Fréttablaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 124
11. desember 2010 LAUGARDAGUR96
HANDBOLTI Það verður stórleikur og
sannkallaður toppslagur í N1-deild
karla í handbolta á morgun þegar
tvö efstu lið deildarinnar mætast
í Höllinni á Akureyri. Liðin hafa
bæði verið á miklu skriði í vetur
og auk sigurgöngu þeirra í deild-
inni eru þau bæði komin alla leið í
undanúrslit bikarsins.
Akureyrarliðið á ekki aðeins
möguleika á því að ná sex stiga
forskoti með sigri því liðið getur
einnig komist í hóp sex annarra
liða sem hafa náð þeim árangri að
vinna tíu fyrstu deildarleiki tíma-
bilsins.
Það stefnir í spennandi leik líkt
og í undanförnum tveimur leikjum
Akureyringa, sem norðan menn
hafa báða unnið með eins marks
mun. Akureyri vann fyrri leik lið-
anna með eins marks mun, 32-31,
eftir að Fram var með gott forskot
stóran hluta leiksins og meðal ann-
ars fjórum mörkum yfir í hálfleik,
17-13. Framliðið hefur síðan unnið
sex síðustu deildarleiki sína með
8,5 marka mun að meðaltali og
skoraði 36,2 mörk að meðaltali.
Það voru einmitt Framarar sem
enduðu sigurgöngu síðasta liðs sem
náði að vinna tíu fyrstu deildarleiki
sína. Haukar unnu 10 fyrstu leiki
sína 2001-2002 en gerðu svo 24-24
jafntefli við Fram í 11. umferðinni.
Markvörður Framara í dag, Magn-
ús Gunnar Erlendsson, var vara-
markvörður Sebastians Alexand-
erssonar í þessum leik og kom inn
á og varði vítakast frá Haukum.
Haukarnir voru þá fyrsta liðið í
ellefu ár til þess að byrja tímabil-
ið á tíu sigurleikjum.
Ellefu árum áður höfðu Víkingar
náð bestu byrjun í sögu deildar-
keppninnar með því að vinna 18
fyrstu leiki sína, allt þar til þeir
töpuðu fyrir Val á Hlíðarenda 30.
janúar. Það gekk reyndar allt á aft-
urfótunum eftir það og liðið end-
aði að lokum í öðru sæti bæði í
deild og bikar. Spilandi þjálfari
liðsins var Guðmundur Guð-
mundsson, núverandi lands-
liðsþjálfari, og varamark-
vörðurinn var Reynir Þór
Reynisson, núverandi þjálf-
ari Fram.
Hafa verður þó í huga að tvö lið
hafa unnið alla deildarleiki sína
á tímabili frá því að deildin inni-
hélt fyrst meira en sex lið tíma-
bilið 1971-1972.
Víkingar unnu alla fjórtán
deildarleiki sína veturinn 1979-
1980 sem og alla leiki sem liðið
spilaði.
Víkingur varð bæði Íslands-
og bikarmeistari þetta tímabil
og Íslandsmeistarabikarinn var í
Hæðargarði næstu fjögur árin eða
allt þar til FH-ingar brutu einokun
Víkinga veturinn 1983-84. FH-liðið
vann þá alla 14 deildarleiki sína og
9 fyrstu leiki sína í úrslitakeppn-
inni. FH-liðið tapaði ekki leik fyrr
en titillinn var kominn í hús. FH
fylgdi þessu síðan eftir með því að
vinna titilinn einnig árið eftir.
Atli með FH-ingum 1983-84
Meðal leikmanna í þessu FH-liði
fyrir 27 árum var einmitt Atli
Hilmarsson, núverandi þjálfari
Akureyrarliðsins.
Hann var þá þriðji markahæsti
leikmaður liðsins á eftir þeim
Kristjáni Arasyni og Þorgils Ótt-
ari Mathiesen en allir áttu þeir
eftir að spila stórt hlutverk með
landsliðinu næstu árin.
Valsmenn unnu þrettán fyrstu
leiki sína tímabilið 1988-89 en
það var seinna árið af tveimur
undir stjórn Pólverjans Stanislavs
Modrowski. Valsmenn bættu fyrir
fyrsta tap vetrarins með því að
tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn
með sigri á FH í næsta leik.
Fyrsta liðið til þess að vinna tíu
fyrstu deildarleiki sína á tíma-
bili var FH-liðið veturinn 1973-
74. FH-ingar unnu þá 12 fyrstu
leiki sína og voru orðnir Íslands-
meistarar þegar fyrsti leikurinn
Tíu sigrar í tíu leikjum hjá Akureyri?
Akureyri getur á morgun orðið aðeins sjöunda liðið á síðustu fjörutíu árum til þess að vinna fyrstu tíu
leiki tímabilsins í efstu deild karla í handbolta. Akureyri fær þá Fram í heimsókn í toppslag deildarinnar
en Safamýrarliðið hefur unnið alla sex leiki sína síðan liðin mættust í október.
FRÁBÆR BYRJUN Atli Hilmarsson, getur náð því að taka þátt í því að vinna tíu fyrstu leikina bæði sem leimaður (FH 1983-84) og
sem þjálfari en Akureyrarliðið hefur unnið 9 fyrstu deildarleikina undir hans stjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tíu af tíu hópurinn
FÓTBOLTI Hólmfríður Magnúsdótt-
ir var kosin knattspyrnukona árs-
ins af leikmannavali KSÍ.
Hólmfríður var fastamaður í
liði Philadelphia Independence
sem vann silfur í bandarísku
atvinnumannadeildinni. Hólm-
fríður var áfram einn af lykilleik-
mönnum íslenska landsliðsins.
Hún lék níu landsleiki á árinu
og skoraði í þeim sjö mörk, flest
allra í liðinu.
Í öðru sæti varð Þóra B. Helga-
dóttir sem varð sænskur meistari
með Malmö í Svíþjóð og Valskon-
an Dóra María Lárusdóttir varð
síðan í þriðja sæti. - óój
Knattspyrnukona ársins:
Hólmfríður best
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR Kosin í
fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÉIL
FÓTBOLTI Leikmannaval KSÍ hefur
valið Gylfa Þór Sigurðsson knatt-
spyrnumann ársins 2010.
Gylfi átti eftirminnilegt ár,
var einn af markahæstu mönn-
um í ensku b-deildinni á síðasta
tímabili (17 mörk í 38 leikjum),
og útnefndur leikmaður ársins
hjá Reading. Þýska úrvalsdeildar-
félagið Hoffenheim keypti Gylfa
í ágúst og þar hefur hann byrj-
að ákaflega vel, leikið 11 leiki og
skorað í þeim 5 mörk.
Gylfi var líka lykil-
maður í U21-liðinu
sem tryggði sér eftir-
minnilega sæti í
úrslitakeppni EM í
Danmörku. Hann
skoraði þrjú
eftirminnileg
mörk, eitt gegn
Þjóðverjum í
Kaplakrika og
tvö gegn Skot-
um í Edinborg.
Blikinn Alfreð
Finnbogason varð í
2. sæti í kjörinu og
í þriðja sæti varð
síðan Grétar Rafn
Steinsson leikmað-
ur Bolton. - óój
Knattspyrnumaður ársins:
Eftirminnilegt
ár hjá Gylfa
Haukar 2001-2002 Unnu 10 fyrstu
Þjálfari: Viggó Sigurðsson
Endir: Gerði 24-24 jafntefli við Fram.
Árangur: Deildarmeistarar en duttu út
úr undanúrslitunum í úrslitakeppninni
fyrir verðandi Íslandsmeisturum KA. Urðu
bikarmeistarar.
Víkingur 1990-1991 Unnu 18 fyrstu
Þjálfari: Guðmundur Guðmundsson
Endir: Tapaði 18-23 fyrir Val á útivelli
Árangur: Deildarmeistarar en urðu í 2.
sæti á eftir Val eftir sex liða úrslitakeppni.
Töpuðu fyrir ÍBV í bikarúrslitaleiknum.
Valur 1988-1989 Unnu 13 fyrstu
Þjálfari: Stanislav Modrowski
Endir: Tapaði 15-21 á móti Gróttu í 14.
umferð en tryggði sér Íslandsmeistara-
titilinn með sigri á FH í næsta leik.
Árangur: Íslandsmeistarar.
FH 1983-1984 Unnu14 fyrstu
Þjálfari: Geir Hallsteinsson
Endir: Vann alla deildarleiki og 9 fyrstu
leiki í úrslitakeppni.
Árangur: Íslandsmeistarar.
Víkingur 1979-1980 Unnu 14 fyrstu
Þjálfari: Bogdan Kowalczyk
Endir: Vann alla deildarleiki.
Árangur: Íslands- og bikarmeistarar.
Víkingur vann titilinn næstu fjögur árin.
FH 1973-1974 Unnu 12 fyrstu
Þjálfari: Birgir Björnsson (spilandi)
Endir: Tapaði 17-23 fyrir Val.
Árangur: Íslandsmeistarar.
tapaðist. Þetta var 26. og síðasti
Íslandsmeistaratitillinn sem Birg-
ir Björnsson, þá spilandi þjálfari
og fyrirliði FH-liðsins, vann með
Hafnarfjarðarliðinu.
Ekki gott að vinna tíu fyrstu
Nú er að sjá hvort Akureyring-
ar bætast í hópinn og verði sjö-
unda liðið sem nær því að vinna
tíu fyrstu deildarleiki sína á tíma-
bili. Það boðar kannski ekkert allt-
of gott að bætast í þann hóp því
tvö þau síðustu (Haukar 2002 og
Víkingur 1991) náðu ekki að vinna
Íslandsmeistaratitilinn um vorið.
Þau tvö lið sem hafa hins vegar
komist næst því að vinna 10 fyrstu
leikina á undanförnum 20 árum,
Haukar 2001 (unnu 9 fyrstu) og
Valur 1995 (unnu 8 fyrstu), tryggðu
sér hins vegar bæði Íslandsmeist-
aratitilinn um vorið.
Leikur Akureyrar og Fram hefst
klukkan 16.30 á morgun og má
búast við troðfullu húsi í Íþrótta-
höllinni á Akureyri.
ooj@frettabladid.is
sport@frettabladid.is
STJÖRNULEIKUR KKÍ fer fram í Seljaskóla í dag. Dagskráin hefst með undankeppni þriggja stiga skotkeppninnar klukkan
14.00. Framhaldið er síðan: 14.20 Skotkeppni stjarnanna. 14.40 „Celeb“-leikur. 15.15 Troðslukeppni. 15.45 Stjörnuleikurinn, fyrri
hálfleikur. 16.15 Úrslit í þriggja stiga skotkeppni og troðslukeppni. 16.30 Stjörnuleikurinn, seinni hálfleikur. Aðgangur er ókeypis.
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Laugardag frá kl. 10-17
Sunnudag frá kl. 13-17
Virka daga frá kl. 10-18
Sængurver
Frábærar jólagjafir!
Dúnkoddi
= 19.900,-
Allur pakkinn
Dúnsæng
++
6.980,-
2 pör
He
ils
ui
nn
is
kó
r s
em
lag
ar sig
að fætinum - einstök þæ
gindi
3.900,-
1 par
9.990,-
3 pör
Memory Foam
heilsuinniskór.
Heilsusamleg jólagjöf á frábæru verði!
Þrennutilboð!
Sen
dum
frítt
út á
land
!