Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 50
1,9 43% 29%
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
fjárfestingarfélagsins Eyris
Invest og stjórnarformaður
Marels, var í skýjunum á föstu-
dag og hafði í nógu að snúast
þegar Marel kynnti samning um
hagstæða endurfjármögnun á
öllum lánum fyrirtækisins við
sex alþjóðlega banka. Innistæða
var fyrir kæti Árna Odds; auk
helmingi lægri vaxta en áður
var skilrúmið á milli
lánasamninga Marels
og Stork í Hollandi
numið á brott og
ýmislegt gert
sem mun létta
á rekstri fyr-
irtækisins.
Í skýjunum
Sumir sjá samsæri í hverju horni
en aðrir hafa almennt gaman
af slíku. Eitt slíkt tengist fjár-
festinum Peter Thiel, fyrsta
fjárfesti Facebook. Thiel þessi
mætti nefnilega á síðasta fund
Bilderberg-samtakanna á Spáni
í júní. Samtök þessi hafa blásið
til fundar árlega í tæp sextíu
ár og efni þeirra verið sveipað
leyndarhjúpi. Og hér kemur þá
rúsínan í samsærispylsuendan-
um. Samstarfsmaður Thiels er
Heiðar Már Guðjónsson, sem
leiddi hóp fjárfesta sem vildu
kaupa Sjóvá. Tengdafaðir Heiðars
er Björn Bjarnason, fyrrver-
andi menntamálaráðherra, sem
er einn fárra úr innsta hring
Sjálfstæðisflokksins sem setið
hafa marga fundi Bilderberg-
samtakanna. Á vefsíðu samtak-
anna, já, leyndin er ekki meiri en
það, kemur fram að einmitt var
rætt um samfélagsvefi á borð við
Facebook, sem stórfyrirtæki eru
grunuð um að nota til að næla sér
í persónuupplýsingar.
Samsærið …
Marel-liðar hafa ærið tilefni
til að kætast yfir samningnum,
enda eru flestir sammála um að
annað eins hafi ekki sést hér á
skerinu síðan löngu fyrir hrun.
Þeir sem til þekkja segja end-
urfjármögnunina í raun afrek,
enda sé niðurstaðan þvert á böl-
sýnisraus sem kveður á um að
enginn láni íslensku fyrirtæki
svo mikið sem fimmeyring fyrr
en Icesave-deilan leysist, gjald-
eyrishöft verði afnumin og þar
fram eftir götunum.
Einn viðmælenda Frétta-
blaðsins sagði kynningafund
Marel minna sig fremur á end-
urfund nemenda úr gagnfræða-
skóla en fyrirtækjafund. Þarna
þekkti hann nánast hvern kjaft,
þar af fjölda fyrrverandi yfir-
manna af markaðssviðum gamla
Landsbankans og Kaupþings
áður en bankarnir féllu ríkinu
í skaut. Aðrir líktu fundin-
um við litlu jól banka-
manna, bæði núverandi
og fyrrverandi, enda
er aðventan handan
við hornið og jóla-
skraut fyllti sal
Nordica.
Litlu jól bankanna
Borgartúni 37 | 105 Reykjavík | Sími 516 1000 | skyggnir.is
Umvafin hagræði
Með raunhæfum lausnum
Við skilum þér skýrum og mælanlegum ávinningi með
lausnum okkar og ráðgjöf. Þannig tryggir þú viðskiptavinum
þínum gæði og framúrskarandi þjónustu.
Hagræðing með Rent A Prent prentþjónustu, sýndarvæðingu
netþjóna og miðlægri stjórnun útstöðva er ávinningur þinn af
raunhæfum lausnum Skyggnis. Það þýðir aukna hagkvæmni,
betri nýtingu, minni orkunotkun og ekki síst lægri kostnað.
Við umvefjum þig hagræði.
Skyggnir - Rekstrarþjónusta án aukareikninga.
Hafðu samband við söluráðgjafa Skyggnis til að fá
frekari upplýsingar um rekstrarþjónustu Skyggnis.
Síminn er 516 1000 og netfangið: sala@skyggnir.is
H
2
H
Ö
N
N
U
N
milljarðar er tap MP banka á fyrri
hluta þessa árs.
Íslendinga eru andvíg almennri niður-
færslu skulda.
Íslendinga eru hlynnt almennri
niðurfærslu skulda.