Fréttablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 12
12 1. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Búist er við að um níu-
tíu vistmenn á Breiðavíkurheimil-
inu krefjist bóta á grundvelli laga
um sanngirnisbætur.
Lögin voru samþykkt í maí. Í
fyrri hluta október var í auglýs-
ingum skorað á þá er dvöldu á
Breiðavík á árunum 1952 til 1979
og urðu fyrir illri meðferð eða
ofbeldi að lýsa kröfu um skaða-
bætur. Kröfufrestur er til 26.
janúar.
Guðrún Ögmundsdóttir, tengil-
iður vegna vistheimila, hefur leið-
beint fjölda manna við að útbúa
umsóknir um bætur frá því að hún
tók til starfa undir lok septemb-
er. „Ég er þegar búin að ganga
frá um sextíu umsóknum og býst
við að um það bil tíu bætist við
hjá mér. Svo má reikna með að
um tuttugu sendi sínar umsóknir
beint til sýslumanns,“ segir Guð-
rún, en sýslumaðurinn á Siglufirði
tekur afstöðu til krafna fyrir hönd
ríkisins.
158 dvöldu á Breiðavíkurheimil-
inu á umræddu tímabili. 81 kom í
viðtal við nefnd forsætisráðherra
sem rannsakaði starfsemi þess.
Talið er að 35 séu látnir.
Guðrún segir ekki við því að
búast að allir eftirlifandi sæki
bætur. „Sumir vilja gleyma og
ekkert aðhafast. Ég mun ekki
hafa frumkvæði að því að hafa
samband við menn. Það er mis-
jafnt hvernig þeir vilja vinna úr
þessum atburðum.“
Reiknað er með að sýslumað-
ur úrskurði um bætur fljótlega í
febrúar. Uni menn ekki úrskurði
sýslumanns geta þeir vísað kröfu
sinni til úrskurðarnefndar. Fá þeir
lögfræðiaðstoð til að reka mál sitt
fyrir nefndinni.
Í fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir að 235 milljónum króna
verði varið til sanngirnisbóta á
næsta ári. Í lögum um bæturnar er
gert ráð fyrir að fjárhæðir allt að
tveimur milljónum króna greiðist
út í einu lagi. Bætur umfram tvær
milljónir og allt að fjórum milljón-
um greiðast einu og hálfu ári eftir
fyrstu útborgun og bætur umfram
fjórar milljónir þremur árum eftir
fyrstu útborgun.
Guðrún segir að þegar lokið
verði við að innkalla og úrskurða
um bætur vegna Breiðavíkurheim-
ilisins fari sama ferli í gang vegna
Heyrnleysingjaskólans og Kumb-
aravogs. bjorn@frettabladid.is
KLÆDDUR EINS OG SÍMI Japanskt
símafyrirtæki kynnti nýja tegund
snjallsíma í Tókýó og lét einn starfs-
manna sinna spranga um í gervi
símans. NORDICPHOTOS/AFP
LANDSDÓMUR Sigríður Friðjónsdóttir, saksókn-
ari Alþingis, fékk ekki frumvarp til breytinga
á lögum um landsdóm til umsagnar og átti
engin samskipti við forseta dómsins vegar
frumvarpsins.
Þetta segir í yfirlýsingu sem Sigríður sendi
frá sér í gær í tilefni af umfjöllun og bréfum
Geirs H. Haarde um málið.
Sigríður getur þess hins vegar að 4. nóv-
ember hafi skrifstofustjóri í dómsmála- og
mannaréttindaráðuneytinu hringt í hana
til að ræða eitt ákvæði frumvarpsins, sem
reyndist vera 3. grein þess.
„Vegna aðstæðna gat ég ekki rætt þetta
í síma og úr varð að viðkomandi sendi
tölvupóst sem ég svaraði s.d. Í þeim
tölvupóstsamskiptum koma fram vangaveltur
okkar um túlkun þessa eina ákvæðis. Frum-
varpið í heild sinni sá ég ekki fyrr en það var
komið inn á vef Alþingis,“ segir Sigríður í
yfirlýsingunni.
Umrætt ákvæði í frumvarpinu er svohljóð-
andi: „Ef kveða þarf upp úrskurð um rann-
sóknaraðgerðir eða um atriði varðandi rekst-
ur máls skal forseti dómsins kveðja til tvo
aðra úr röðum hinna löglærðu dómara til að
standa að því með sér.“ - bþs
Saksóknari fékk ekki frumvarp til breytinga á landsdómslögum til umsagnar:
Vangaveltur um túlkun eins ákvæðis
SIGRÍÐUR FRIÐJÓNSDÓTTIR Saksóknari Alþingis fékk
frumvarp Alþingis um breytingar á lögum um landsdóm
ekki til umsagnar og átti engin samskipti við forseta
landsdóms vegna frumvarpsins.
Um 60 vistmenn í Breiðavík
hafa sótt um sanngirnisbætur
Þegar hefur verið gengið frá um sextíu umsóknum um sanngirnisbætur vegna illrar meðferðar og ofbeldis
á Breiðavíkurheimilinu. Búist er við að þær verði um níutíu. Úrskurðað verði um bæturnar í febrúar.
GREITT ÚR MÁLUM Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vegna vistheimila, hefur
leiðbeint fjölda manna við að útbúa umsóknir um bætur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Samkvæmt lögunum geta hámarksbætur orðið sex milljónir króna. Við
ákvörðun um fjárhæð til hvers og eins á sýslumaður að líta til: 1) alvarleika
ofbeldis eða illrar meðferðar, þar með talið með tilliti til tímalengdar vistun-
ar og annarra aðstæðna sem kunna að hafa gert reynsluna sérlega þung-
bæra, 2) alvarleika afleiðinga ofbeldis eða illrar meðferðar, bæði afleiðinga
sem unnt er að leggja læknisfræðilegt mat á og annarra erfiðleika og missis
tækifæra sem rekja má til hinna bótaskyldu atvika.
Mest sex milljónir
ÍTALÍA, AP Mótmæli námsmanna í
Róm snerust í gær um stund upp
í harkaleg átök við lögreglu, sem
beitti táragasi á mótmælendur,
sem köstuðu eggjum, tómötum
og reyksprengjum í lögregluna.
Stúdentar í Róm hafa undan-
farið mótmælt niðurskurði til
háskóla á fjárlögum.
Fjölmennt lið lögreglu var
á torginu fyrir utan þinghúsið
í Róm til að koma í veg fyrir
að mótmælendur kæmust að
þinghúsinu.
Þar fyrir innan sátu þingmenn
og ræddu nýtt fyrirkomulag
háskóla, sem margir hafa
gagnrýnt fyrir að gera ráð
fyrir of mikilli þátttöku einka-
fyrirtækja. - gb
Stúdentar mótmæla í Róm:
Mótmæli sner-
ust upp í átök
MÓTMÆLI Í RÓM Til átaka kom um
stund í gær fyrir utan þinghúsið.
NORDICPHOTOS/AFP