Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 66
46 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Sjónvarpsstjörnurnar Shawn Pyfrom
og Penn Badgley skemmtu sér í
Reykjavík um helgina. Fréttir af
komu þeirra spurðust hratt út í gegn-
um Facebook. Eigandi Vegamóta segir
lítinn frið fyrir erlenda gesti með
nýjustu tækninni.
„Það kom fullt af stelpum hingað sem vildu
láta taka myndir af sér með þeim,“ segir Andri
Björnsson, eigandi veitingastaðarins Vega-
móta.
Fréttablaðið sagði í gær frá því að sjónvarps-
stjörnurnar Shawn Pyfrom og Penn Badgley
hefðu skemmt sér í miðborg Reykjavíkur um
helgina. Þeir félagar snæddu nokkrum sinnum
á Vegamótum á meðan á dvöl þeirra stóð, en
samkvæmt heimildum blaðsins er Pyfrom
ennþá á landinu.
Sá fjöldi ungra stúlkna sem lagði leið
sína á Vegamót um helgina vakti athygli
en skýringin á því kann að vera einföld.
„Það voru einhverjir sem sáu þá hér og
sögðu frá því á Facebook. Í dag er fólk ein-
faldlega með netið í símanum, svo þetta
spyrst hratt út,“ segir Andri. Í kjöl-
farið myndaðist mikil spenna meðal
ungra stúlkna og Vegamót varð
skyndilega vinsælasti áfangastað-
ur þeirra. Þeir Pyfrom og Bad-
gley fengu því ekki mikinn frið
frá æstum aðdáendum meðan á
Íslandsdvölinni stóð. Andri segir
þetta ekki hafa verið svona slæmt
áður en Facebook kom til sögunn-
ar. „Þá kannski hringdu einhverjir
sín á milli eða sendu SMS. En nýj-
asta tæknin flýtir fyrir fréttunum,
enda nýtur Facebook gríðarlegra
vinsælda hjá ungu fólki.“ Hann segir
að fjölmargir þekktir einstaklingar
hafi í gegnum tíðina komið á Vegamót
og verið tiltölulega óáreittir. Andri telur
samt ekki að þeim Pyfrom og Badgley hafi
þótt athyglin slæm. „Þeir væru ábyggilega
með sólgleraugu og derhúfu ef þeir vildu fá að
vera í friði,“ segir Andri og hlær.
Jónas Óli Jónasson, plötusnúður á Vegamót-
um, er sammála Andra. „Það komu svona sex-
tíu stelpur á meðan þeir voru hérna og það er
klárlega bara út af Facebook.“ Jónas spjallaði
lítillega við þá Pyfrom og Badgley á laugar-
daginn. „Þeir sögðust ætla að kíkja út um
kvöldið og að þeir kæmu örugglega til okkar.
Þeir enduðu svo bara á Austur og voru þar
eiginlega allan tímann,“ segir Jónas, svekkt-
ur yfir því að hafa ekki verið að spila á Austur
eins og hann hefur oft gert. Fyrir daga Face-
book hefðu þeir félagar án efa getað skroppið
til Íslands og fengið að vera í friði. Svo er það
kannski ekki besta leiðin fyrir fræga fólkið að
tilkynna það á netinu hvert förinni er heitið, að
minnsta kosti ekki ef menn ætla að fá að vera í
friði fyrir aðdáendum. kristjana@frettabladid.is
Friðurinn úti með tilkomu Facebook
VINSÆLIR Þeir Shawn
Pyfrom úr Despe-
rate Housewives
og Penn Bad-
gley úr Gossip
Girl skemmtu
sér vel á Íslandi
um liðna helgi.
SAMMÁLA UM NAFN Pink og Carey Hart
eiga von á sínu fyrsta barni eftir hálft ár.
Ef barnið er drengur vilja þau skíra hann
Jameson. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan Mila Kunis, sem sló
í gegn í sjónvarpsþáttunum
That ‘70s Show, íhugaði að
segja skilið við leiklistina
þegar hún var aðeins tví-
tug að aldri.
Kunis hafði árið 2003
þénað nóg til að geta
lifað góðu lífi það sem
eftir var án þess að þurfa að
vinna framar. Hún hafði þá
unnið sem fyrirsæta og leik-
kona í ellefu ár og íhugaði
að segja endanlega skilið
við leiklistina. „Margir
átta sig ekki á því að
maður verður mun
ríkari af því að leika
í sjónvarpsþáttum
en af því að leika í
kvikmyndum. Þar
eru fastar tekjur í
boði fyrir auðvelt
starf. Ég var tví-
tug og summan
inni á banka-
reikningnum
mínum var
nógu stór
til að end-
ast mér út
ævina. Ég íhugaði að hætta
í leiklist og snúa mér að
öðrum hlutum,“ sagði leik-
konan í viðtali við tímaritið
Nylon.
„Þetta er erfiður bransi og
lítið um öryggi í honum og
ég var ekki viss um að ég
gæti þolað það til lengdar.“
Kunis hætti þó við því hún
sagðist ekki geta hugsað sér
að vinna við nokkuð annað.
Kunis fer með aukahlut-
verk í kvikmyndinni
The Black Swan og þótti
frammistaða hennar í
myndinni svo góð að
hún gæti átt von á
óskarstilnefningu á
næsta ári.
Vildi hætta í
leiklistinni tvítug
Söngkonan Pink og eiginmaður
hennar, Carey Hart, eiga von á
sínu fyrsta barni. Söngkonan er
komin rúma þrjá mánuði á leið og
segist þegar vera búin að ákveða
nafn á barnið verði það drengur.
„Pabbi minn heitir James og
bróðir minn heitir Jason. Ég og
Carey erum bæði hrifin af viskíi
og þess vegna ákváðum við að ef
barnið yrði drengur myndi hann
heita Jameson. Mjög auðvelt,“
sagði söngkonan í viðtali við Acc-
ess Hollywood.
Hjónin eru þó ekki jafn ákveð-
in þegar kemur að stúlkunöfnum.
„Ég vil nafn sem hefur einhverja
merkingu, en Carey finnst sem
nafnið hans hafi verið of stelpu-
legt og vill ekki að barnið heiti
skrítnu nafni. Ég verð því að
mýkja hann svolítið upp ef ég vil
fá frumlegt nafn á barnið.“
Skírir barnið
eftir vískíi
Bandaríska raunveruleikastjarnan
Heidi Montag sem komst í heims-
fréttirnar þegar hún lét gera tíu
fegrunaraðgerðir í einu, sér eftir
öllu saman í dag. Montag, sem
varð þekkt andlit eftir þátttöku
sína í þáttunum The Hills sem
sýndir eru á MTV sjónvarpstöð-
inni, vill nú nýta sína reynslu til
að vara ungar stúlkur við að leggj-
ast undir hnífinn. Montag segist
sjálf gjarna vilja fá sitt gamla útlit
aftur en getur ekki hugsað sér að
fara í fleiri aðgerðir svo hún ætlar
að láta sér lynda að vera í brjósta-
stærð DDD.
Sér eftir aðgerðunum
VARAR STÚLKUR VIÐ Raunveruleika-
stjarnan Heidi Montag sér eftir tíu
lýtaaðgerðunum sem hún fór í á einum
degi. NORDICPHOTOS/GETTY
VILDI HÆTTA
Mila Kunis var
orðin svo rík þegar
hún var tvítug að hún
íhugaði að hætta í leiklist.
NORDICPHOTOS/GETTY
ALLT BRJÁLAÐ Á VEGAMÓTUM Jónas Óli Jónasson, plötusnúður á Vegamótum, segir
að vera erlendu stjarnanna hafi spurst fljótt út í gegnum Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í margfalt betri upplausn en áður og með góðu
að- gengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með öllu því sem
gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á nýjum Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi
á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!