Fréttablaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 75
LAUGARDAGUR 11. desember 2010 3
Helgin verður viðburðarík í
Café Flóru í Grasagarðinum
í Laugardal, þar sem meðal
annars verður boðið upp á
ljúfa tóna og upplestur úr
nýjum bókum.
Jólabasar verður á kaffi-
húsinu báða dagana milli
klukkan 13 til 18 og alls kyns
skemmtilegir gestir kíkja í
heimsókn. Skólahljómsveit
Austurbæjar leikur fyrir
gesti í dag klukkan 14.30 og
aftur klukkan 16 og rithöf-
undurinn Guðrún Helgadóttir
les upp úr nýjustu bók sinni,
Lítil saga um latan unga,
klukkan 15.30.
Á morgun slær gítarleikar-
inn Enrique Canales Fuentes
gítarleikari á strengi klukkan
16 og hálftíma síðar les Helga
Thorberg upp úr bók sinni,
Loksins sexbomba á sextugs-
aldri. Þá mun Nikulás Magn-
ússon harmóníkuleikari þenja
nikkuna.
Loks má geta að gestum
og gangandi býðst að föndra
origami-verk og skreyta tré
til styrktar Umhyggju, félagi
langveikra barna.
Upplestur og ljúfir
tónar í Laugardal
Guðrún Helga-
dóttir les upp úr
nýjustu bók sinni,
Lítil saga um latan
unga.
Safnbúð Listasafns Íslands er með
fjölda listmuna, hönnunarvöru og
bækur til sölu.
Listasafn Íslands hefur í gegnum
tíðina gefið út fjölda bóka, tugi vegg-
spjalda og um 200 listaverkakort af
verkum úr safneign sem eru til sölu
í safnbúð. Þar er líka til sölu íslensk
hönnunarvara og listmunir og listræn
gjafavara frá Metropolitan Museum of
Art og MoMa í New York.
Þess má geta að um þessar mund-
ir stendur yfir lagersala í safnbúðinni
þar sem hægt er að kaupa listaverka-
bækur, gjafakort og plaköt á afslætti.
Verslunin er á jarðhæð safnsins við
Fríkirkjuveg. Hún er opin alla daga
milli klukkan 11 til 17, nema á mánu-
dögum. Nánari upplýsingar er að
finna á www.listasafn.is
Lagersala á bókum í safnbúðinni
Í Listasafni Íslands er að finna safnbúð
með listmuni, listaverkabækur og fleira.
Ný sending af trönum - mikið úrval.
20% afsláttur af öllum trönum til jóla.
M13
* kr. 15.752,-
M20
* kr. 12.121,-
M04
* kr. 108.529,-
M11
* kr. 19.080,-
M09
* kr. .27.364,-
M24
* kr. 18.324,-
M14
* kr. 7.240,-
Skútuvogur 1h (Barkarvogsmegin) - 104 Rvk.
S: 5858908 - egill@jarngler.is - www.jarngler.is
* verð með 20% afslætti
ÞORLÁKSMESSUTÓNLEIKAR 2010
Í HÁSKÓLABÍÓIBUBBI
MORTHENS
MIÐASALA ER HAFIN Á MIDI.IS.
Fyrir bústaðinn og heimilið