna í áhættumeðgöngu var notast við
klínískar leiðbeiningar sem Erla Kolbrún þýddi og staðfærði
ásamt samstarfskonu sinni, Brynju Örlygsdóttur, en þær eru
upphaflega frá hjúkrunarfræðifélaginu í Ontario í Kanada.
Hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar sem ræddu við
þátttakendur unnu eftir þessum leiðbeiningum en þær eru
ákveðinn vegvísir að því hvernig eigi að vinna með þolend-
um ofbeldis á fyrstu stigum. Bókin greinir að miklu leyti frá
ávinningnum af þeirri íhlutun.
„Hugmyndin er svo að fara í gang með framhaldsrannsókn
og kanna hvað það er sem fær konur til að tjá sig um ofbeldi,
en samkvæmt erlendum rannsóknum þarf að spyrja þær að
meðaltali sjö sinnum áður en þær greina frá því að þær séu
þolendur ofbeldis af einhverju tagi. Hugmyndin er að kanna
hvort það gefst betur að ræða við konur augliti til auglitis
eða hvort þær vilji frekar svara spurningalistum eða jafnvel
í gegnum tölvu,“ segir Erla Kolbrún.
Á málþinginu á morgun verða helstu áhersluatriði fyrr-
greindra rannsókna kynnt auk þess sem efnt verður til pall-
borðsumræðna þar sem staða ofbeldismála á Íslandi verður
rædd. vera@frettabladid.is
MÁLÞING UM OFBELDI: HALDIÐ Á HÁ-
SKÓLATORGI Á MORGUN
Ólíkar birtingar-
myndir og íhlutun
FRÆÐSLURIT Í bók Erlu Kolbrúnar er greint frá fjórum nýlegum rann-
sóknum á ofbeldi gegn konum.