Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 6
6 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið hefur birt mun fleiri fréttir um Jón Ásgeir Jóhannesson en fjóra aðra við- skiptamenn sem voru í forystu fjármálafyrirtækja í aðdraganda bankahrunsins á sex mánaða tímabili. Þetta kemur fram í sam- antekt sem Creditinfo vann fyrir Björgólf Thor Björgólfsson. Að beiðni Björgólfs var tekið saman hversu mikið var fjallað um mennina fimm í Fréttablað- inu, Morgunblaðinu, DV og Við- skiptablaðinu. Mennirnir eru: Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfur Thor Björgólfsson, Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðs- son og Pálmi Haraldsson. Kannað var sex mánaða tíma- bil frá því snemma í mars fram í aðra viku september. Eins og lesa má úr meðfylgj- andi töflu fjallaði Fréttablaðið oftast um Jón Ásgeir af mönnun- um fimm. Alls birtust 88 frétt- ir um Jón Ásgeir í blaðinu, sem er ríflega þriðjungur frétta um mennina fimm. Næstmest var fjallað um Björgólf Thor, í sam- tals 57 skipti á tímabilinu. Jón Ásgeir er eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur, aðal- eiganda 365, útgáfufélags Fréttablaðsins. Langsamlega mest var fjallað um Jón Ásgeir í Morgunblaðinu. Þar birtust 111 fréttir um hann á tímabilinu, sem var ríflega 46 pró- sent frétta um mennina fimm. DV sker sig nokkuð úr, en blað- ið hefur birt mun fleiri fréttir um mennina fimm en nokkurt hinna blaðanna, þrátt fyrir að blaðið komi aðeins út þrisvar í viku. - bj Mikill munur á umfjöllun blaðanna um fimm menn sem voru í forystu fyrir fjármálafyrirtæki í bankahruninu: Fréttablaðið fjallar oftast um Jón Ásgeir Misjöfn umfjöllun um umdeilda viðskiptajöfra DV Fréttabl. Morgunbl. Viðskiptabl. Samtals Jón Ásgeir 164 38,7% 88 33,8% 111 46,3% 50 39,1% 413 39,3% Björgólfur Thor 81 19,1% 57 21,9% 36 15,0% 22 17,2% 196 18,6% Sigurður Einarsson 60 14,2% 47 18,1% 38 15,8% 18 14,1% 163 15,5% Hreiðar Már 64 15,1% 40 15,4% 27 11,3% 17 13,3% 148 14,1% Pálmi Haraldsson 55 13,0% 28 10,8% 28 11,7% 21 16,4% 132 12,5% HEIMILD: CREDITINFO • SÍA • 10 29 96 Upplýsingar um umsóknar− ferli og eyðublöð eru á www.landsvirkjun.is. Styrkir til náms og rannsókna í umhverfis− og orkumálum Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir eftir umsóknum um náms− og verkefnastyrki: Styrkir til nemenda í meistara− eða doktorsnámi Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða stunda meistara− eða doktorsnám á sviði umhverfis− eða orkumála. Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis− og orkumála Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis og orkumála. Fyrirspurnir má senda á netfangið orkurannsoknasjodur@lv.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2011. Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Styrkveitingar sjóðsins miða að því að gera fjárframlög Lands− virkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar. Eitt af markmiðum Landsvirkjunar er að styðja við rannsóknir, nýsköpun og tækniþróun. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Fiskfars 550 kr.kg Humarsoðið frá Hornafirði er komið, alvöru humarsoð, engin aukaefni né litarefni. Fiskhakk Fiskbollur 899 kr.kg Siginn fiskur frá Bolungarvík. Sjáumst eldhress á eftir. 790 kr.kg Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU Þótt Julian Assange, stofnandi lekasíðunnar Wikileaks, reyni að halda sér fjarri sviðsljósinu meðan fjölmiðlar fjalla um efni lekanna hefur persóna hans engu að síður verið til umfjöllunar nú, rétt eins og fyrr þegar mikilvægar upplýsingar sem áttu að fara leynt hafa verið gerðar opinberar. Þannig skýrir tímaritið Time frá því að hann komi sterklega til greina sem maður ársins 2010, en tímarit- ið hefur frá því á fyrri hluta síðustu aldar valið einstakl- ing sem þykir hafa haft meiri áhrif til góðs eða ills eða í það minnsta verið meira áberandi en aðrir það árið. Þá er bandaríska dómsmálaráðuneytið að kanna hvort hægt verði að lögsækja hann, og þykja þá helst koma til greina bandarísku njósnalögin frá 1917, sem sumir sérfræðingar segja reyndar að séu orðin úrelt. Í Ástralíu, heimalandi Assanges, hefur lögreglan einnig hafið rannsókn á því hvort hægt verði að lögsækja hann fyrir að leka viðkvæmum upplýs- ingum. Fáir virðast hins vegar vita hvar Assange er niðurkominn, en í Svíþjóð er hann eftirlýstur vegna ákæru fyrir kynferðisbrot. Stjórnvöld í Ekvador hafa síðan boðið honum hæli, ef á þyrfti að halda, og segjast hvenær sem er taka honum fagnandi. - gb Tilnefndur sem maður ársins hjá Time JULIAN ASSANGE Höfuðpaur Wiki- leaks-síðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BANDARÍKIN Í leyniskjölum banda- rísku utanríkisþjónustunnar, sem birt hafa verið á vegum vefsíðunn- ar Wikileaks, er að finna upplýsing- ar um að kínversk stjórnvöld hafi þá stefnu að Norður-Kórea samein- ist Suður-Kóreu með friðsamlegum hætti. Breska dagblaðið The Guardian segir að kínverskir embættismenn í Evrópu, sem ekki eru nafngreindir, hafi staðfest þetta í gær. Embættis- mennirnir segja að Kínastjórn geti ekki leyft Norður-Kóreumönnum að halda að þeir geti hagað sér eins og þeim sýnist. Í leyniskjölunum kemur fram að kínverskir ráðamenn segja ráða- menn í Norður-Kóreu stundum haga sér eins og ofdekraðir krakkar. Þar kemur einnig fram að kínversk stjórnvöld vita minna um ráða- menn í Norður-Kóreu en almennt er talið. Kínverjar hafa lengi vel verið helstu, og upp á síðkastið, nánast einu bandamenn Norður- Kóreu, en virðast þó harla lítið hafa vitað um kjarnorkuáform Norður- Kóreu manna eða hugsanleg leið- togaskipti. The Guardian hefur eftir emb- ættismönnunum að Kínverjar vilji áfram vera vinveittir Norður- Kóreu, en vilji þó ekki láta teyma sig á asnaeyrunum. Þannig hafi Kín- verjar látið ýmsar athafnir Norður- Kóreumanna undanfarið fara í taug- arnar á sér, svo sem tilraunir með flugskeyti og kjarnorkusprengjur og árásina á eyju í Gulahafi í síðustu viku. Víðs vegar um heim hafa utan- ríkisráðherrar og önnur stjórnvöld keppst við að fordæma veflekasíð- Kínastjórn vill sam- einingu Kóreuríkja Kínverskir embættismenn í Evrópu staðfestu í gær, eftir birtingu skjala á Wiki- leaks, að Kínastjórn vildi friðsamlega sameiningu ríkjanna á Kóreuskaga. Í skjölunum kemur fram að Kínverjar skilja lítið í ráðamönnum Norður-Kóreu. EKKI HRIFIN Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór ekki dult með andúð sína á framtaki Wikileaks. FRÉTTABLAÐIÐ/AP una Wikileaks fyrir að birta opin- berlega meira en 250 þúsund skjöl frá bandarísku utanríkisþjónust- unni, þar sem starfsmenn sendiráða og aðrir stjórnarerindrekar tala hreint út um ráðamenn fjölmargra landa og segja frá misjafnlega safa- ríkum samskiptum sínum við þá. Í gær höfðu reyndar einung- is verið birt á síðunni innan við 300 þeirra 250 þúsund skjala sem Wikileaks hefur boðað birtingu á. Nokkur stórblöð vestan og aust- an hafs, þar á meðal breska blaðið The Guardian, hafa hins vegar haft aðgang að öllum skjölunum og hafa þau verið að vinna upp úr þeim efni sem birt hefur verið í blöðunum og á vefsíðum þeirra. Margt sem þar kemur fram hefur vakið athygli, svo sem upp- lýsingar um að Hamid Karzai Afganistansforseti hafi náðað fíkniefnasala og hættulega fanga vegna tengsla þeirra við áhrifa- mikla einstaklinga. Julian Assange, stofnandi Wikileaks, upplýsir í viðtali við tímaritið Forbes að næsti stóri lekinn á síðunni verði frá stórum bandarískum bönkum. Þar verði afhjúpuð ólögleg starfsemi bank- anna og annað vafasamt athæfi þeirra. gudsteinn@frettabladid.is Ferð þú í verslunarferð erlendis fyrir þessi jól? JÁ 12,6% NEI 87,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu ánægð(ur) með niðurstöðu stjórnlagaþingskosninganna? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.