Fréttablaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 2
2 11. desember 2010 LAUGARDAGUR LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum handtók karlmann á þrí- tugsaldri í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn á fíkniefnamáli sem upp kom í Leifsstöð á mánudagskvöld. Þá voru hjón á fertugsaldri tekin með tæplega þrjú hundruð grömm af kókaíni við komuna til landsins frá Kaupmannahöfn. Maðurinn sem handtekinn var í fyrrakvöld er búsettur í Reykjavík og hefur margoft komið við sögu hjá lögreglu, meðal annars vegna fíkni- efnamála. Síðdegis í gær var tekin sú ákvörðun að láta manninn lausan en hann liggur þó áfram undir grun um aðild að málinu. Hjónin sem handtekin voru á mánudagskvöldið eru einnig búsett í Reykjavík. Þau hafa aldrei komið við sögu hjá lörgeglu áður. Kókaínið fannst við hefðbundna leit tollgæslu í Leifsstöð. Konunni var sleppt eftir yfirheyrslur en maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. desember. Grunur leikur á að hann hafi verið burðardýr á vegum hins sem hand- tekinn var í fyrrakvöld, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Það er lögreglan á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins, sem hún segir vera á mjög viðkvæmu stigi. - jss LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM Handtók mann sem grunaður er um aðild að málinu. Þriðji maður handtekinn vegna kókaínmálsins í Leifsstöð síðastliðinn mánudag: Eiginmaðurinn talinn vera burðardýr MENNING Myndlistarmaðurinn Tolli á í samningaviðræðum við Iceland Express um að skreyta ytra byrði flugvéla fyrirtækisins. Tolli greinir frá þessu í samtali við menningarblað Fréttablaðs- ins, sem kemur út með blaðinu í dag. Í viðtalinu ræðir Tolli einnig samstarf sitt við Bónusverslan- irnar, sem selja eftirprentanir og bók með verkum eftir hann. Tolli segist hafa orðið var við að sumir hafi haft fyrirvara á þessu samstarfi. Tolli lítur hins vegar á það sem tækifæri til að þróa verk sín áfram og viðræðurnar við Iceland Express séu framhald af því. - bs / sjá Menningu Iceland Express leitar til Tolla: Vilja verk eftir Tolla á flugvélar Þorgrímur, ertu toppnáungi? „Mér skilst það á öllum þeim milljónum sem þekkja mig að ég sé alveg einstakur.“ Tvær bækur eftir Þorgrím Þráinsson eru á lista Félags bókaútgefanda yfir tíu sölu- hæstu bækurnar. Þokan er í áttunda sæti og Ertu Guð, afi? situr í tíunda sæti. FÓLK Hlynur Sigurðsson, starfs- maður frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks, er á heimleið eftir jeppaferð á suðurpólinn. Talið er að hraðamet hafi fallið í ferðinni þar sem 2.300 kílómetrar voru lagðir að baki á fjórum og hálf- um sólarhring. Hlynur, sem var bílstjóri og bifvélavirki í ferðinni, komst á pólinn aðfaranótt fimmtu- dags en var utan símasambands þegar fréttin var unnin. Hallveig Andrés dóttir, hjá Arctic Trucks, segir hins vegar í samtali við Fréttablaðið að ferðin hafi gengið að óskum. Sér- útbúnir Hilux- jepparnir hafi reynst vel. „Þessir bílar voru smíðaðir hér á Íslandi í sumar og próf- aðir hér, en eru í eigu manna frá Kasakstan sem eru að undir búa annan og stærri leið- angur á næsta ári.“ Þetta er annar leiðangurinn á stuttum tíma þar sem bílar Arctic Trucks ferja menn á pól- inn, en undir lok síðasta mánað- ar fór Eyjólfur Már Teitsson með hóp indverskra vísindamanna sömu leið. Hallveig segir að þriðji leið- angurinn leggi af stað á næstu dögum. Þar verður meðal annars í fyrsta sinn prófaður sex hjóla Hilux, en bílar fyrirtækisins hafa getið sér gott orð og eru nú tólf talsins á Suðurskautslandinu. „Við höfum verið þarna í þrjú ár og erum alltaf að sanna okkur betur á þessum slóðum,“ segir hún. „Þau tæki sem hafa hing- að til verið notuð þar eru miklu stærri og þunglamalegri og eyða margfalt meiri olíu en okkar bílar þannig að það eru ekki bara aukin þægindi, heldur eru þeir líka miklu umhverfisvænni.“ Eyjólfur stóð á pólnum með fyrsta leiðangrinum hinn 23. nóv- ember og segir samtali við Frétta- blaðið að upplifunin hafi verið einstök og um leið skemmtileg. „Þetta var alveg mögnuð reynsla og mjög mikill kuldi. Svona hef ég aldrei upplifað áður. Frostið mældist mest um 56 stig, fyrir utan vindkælingu.“ Aðspurður sagði hann að vel hafi farið um ferðalangana. „Það er munur að sitja inn i í hlýjum bíl og hann fer vel með mann. Maður keyrir bara og hlustar á tónlist nema eitthvað komi upp á.“ Eyjólfur segist ekki enn hafa fengið tækifæri til að bæta norður- pólnum í safnið. „Þeir eru ekki margir sem hafa ekið á báða pólana, en ég væri alveg til í að tilheyra þeim hópi.“ thorgils@frettabladid.is Íslenskir jeppar á methraða á pólinn Hlynur Sigurðsson er á leið til byggða eftir ökuferð á suðurpólinn með jeppum frá Arctic Trucks. Fór 2.300 kílómetra á 108 klukkutímum. Annar hópur er ný- kominn heim frá Suðurskautslandinu og sá þriðji heldur af stað um helgina. HALDIÐ Á PÓLINN Hlynur og hópur hans á leið frá Novo á suðurpólinn. Þeir komust á pólinn rúmum fjórum sólarhringum síðar og eru nú á heimleið. MYNDIR/EYJÓLFUR EYJÓLFUR MÁR TEITSSON Þetta var alveg mögn- uð reynsla og mjög mikill kuldi. Svona hef ég aldrei upplifað áður. EYJÓLFUR MÁR TEITSSON PÓLFARI TOLLI Iceland Express hefur áhuga á verkum listamannsins. TÆKNI Gosið í Eyjafjallajökli síðasta vor er einn af fimm stærstu atburðum ársins á heimsvísu. Þetta kemur fram í árlegri úttekt leitarvélarinnar Google, en auk gossins voru talin til jarðskjálftinn á Haítí, Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver, olíuslysið í Mexíkóflóa og Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Þetta mat Google er metið eftir því hversu oft er leitað að fréttum sem tengjast ákveðnum atburðum en ekki eru til nákvæmar fjöldatölur um leitar- beiðnir. Þetta þarf ekki að koma á óvart þar sem eldgosið, og öskuskýið sem því fylgdi, snerti milljónir manna um allan heim sökum raskana á samgöngum. Í skýringu á vef Google sem ber yfirskriftina Zeitgeist, eða tíðarandinn, sést glögglega hvernig Eyjafjallajökull heltók heimsbyggðina smám saman um nokkurra vikna skeið áður en um fór að hægjast. Á vef Google má einnig sjá hvað hefur hrifið net verja það sem af er ári, en iPad, spjallkerfið Chat roulette og ungstirnið Justin Bieber tóku hæstu stökkin frá fyrra ári. Svínaflensan og Susan Boyle voru hins vegar á meðal þeirra sem hrundu í netvin- sældum. - þj Eldgosið í Eyjafjallajökli þykir einn af stærstu atburðum ársins á Google: Eyjafjallajökull heltók heimsbyggðina GOSIÐ GÚGGLAÐ Fréttir af öskuskýinu frá Eyjafjallajökli voru eitt vinsælasta leitarefnið á Google á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVÍÞJÓÐ Nokkrir fyrrverandi aðstandendur uppljóstrunar- síðunnar Wikileaks ætla á mánu- daginn að opna nýjan upp- ljóstrunarvef, sem á að nefnast Openleaks. Frá þessu skýrir sænska dag- blaðið Dagens Nyheter og vitnar í mennina, sem kjósa þó að vera ónafngreindir. Þeir segjast hafa hrakist frá Wikileaks vegna erfið- leika í samskiptum við Julian Assange, stofnanda vefsins. Þeir segja markmiðið að setja upp vef þar sem tæknimál verði kláruð, sem ekki hafi tekist hjá Wikileaks, og lýðræði verði í hávegum haft frekar en að einn maður eða einn hópur ráði öllu. - gb Hröktust frá Wikileaks: Stofna annan uppljóstraravef VIÐSKIPTI Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar Alþingis, vill að stjórnvöld endurskoði rekstrarleyfi greiðslukorta- fyrirtækjanna hér á landi í kjölfar upp- sagnar þeirra á samningi við Wikileaks. Rúv sagði frá mál- inu í gær. Fulltrúar Valitor og Borgunar sátu fyrir svörum á fundinum. Róbert segir þá hvorki hafa getað vísað í fordæmi né lög ákvörðun sinni til stuðnings. Hann segir blasa við að fyrirtækin hafi látið undan þrýstingi bandarískra stjórnvölda. Það séu alvarleg tíð- indi fyrir félagasamtök að geta átt á hættu að greiðslur til þeirra verði stöðvaðar birti það upplýs- ingar sem séu erlendum stjórn- völdum ekki þóknanlegar. - shá Kortafyrirtækin og Wikileaks: Vill endurskoða rekstrarleyfin RÓBERT MARSHALL SAMFÉLAGSMÁL Starfsmenn Lands- bankans hafa safnað rúmum sex milljónum króna til styrktar Mæðrastyrksnefnd, Hjálpar- starfi kirkjunnar, Hjálpræðis- hernum og Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands. Þetta er annað árið í röð sem starfsfólk bankans léttir undir með hjálparstarfi í landinu. Mörg hundruð manns lögðu sitt af mörkum með frjálsu framlagi í sjóðinn og starfsmannafélag Landsbankans tvöfaldaði þá upp- hæð sem safnaðist. - sv Starfsfólk gefur fyrir jólin: Söfnuðu um sex milljónum LÖGREGLUMÁL Tollgæslan lagði hald á talsvert magn af smygl- varningi við leit í flutningaskipi í síðustu viku. Alls fundust rúm- lega 110 lítrar af sterku áfengi, 9 lítrar af léttu áfengi og rúmlega 132 lítrar af bjór. Einnig var lagt hald vindlinga og snus auk kjöts og fatnaðar. Hópur tollvarða og fíkniefna- hundar tóku þátt í leitinni. Árlega gerir Tollgæslan upptækt mikið magn af ólöglega innfluttum varningi sem reynt er að smygla til landsins. - sv Lagt hald á smyglvarning: Rúmlega 150 lítrar af áfengi SPURNING DAGSINS tSöguleg skáldsaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.