Fréttablaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 50
9. DESEMBER 2010 FIMMTUDAGUR
SLT-A55
Byltingarkennd myndavél með gegnsæjum spegli sem tryggir tökuhraða
uppá 10 ramma á sekúndu og hraðvirkasta autofocus í veröldinni,
HD Videotaka með autofocus. , Liveview kerfi gerir kleyft að nota skjáinn við
myndatöku.
Stórkostleg myndavél sem þú verður að prufa
DSC-W320
Gæðamyndavél með Carl Zeiss Vario Tessar linsu sem tryggir frábær
myndgæði 4 x optical aðdráttur (26-105 mm), 14.1 milljón pixla Super HAD
myndflaga.
Verð 29.990.-
DSC-W350
Hágæða myndavél með Panorama myndatöku og HD video
14.1 milljón pixlar Super HAD myndflaga
BIONZ örgjörvi tryggir skarpar myndir og mikinn tökuhraða
Carl Zeiss Vario Tessar linsa
4 x optical aðdráttur
Verð 36.990.-
NEX-3D
Stórkostleg lítil myndavél með DSLR eiginleikum 14,2 megapixla Exmor APS
CMOS HD myndflaga
tökuhraði 7 rammar á sekúndu, HD Videotaka, Sweep Panorama myndataka,
16mm F 2.8 og 18-55 linsur fylgja.
Tilboð 139.990.- Taska og aukarafhlaða fylgja.
Sony Center í Kringlunni býður
upp á Sony-myndavélar af
nýjum gerðum. Eyjólfur Jó-
hannsson, vörustjóri, segir um
byltingu að ræða.
Sony NEX er myndavél sem býður
upp á atvinnumyndgæði í vasa-
stærð,“ segir Eyjólfur Jóhanns-
son, vörustjóri hjá Sony Center.
„Nex-5 og Nex-3 sameina vasa-
vél og DSLR-myndavél með því
að bjóða upp á myndflögu og töku-
hraða DSLR-vélar í húsi sem er
60% minna og 270g léttara en hefð-
bundin DSLR myndavél. Mynd-
flagan í Nex-vélum er af APS-
C-stærð, sem er margfalt stærri
flaga en er að finna í vasamynda-
vélum. Það þýðir að mun stærri
flötur grípur ljósið sem berst um
linsuna og myndgæðin verða mun
meiri. Nex-vélin getur líka tekið
hraðar en fólk á að venjast bæði af
vasa- og DSLR myndavélum, eða 7
ramma á sekúndu.“
Hvað fleira gerir Nex-vélarn-
ar sérstakar? „Nex-vélarnar eru
með skiptanlegum E-mount lins-
um. Það er auk þess hægt að fá
millihring á þær fyrir Sony Alpha
og Minolta linsur og enn fremur
fyrir Canon linsur,“ segir Eyjólf-
ur. „Nex-5 getur tekið hnífskarp-
ar Full HD-myndskeiðsupptökur
með fullum auto fókus og er því af-
bragðs tökuvél fyrir utan að vera
einstök myndavél.“
Þess má geta að Nex-5 fékk
Eisa-verðlaunin eftirsóttu 2010-
2011 fyrir besta Micro System
Camera og var auk þess valin Am-
erican Photo Editors Choice, sem
ein besta myndavélin sem gefin
var út á árinu.
Eyjólfur lætur ekki hér stað-
ar numið. „Sony Nex-vélarnar
eru bylting hvað smáa stærð á vél
með skiptanlegum linsum og stóra
myndflögu snertir, en Sony lét ekki
þar við sitja á árinu heldur hratt
annarri byltingu af stað með SLT-
A55. Í venjulegum DSLR-mynda-
vélum er spegill sem þarf að fær-
ast úr stað til að hægt sé að taka
mynd. SLT-vélin notar hálfgegn-
sæjan spegil sem hleypir ljósi í
gegnum sig en speglar því líka svo
fókusnemi geti verið sívirkur án
þess að hindra vélina í töku. Speg-
illinn hreyfist því ekkert úr stað
og vélin getur tekið hraðar auk
þess að geta tekið Full HD vídeó
með lifandi autofókus, sem gerir
hana að sérlega hentugri töuvél.
SLT-vélin notar Sony Alpha-lins-
urnar og getur einnig notað Min-
olta-linsur.“
Og það er fleira sem gerir SLT-
vélina einstaka að sögn Eyjólfs.
„Í stað hefðbundins leitara er
SLT-vélin með rafrænan leitara
sem sýnir myndina á 1,4 megap-
ixla LCD-skjá, en einnig á stórum
LCD-skjá á vél. Leitarinn er svo
skarpur að leikur einn er að vinna
með handvirkan fókus og átta sig
á skerpu myndarinnar sem verið
er að taka, sem var vandamál í
eldri vélum með rafrænan leitara
(EVF). Rafrænn leitarinn getur
auk þess sýnt alls kyns upplýsing-
ar á sama tíma og myndað er, og
sem dæmi má nefna sérlega þægi-
legt hallamál sem hjálpar til við
að ná láréttum myndum við erfið-
ar aðstæður.“
Samkvæmt dpreview.com nær
SLT-vélin að státa af besta Live
View-autofókus kerfinu og bestu
getunnni í sínum verðflokki til að
taka margar myndir í röð vegna
þess að fókusneminn er alltaf virk-
ur. SLT-vélin er auk þess með inn-
byggt GPS og nýja 16,7 milljón
pixla CMOS-flögu sem skilar frá-
bærum myndgæðum. „Vélin fékk
gullverðlaun á rómaða myndavéla-
vefnum dpreview.com,“ segir Eyj-
ólfur, „og allir sem eru að íhuga
myndavélakaup ættu að íhuga
þennan kost vandlega.“
Lítil myndavél sem skilar
atvinnumyndgæðum
Vasamyndavélarnar frá
Sony eru að gera góða
hluti í ár sem endra-
nær. Sony DSC-HX5V
fékk EISA verðlaun og
Exmor R flagan ásamt
Sweep panorama hafa
vakið verðskuldaða at-
hygli. Sony hefur nú
fært sig yfir í SD minn-
iskort ásamt því að geta
áfram notað Sony Mem-
oryStick og því auðveld-
ara en fyrr að nálgast minn- is-
kort í vélarnar. Með Smile-shutter
er hægt að tryggja að vélin smelli
af þegar fólk brosir og Geo-
tagging skráir hvar í heim-
inum myndin er tekin. Eld-
snöggar að taka myndir,
lithium hleðslurafhlöður
fyrir langa endingu og ein-
falt og þægilegt viðmót
eru allt atriði sem gera
Sony Cyber-shot vélarnar
að uppáhaldi margra, enda
meðal mest seldu mynda-
vélanna í heiminum í dag.
Þess má geta að 4GB minn-
iskort fylgir öllum Sony Cyber-
shot vélum í Sony Center fram að
jólum.
Eldsnöggar og margverðlaunaðar
vasamyndavélar frá Sony
„Sony Nex vélarnar eru bylting,“ segir Eyjólfur Jóhannsson, vörustjóri Sony Center í
Kringlunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson s. 512 5411
Sony Cyber Shot er meðal mest seldu
myndavélanna í heiminum í dag. Það
má meðal annars þakka einföldu og
þægilegu viðmóti.