Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 70
1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR50
sport@frettabladid.is
LOGI GUNNARSSON hjá Solna Vikings hefur skorað flestar þriggja stiga körfur til þessa í sænsku úrvalsdeildinni í körfu-
bolta til þessa. Logi hefur sett niður 39 þrista í 12 leikjum eða 3,3 að meðaltali í leik. Logi hefur hitt úr 43,8 prósent þriggja stiga
skota sinna og er í sjötta sætinu yfir bestu nýtinguna. Logi hefur hitt úr 10 af 18 þriggja stiga skotum í síðustu tveimur leikjum.
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
endaði í 2.-3. sæti á úrtökumóti
fyrir Evrópumótaröðina í golfi
sem fram fór á Arcos Garden vell-
inum á Spáni. Íslandsmeistarinn
lék lokahringinn á fjórum högg-
um undir pari, eða 68 höggum, og
samtals lék hann hringina fjóra á
6 höggum undir pari.
Birgir var tveimur höggum á
eftir sigurvegaranum en alls kom-
ust 23 kylfingar áfram af þessum
velli á lokaúrtökumótið sem hefst
á laugardag í Katalóníu.
Ekki var hægt að ljúka leik á
mánudaginn vegna hvassviðris
og úrkomu og náði Birgir að leika
8 holur áður en keppni var frestað.
Hann var þá á einu höggi undir
pari en hann lék síðustu 10 holurn-
ar í gær á þremur höggum undir
pari. Birgir, sem leikur fyrir GKG,
hefur nú þegar öðlast takmarkað-
an keppnisrétt á Áskorendamóta-
röð Evrópu á næsta tímabili, sem
er í raun og veru næstefsta deild í
Evrópumótaröðinni.
Alls var keppt á fjórum stöðum
á 2. stigi úrtökumótsins þar sem
320 kylfingar reyndu fyrir sér. Á
lokamótinu mæta 160 kylfingar
til leiks og í þann hóp bætast þeir
sem náðu ekki að halda keppnis-
rétti sínum á Evrópumótaröðinni
á þessu tímabili. Gríðarlega hörð
barátta einkennir úrtökumótið
fyrir Evrópumótaröðina en um
700 kylfingar reyndu fyrir sér á
1. stigi úrtökumótsins og aðeins
175 þeirra komust áfram á 2.
stigið. Þar bættust 145 kylfingar
í hópinn og var Birgir Leifur þar
á meðal.
Aðeins 115 efstu á peningalista
Evrópumótaraðarinnar halda
keppnisrétti sínum á hverju ári
og munu rúmlega 1.000 kylfingar
berjast um 30 laus sæti á hverju
einasta hausti á úrtökumótunum.
- seþ
Íslandsmeistarinn Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 2.-3. sæti á úrtökumóti og er kominn á lokaúrtökumótið:
Birgir Leifur skrefi nær Evrópumótaröðinni
GENGUR VEL Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson stendur sig vel á golfvellinum
þessa dagana og nálgast Evrópumótaröðina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
FÓTBOLTI Unglingalandsliðsmenn-
irnir Hjörtur Logi Valgarðsson
úr FH og Elfar Freyr Helgason
hafa vakið verðskuldaða athygli
erlendra liða.
Þeir hafa verið á ferð og flugi
síðustu vikur og 7. desember
halda þeir til Svíþjóðar þar sem
þeir verða á reynslu hjá sænska
úrvalsdeildarliðinu IFK Göte-
borg. Með liðinu leika Íslending-
arnir Ragnar Sigurðsson, Theo-
dór Elmar Bjarnason og Hjálmar
Jónsson.
Þeir Hjörtur og Elfar munu
mæta á tvær æfingar með liðinu
áður en þeir ferðast með því
yfir til Danmerkur þar sem þeir
munu taka þátt í æfingaleik gegn
Rúrik Gíslasyni og félögum í
OB sem eru að halda sér í formi
vegna Evrópudeildarinnar. - hbg
Hjörtur Logi og Elfar Freyr:
Á leið til IFK
Göteborg
HJÖRTUR LOGI Hefur vakið athygli víða í
Skandinavíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HANDBOLTI EM-hópur kvennalandsliðsins í
handbolta var gefinn út í gær en þar eru á
ferðinni sextán leikmenn sem koma til með
að stíga söguleg skref í íslenskri handbolta-
sögu eftir sex daga því hér er á ferðinni
fyrsta stórmót íslenska kvennalandsliðsins.
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kom
ekki mikið á óvart með vali sínu og valdi
þær stelpur sem hann hefur notað mest í
æfingaleikjunum í vetur.
„Þetta er búið að ganga vel. Hópurinn er
búinn að vera saman í tíu daga og við fórum
á mótið í Noregi um helgina. Framhaldið er
bara æfingar fram á laugardag og svo eigum
við þennan æfingaleik á móti Spáni á sunnu-
daginn úti. Við notum síðustu dagana til þess
að fínpússa hluti, bæði úti á gólfi sem og að
vinna í sálfræðihlutanum til þess að undir-
búa þær eins vel og hægt er. Sú vinna er byrj-
uð og kemur til með að halda áfram,“ segir
Júlíus. Evrópumótið fer fram í Danmörku
og Noregi og er íslenski riðillinn spilaður í
Árósum í Danmörku.
„Það var erfitt að skera niður hópinn en ég
er sannfærður um að þetta sé besti hópurinn
sem ég gat valið. Það er kjarni þarna sem er
búinn að vera lengi hjá mér en svo eru líka
þarna ný nöfn sem hafa verið að koma upp í
síðustu mótum. Hópurinn er góður og hann
sýndi það um helgina með því að koma til
baka eftir áfallið í fyrsta leiknum. Það þarf
góðan hóp til að koma til baka eftir svoleið-
is leik,“ sagði Júlíus og vísaði þar í 21 marks
tap á móti ólympíu- og Evrópumeisturum
Noregs.
Fengu smá nasaþef um helgina
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska
liðsins, er líka sátt við gang mála í undir-
búningi liðsins.
„Við fengum smá nasaþef af þessu um helg-
ina og ég áttaði mig þar á því að þetta væri
að bresta á því það er bara vika í fyrsta leik.
Við vorum að spila þrjá leiki um helgina og
töpuðum þeim reyndar öllum en þrátt fyrir
þessi töp held ég að við höfum fengið hell-
ing út úr þessu. Við græddum mikið á því að
fara þangað og það er mikil og góð stemning
í hópnum,“ segir Rakel. Hún segir að liðið sé
að undirbúa sig bæði líkamlega og andlega.
„Við erum búnar að undirbúa okkur frá
öllum hliðum, bæði handboltalega og fyrir
allt sem fylgir því að fara á stórmót. Undir-
búningurinn er búinn að vera flottur og
ég er mjög ánægð með allt saman, HSÍ,
umgjörðina, æfingarnar, liðið sjálft og hvern-
ig við stelpurnar erum búnar að mæta á
æfingarnar,“ segir Rakel.
Fyrirliðinn viðurkennir þó að það hafi
reynt mikið á hópinn eftir skellinn á móti
Noregi á föstudaginn. „Það var mikið sjokk
að tapa svona illa á móti Noregi. Noregur er
með frábært lið og klárlega meistaraefni. Að
sama skapi var þetta mikið sjokk því þetta
var hræðilegur leikur hjá okkur. Það voru
margir þættir sem spiluðu inn í af hverju við
spiluðum svona illa en við sýndum mikinn
styrk að koma til baka eftir þennan skell og
ég er mjög ánægð með það,“ segir Rakel og
bætir við: „Við áttum tvo góða leiki í fram-
haldinu og hefðum getað unnið báða þessa
leiki á móti Dönum og Serbum. Ég var ánægð
með það hvernig liðið kom til baka og að allir
leikmenn risu upp eftir þetta stóra áfall á
föstudaginn,“ segir Rakel.
Fyrsti leikurinn eftir aðeins sex daga
Fyrsti leikur íslensku stelpnanna á mótinu er
á móti Króatíu eftir aðeins sex daga. Rakel
lítur á þennan leik sem úrslitaleik fyrir liðið
og er ánægð með að mæta Króatíu í fyrsta
leik en Svartfjallaland og Rússland eru
einnig með íslenska liðinu í riðli.
„Ég býst við því að þær vanmeti okkur því
ég hef verið að lesa viðtöl við þær þar sem
þær tala um að Ísland sé engin fyrirstaða.
Ég vona að þær haldi að þær geti mætt með
vinstri. Við þurfum að vera á tánum í þeim
leik því það er klárlega mikill úrslitaleikur
fyrir okkur. Sigur þar getur fleytt okkur
áfram. Það eina jákvæða við tapið á móti
Noregi um helgina er að það gefur króat-
ísku stelpunum ennþá meiri ástæðu til þess
að vanmeta okkur,“ segir Rakel í léttum tón.
Landsliðsþjálfarinn segir liðið þó ekki mega
setja allar sínar væntingar á þann eina leik.
„Króatíuleikurinn er okkar tækifæri til
þess að koma svolítið á óvart og auðvitað þarf
allt að ganga upp hjá okkur til þess að við
náum góðum úrslitum. Þó að það gerist ekki í
fyrsta leik er alltaf möguleiki í öðrum leik en
markmiðið okkar er að horfa svolítið á þenn-
an fyrsta leik án þess að gleyma því að sá
leikur er ekki eini möguleikinn okkar í mót-
inu,“ segir Júlíus, sem segir liðið ætla að ná
árangri á mótinu.
„Markmiðið er að komast í milliriðilinn
sem er háleitt markmið en reynslan hefur
sýnt okkur að það er ágætt að hafa markmið-
in háleit. Stelpurnar og við í þjálfarateym-
inu höfum fulla trú á að það sé hægt,“ segir
Júlíus að lokum. ooj@frettabladid.is
Ánægð með flottan undirbúning
Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í gær EM-hópinn sinn en fyrsti leikur stelpn-
anna okkar er eftir sex daga. Júlíus og fyrirliðinn Rakel Dögg Bragadóttir eru sátt við stöðuna á liðinu.
SEX DAGAR Í FYRSTA LEIK Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, brosti út að eyrum á
blaðamannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EM-hópur Íslands
Markverðir: landsleikir
Berglind Íris Hansd., Fredrikstad 102
Íris Björk Símonardóttir, Fram 54
Aðrir leikmenn: landsleikir
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val 59
Arna Sif Pálsdóttir, Team Esbjerg 49
Ásta Birna Gunnardóttir, Fram 36
Hanna G. Stefánsdóttir, Stjörnunni 95
Harpa Sif Eyjólfsd., Sparvagen HF 27
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Val 124
Karen Knútsdóttir, Fram 19
Rakel Dögg Bragadóttir, Levanger 72
Rebekka Rut Skúladóttir, Val 16
Rut Arnfjörð Jónsd., Tvis Holstebro 33
Solveig Lára Kjærnested, Stjörn. 46
Stella Sigurðardóttir, Fram 26
Sunna Jónsdóttir, Fylki 16
Þorgerður Anna Atlad., Stjörnunni 7
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, var ánægð með heimsókn sem stelpurnar fengu á
dögunum en þá komu fulltrúar kvennalandsliðsins í fótbolta til þeirra og lýstu sinni reynslu af því þegar
liðið fór á sitt fyrsta stórmót á EM í Finnlandi fyrir rúmu ári.
„Við fengum að heyra frá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni, landsliðsþjálfara í fótbolta, og Hólmfríði Magnús-
dóttur, leikmanni kvennalandsliðsins, en þau sögðu okkur frá sinni reynslu og hvernig þetta var þegar
fótboltalandsliðið fór í fyrsta sinn á EM. Þetta var frábært og hjálpaði okkur mikið. Við þurfum að vita
út í hvað við erum að fara til þess að halda einbeitingu á aðalatriðinu, handboltanum. Við megum ekki
láta einhverja aðra hluti trufla okkur,“ segir Rakel Dögg.
Fótboltalandsliðið hjálpaði stelpunum
HANDBOLTI Hrafnhildur Skúla-
dóttir bætir landsleikjametið
með hverjum leik og landsliðs-
markametið með hverju marki.
Um helgina varð Hrafnhildur
fyrsta landsliðskonan til þess að
skora 500 mörk fyrir A-landsliðið.
„Ég ætla ekki að hætta að skora
núna fyrst ég er komin með fimm
hundraðasta markið, Ég þarf að
bæta við þetta,“ sagði Hrafnhild-
ur en Knútur G. Hauksson, for-
maður HSÍ, ýjaði að því að hún
fengi gullúr þegar hún skoraði
þúsundasta markið. Hrafnhildur
hló bara að því.
„Ég held að Knútur hafi aðeins
gleymt því að reikna út hvað ég
væri gömul. Ég er samt ekkert að
fara að hætta strax og eigum við
ekki að segja að ég ætli allavega
að ná sex hundruð mörkum,“
sagði Hrafnhildur. - óój
Hrafnhildur með 500 mörk:
Bætir metin sín
í hverjum leik
METHAFINN Hrafnhildur Skúladóttir
hefur verið í landsliðinu í 13 ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM