Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 18
18 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR Björgvin Þorsteinsson, lögmaður eigenda Árbótar, sagði í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 á fimmtudaginn að Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefði undirritað starfslokasamninginn við Árbót þar sem samið var um 30 milljóna króna uppgjör við heimilið. „Ég er nú með þennan samning fyrir framan mig sem undirritaður var í sumar. Undir þennan samning hefur Bragi Guðbrandsson skrifað,“ sagði Björgvin. „Ég veit ekki til þess að neinn hafi verið með byssu við höfuðið á honum þegar hann skrifaði undir þetta.“ Í minnisblaði frá Braga Guðbrandssyni sem dagsett er 14. júlí síðastliðinn kemur fram að á fundi með ráðu- neytisstjóra félagsmálaráðuneytisins og skrifstofustjóra hafi verið óskað eftir því að Barnaverndarstofa tæki þátt í afgreiðslu málsins með undirskrift á samkomulaginu enda væri stofan samningsaðili við Árbót. „Ég vísaði til fyrri samskipta við ráðuneytið vegna málsins, meðal annars bréfa og tölvupóstsamskipta, þar sem stofan hefði ítrekað látið í ljós það álit að samkomulagið stæðist ekki góða stjórnsýslu af margvíslegum ástæðum,“ segir í minnisblaði Braga um fundinn. „Þá orkaði tvímælis að stofan ætti aðild að samkomulaginu þar sem málinu hefði á sínum tíma, að ósk ráðuneytisins sem og rekstraraðila, verið vísað til afgreiðslu ráðuneytisins [...] Þannig væru drög að umræddu samkomulagi alfarið unnin af hálfu ráðuneytisins og án aðkomu stofunnar og því væri óeðlilegt að Barna- verndarstofa skrifaði undir það. Á hinn bóginn væri stofunni skylt að hlíta fyrirmælum ráðherra í þessa veru ef svo bæri undir [...] Ég skyldi tryggja að það gengi eftir. Væri kallað eftir sjónarmiði mínu af hálfu annarra vegna samkomulagsins greindi ég frá því að ég myndi alls ekki tjá mig um það, hvorki verja það né gagnrýna.“ Félagsmálaráðuneytið taldi óhjákvæmilegt að segja upp samningi við Árbót. Deilt hefur verið um uppsagnar- ákvæði samningsins. Í máli Geldingalækjar árið 1998 komst Hæstiréttur að því að ákvæðið stæðist lög. Ríkis- lögmaður komst að sömu niðurstöðu í áliti vegna máls Torfastaða árið 2004. Í tölvupósti frá 30. desember í fyrra kemur fram að Árni Páll Árnason, fyrrverandi félagsmálaráðherra, vildi ekki að greinargerð fylgdi með uppsagnarbréfi til Árbótar. Bæði Árni Páll Árnason, fyrrver- andi félagsmálaráðherra, og Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra hafa, í rökstuðningi sínum fyrir réttmæti 30 milljóna króna starfslokagreiðslu til meðferðar- heimilisins Árbótar, bent á að upp- sagnarákvæðið í samningi Barna- verndarstofu við Árbót hafi ekki verið ótvírætt. Eins og áður hefur verið bent á sáu þeir ekki ástæðu til að fá álit ríkislögmanns á því. Þegar Árni Páll var spurður að því, í Frétta- blaðinu á miðvikudaginn í síðustu viku, hvers vegna ekki hafi verið leitað álits sagði hann: „Ég er lög- fræðingur sjálfur og get alveg lesið hvað stendur í þessu uppsagn- arákvæði. Það er ekki ótvírætt – langt því frá. Rökin fyrir uppsögn- inni voru forsendubrestur, en það var ekki ótvírætt að hún stæðist.“ Á Alþingi á mánudaginn í síð- ustu viku sagði Steingrímur: „Það er þannig með þessa samninga að í þeim er ekki ótvírætt uppsagn- arákvæði heldur endurskoðunar- ákvæði.“ Ráðuneytin aldrei gert athuga- semd Áður en þjónustusamningar milli Barnaverndarstofu og meðferðar- heimila eru gerðir fara ráðuneyt- in yfir þá, enda þurfa ráðherrar að undirrita samningana. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur aldrei verið gerð athugasemd við orða- lag eða skýrleika ákvæða. Í máli Torfastaða, þar sem samn- ingi var sagt upp með sex mánaða fyrirvara, mat ríkislögmaður bóta- skylduna. Niðurstaða hans var sú að þar sem samningnum hafi verið sagt upp með lögmætum hætti bæri ríkinu að hafna öllum kröfum um bætur. Hæstiréttur sýknaði ríkið Árið 1998 féll dómur vegna upp- sagnar ríkisins á samningi við meðferðarheimilið Geldingalæk á Rangárvöllum. Forsvarsmenn heimilisins höfðuðu þá mál gegn rík- inu þar sem krafist var ógildingar á uppsögn samnings- ins og skaða- bóta. Samn- ingnum hafði verið sagt upp vegna þess að annar forráðamað- ur heimilisins hafði orðið uppvís af ölvun í húsakynnum heimilisins og sýnt af sér kynferðislega áreitni við samstarfskonu. Í dómi Hæstaréttar segir að þar sem Barnaverndarstofa hafi ekki rift samningnum strax heldur gefið forráðamönnunum kost á að segja honum upp með sex mánaða fresti hafi meðalhófsreglu stjórn- sýslulaganna verið gætt. Í Árbót féll nýting rýma niður eftir að upp komst um kynferðis- brotamál á heimilinu. Stúlku var nauðgað af starfsmanni heimilisins sem var í október í fyrra dæmd- ur í tveggja ára fangelsi. Líkt og í Geldingalækjarmálinu rifti Barna- verndarstofa ekki strax samningn- um við Árbót heldur gaf eigendun- um kost á að segja honum upp með sex mánaða fresti. Það vildu þau ekki og var samningnum því sagt upp um síðustu áramót með vísun í sex mánaða uppsagnarákvæðið í þjónustusamningnum. Í Geldingalækjarmálinu komst dómurinn enn fremur að þeirri niðurstöðu að sex mánaða upp- sagnarákvæðið stæðist lög og var ríkið sýknað af bótakröfum for- svarsmanna heimilisins. Greinargerð fylgdi ekki Þegar Árni Páll var spurður út í aðkomu hans að Árbótarmálinu í Fréttablaðinu á miðvikudaginn í síðustu viku sagði hann: „Ég tók enga ákvörðun í þessu máli og átti aldrei hugmynd að nokkru skrefi aðra en þá sem mínir embættis- menn lögðu til, nema þegar ég ákvað að neita að sætta mig við að það færu 30 milljónir af barna- verndarstarfi í landinu í uppgjör- ið og heimtaði að það kæmi auka- fjárveiting.“ Þessi yfirlýsing ráðherrans stangast á við gögn sem Frétta- blaðið hefur undir höndum. Þegar Barnaverndarstofa er í sambandi við félagsmálaráðuneytið áður en uppsagnarbréfið til Árbótar er sent, fylgdi greinargerð með upp- sagnarbréfinu. Í tölvupósti sem Heiða Björg Pálma- dóttir, lögmaður Barnaverndarstofu, sendi Braga Guð- brandssyni, for- stjóra stofunnar, klukkan 17.29 30. desember, lýsir hún þeirri skoðun sinni að hún telji öruggara að greinargerðin fylgi með bréfinu. Í tölvupóstinum segir Heiða: „Tel öruggara að forsendur stof- unnar, eins og þær eru raktar í meðfylgjandi greinargerð, fylgi með uppsagnarbréfi til forstöðu- manna, enda gerir stjórnsýslu- rétturinn kröfur til þess að í rök- stuðningi fyrir ákvörðun komi fram helstu forsendur og rök fyrir niðurstöðu. Með hliðsjón af því að dómstólar töldu ákvæði stjórnsýslulaga gilda um uppsögn samnings vegna Geldingalækjar gæti það komið Barnaverndar- stofu illa, fari málið fyrir dóm, að gera ekki grein fyrir forsendum ákvörðunarinnar þegar ákvörðun er kynnt aðilum.“ Tölvupóstur aðstoðarmanns Í tölvupósti Önnu Sigrúnu Baldurs- dóttur, þáverandi aðstoðarmanns Árna Páls, til Bolla Þórs Bolla- sonar ráðuneytisstjóra og áfram- sendur var til Barnaverndarstofu klukkan 19.40 30. desember í fyrra segir: „Ráðherra telur ástæðulaust að þetta [greinargerðin] fylgi með, bætir í raun engu við.“ Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins fór ráðherra síðan fram á það að í uppsagnarbréfið, sem sent var 30. desember í fyrra, yrði bætt við eftirfarandi málsgrein: „Þrátt fyrir að rekstrarsamn- ingi við yður [eigendur Árbótar] vegna starfsemi meðferðarheimil- isins að Árbót sé hér með sagt upp vill Barnaverndarstofa ítreka þá afstöðu sína að æskilegt sé að aðil- ar nái sátt um starfslok. Því árétt- ar stofan að af hennar hálfu er vilji til áframhaldandi samræðna sem miði að því að ljúka málinu með samkomulagi í samræmi við far- sælt samstarf sem Barnavernd- arstofa hefur átt við yður í mörg ár. Sé vilji til þess að yðar hálfu er ekkert því til fyrirstöðu að við- ræður geti hafist fljótlega eftir áramót.“ Eins og greint var frá í Frétta- blaðinu á þriðjudaginn í síðustu viku sýna tölvupóstsamskipti ótví- rætt fram á að samningaviðræður milli Steingríms, félagsmálaráðu- neytisins og eigendur Árbótar, hóf- ust í byrjun janúar. Er það tæpum þremur mánuðum áður en ráðu- neytið var formlega komið með forræði í málinu, en það gerðist ekki fyrr en 25. mars. Óhjákvæmilegt að segja samn- ingnum upp Bæði Steingrímur og Árni Páll hafa vísað til þess að uppsagnar- ákvæði samningsins við Árbót hafi ekki verið ótvírætt, eins og rakið var hér á undan. Þetta mat þeirra stangast á við mat Bolla Þórs og Vilborgar Ingólfsdóttur, skrif- stofustjóra í félagsmálaráðuneyt- inu, sem 14. desember 2009 svör- uðu erindi Barnaverndarstofu, þar sem óskað var Ráðuneytið taldi uppsögn óhjákvæmilega Enginn með byssu við höfuðið á Braga Stiklað á stóru í Árbótarmálinu BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON Ríkisendur- skoðun hefur þegar hafið athugun á samningum hins opinbera við meðferð- arheimili og og starfslok- um þeirra. Ríkisend- urskoðun hefur óskað eftir öllum gögnum, þar á meðal bréfa- og tölvupóstsamskiptum, um samn- inga við meðferðarheimili frá árinu 1996. Í samtali við Fréttablaðið sagði Sveinn Arason ríkisendurskoð- andi að óvíst hversu langan tíma athugunin myndi taka. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur affarasælast fyrir alla aðila að Ríkisendurskoðun fari í málið og klári athugunina sem allra fyrst. Víðtæk athugun SVEINN ARASON heimildar til uppsagnar á samn- ingnum við Árbót. Í bréfi Bolla Þórs og Vilborgar, sem þau skrifa undir fyrir hönd Árna Páls, segir: „Þá eru í erindi yðar [Barnaverndarstofu] færð margvísleg rök fyrir því að ekki verði séð að meðferðarheimil- ið Árbót muni breyta starfsemi sinni þannig að nýting á rýmum Árbótar verði fullnægjandi. Ekki séu því fjárhagslegar forsendur fyrir áframhaldandi rekstri með- ferðarheimilisins að Árbót. [...] Af þessu tilefni tekur ráðuneytið fram að að vel athuguðu máli er niður- staða þess sú að óhjákvæmilegt sé að segja upp samningi Barnavernd- arstofu við Árbót. Ráðuneyt- ið fellst því á tillögu Barnavernd- arstofu um að samningnum verði sagt upp fyrir árslok 2009.“ Þrýstingur eða ekki þrýstingur Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn í síðustu viku gerði Árni Páll lítið úr þrýstingi þingmanna Norð- austurkjördæmis í málinu. Hann sagði meðal annars: „Jú jú, það var þrýstingur en hann hafði engin óeðlileg áhrif á niðurstöðuna.“ Þetta gengur í berhögg við það sem hann segir í tölvupósti til ráðuneytisstjóra síns 7. maí. Í tölvupóstinum sér hann sérstaka ástæðu til þess að nefna þrýsting frá þingmönnum kjördæmisins. Þar segir Árni Páll meðal annars: „ Af hverju erum við að borga meira en 30 milljónir umfram skyldu? Jú – vegna sanngirnissjónarmiða og þrýstings frá kjördæmisþing- mönnum.“ Stígur Helgason stigur@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING: Bætur til meðferðarheimilisins Árbótar Frá því á mánudaginn 22. nóvember hefur Fréttablaðið fjallað um það hvernig og hvers vegna ákveðið var að greiða eigendum meðferðarheim- ilisins Árbótar í Þingeyjarsýslu 30 milljónir króna í bætur vegna lokunar heimilisins. Hér er stiklað á stóru í málinu: ■ Samið var um 30 milljóna króna bætur til eigenda Árbótar þrátt fyrir ítrekuð mótmæli Barnaverndarstofu. ■ Ráðuneytin voru farin að semja áður en málið var formlega komið á þeirra forræði. Tölvupóstar sýna að samningar milli félagsmálaráðuneytis og eigenda Árbótar hófust í byrjun janúar. Málið komst á forræði ráðu- neytisins 25. mars. ■ Samið var án þess að bótaskylda ríkisins vegna hugsanlegra lögsóknar eigenda Árbótar væri könnuð. Í þjónustusamningnum við Árbót var ákvæði um sex mánaða uppsagnarfrest verði forsendubrestur fyrir starfseminni. Í áliti í máli Torfastaða komst ríkislögmaður að því að samskonar uppsagnarákvæði stæðist lög og ríkið væri ekki bótaskylt yrði höfðað mál. Hæstiréttur Íslands komst að sömu niðurstöðu í dómsmáli vegna meðferðarheimilisins Geldingalækjar. Í því máli var ríkið sýknað af bótakröfum. ■ Samið var um bætur, meðal annars vegna fjárfestinga sem eigendurnir höfðu lagt í, án þess að fyrir lægju ársreikningar frá Bragabót sem innheimt hefur leigu og staðið í fjárfestingum vegna starfseminnar. Bragabót er félag í eigu eigenda Árbótar. ■ Samið var við Árbót vegna þrýstings frá þingmönnum norðausturkjör- dæmis eins og skýrt kemur fram í tölvupóstum frá Árna Páli Árnasyni, Steingrími J. Sigfússyni og Kristjáni Þór Júlíussyni. ■ Lögmaður Götusmiðjunnar kvartar til umboðsmanns Alþingis vegna ólíkrar málsmeðferðar stjórnvalda við gerð starfslokasamninga vegna Árbótar og Götusmiðjunnar. Lögmaðurinn telur að jafnræðisreglan hafi verið brotin. ■ Félagsmálanefnd Alþingis fundaði um málaflokkinn í fyrradag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.