Fréttablaðið - 31.03.2011, Qupperneq 2
31. mars 2011 FIMMTUDAGUR2
DÓMSMÁL Máli tannlæknis á Suð-
urnesjum sem ákærður hafði verið
fyrir fjársvik, með því að framvísa
til Tryggingastofnunar reikningum
vegna tannviðgerða sem hann hafði
ekki unnið, var í gær vísað frá dómi
í Héraðsdómi Reykjaness. Dómur-
inn sagði „bresta svo mjög á skýr-
leika verknaðarlýsingar í ákæru að
ákærða verði með réttu ekki talið
fært að taka afstöðu til sakargifta
og halda uppi vörnum gegn þeim“.
Forsaga þessa máls, sem verið
hefur í gangi árum saman, er sú að
18. september 2006 kærði Trygg-
ingastofnun ríkisins tannlækn-
inn til lögreglu og krafðist þess að
fram færi opinber rannsókn á ætl-
uðum auðgunarbrotum hans í starfi
sem tannlæknir með röngum reikn-
ingsfærslum á hendur stofnuninni.
Í kærunni kom fram að tannlækn-
irinn hefði til margra ára skorið sig
verulega úr í samanburði við aðra
tannlækna í því hve margar við-
gerðir hann gerði í munni hvers og
eins. Hefði TR leitað eftir skýring-
um á þessu hjá tannlækninum en
ekki verið sátt við skýringar hans.
Mikið var fjallað um málið í fjöl-
miðlum og var jafnvel talið, sam-
kvæmt upplýsingum sem þeim voru
veittar, að svikin næmu allt að 200
milljónum króna síðustu þrjátíu
ár, uppreiknað til nóvember 2007.
Samkvæmt ákærunni sem síðan
var þingfest var tannlækninum
gefið að sök á hafa á árunum 2003
til 2006 svikið út rúmar 129 þúsund
krónur vegna 34 tannviðgerða í ell-
efu einstaklingum. Niðurstöðum
tveggja matsmanna sem fengnir
voru hvor í sínu lagi með þriggja
ára tímabili til að skoða sama
sjúklingahóp tannlæknisins bar
ekki saman. Annar sagði 164 fyll-
Máli tannlæknisins
var vísað frá dómi
Máli tannlæknisins á Suðurnesjum sem ákærður hafði verið fyrir fjársvik var
vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Tryggingastofnun kærði tannlækninn
til lögreglu í september 2006 og hafði málið verið í gangi árum saman.
Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir úrskurð
Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að vísa máli tannlæknisins á Suður-
nesjum frá vera vonbrigði.
Sjúkratryggingar Íslands höfðu gert einkaréttar kröfu í málinu um að tann-
lækninum yrði gert að endur greiða allt að ríflega 23 milljónir króna. Spurður
hvernig þessi tala væri tilkomin svaraði Steingrímur Ari því að unnið hefði
verið út frá matsgerðum dómkvaddra matsmanna.
„Krafan var grundvölluð á því tjóni sem Sjúkratryggingar Íslands töldu sig
hafa orðið fyrir,“ sagði hann.
Steingrímur Ari sagði mögulegt framhald málsins á hendi ákæruvaldsins.
Úrskurðurinn vonbrigði
TANNVIÐGERÐIR Um leið og tannlæknirinn fékk matsgerð dómkvadds sérfræð-
ings í hendur kannaði hann gögn sín og í ljós kom að eðlilegar skýringar voru á
nánast öllum þeim tilvikum sem matsmaðurinn hafði gert athugasemdir við.
ingar vanta en hinn gat ekki greint
34 fyllingar. Tannlæknirinn kvaðst,
eftir könnun gagna sinna, eðlilegar
skýringar vera á nánast öllum þeim
tilvikum sem síðarnefndi matsmað-
urinn gerði athugasemdir við.
Í niðurstöðu dómsins segir að
í ákæru hafi ekki verið tilgreind
rétt fjárhæð þeirra reikninga sem
tannlækninum var gefið að sök
að hafa framvísað við Trygginga-
stofnun. Þá væru dagsetningar og
númer reikninganna ekki tilgreind
í ákæru og verknaðarlýsing óljós.
Í ljósi þessa var málinu vísað frá
dómi. jss@frettabladid.is
LÍBÍA, AP Liðsmenn Múammars Gaddafí náðu olíu-
borginni Ras Lanúf aftur á sitt vald í gær úr hönd-
um uppreisnarmanna. Einnig var hart sótt að upp-
reisnarmönnum í olíuborginni Brega.
Uppreisnarmenn kvörtuðu undan því að þeir
fengju ekki nægan stuðning frá Vesturlöndum, sem
þó hafa haldið áfram loftárásum á her Gaddafís.
Loftárásirnar hafa gert flugher Gaddafís lítt not-
hæfan og valdið verulegu tjóni á landher hans, en
uppreisnarmenn eru engu að síður mun verr búnir
til bardaga eftir sem áður.
Bæði David Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, og Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hafa sagt ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna fela í sér heimild til að
styrkja uppreisnarmenn með því að útvega þeim
vopn.
„Ég útiloka það ekki en ég segi heldur ekki að af
því verði,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti
í sjónvarpsviðtali.
Frá Úganda bárust í gær boð um að Gaddafí gæti
fengið þar hæli til frambúðar, en ekkert bendir til
þess að hann hafi hug á að fara úr landi. - gb
Harðir bardagar geisuðu í gær um tvær mikilvægar olíuborgir í Líbíu:
Uppreisnarmenn á undanhaldi
Á FLÓTTA UNDAN GADDAFÍ Uppreisnarmenn óku á fleygiferð
frá Ras Lanúf til Brega í gær. NORDICPHOTOS/AFP
HÚSNÆÐISMÁL Íbúðalánasjóður
(ÍLS) mun að öllum líkindum kalla
eftir endurmati á flestum þeim
eignum þar sem sótt verður um
niðurfærslu lána. Frumvarp sem
heimilar ÍLS að færa veðkröfur
niður að 110 prósentum af verð-
mæti fasteignar var samþykkt á
þingi á þriðjudag.
Rúmlega 9.000 lántakendur gætu
átt rétt á niðurfærslu að sögn Sig-
urðar Erlingssonar, framkvæmda-
stjóra ÍLS, en hann segir í samtali
við Fréttablaðið að kostnaður-
inn við hvert verðmat sé á bilinu
10.000 til 20.000 krónur og sjóður-
inn muni bera allan þann kostnað.
Sigurður telur þó ekki að kostn-
aðurinn verði verulegur í heildar-
samhengi hlutanna.
„Í sumum tilvikum endurspeglar
verðmat ekki raunmat fasteigna og
þá getur endurmat orðið til þess
að hækka verð á eignum og lækka
þannig afskriftir hjá okkur.“
ÍLS mun velja sér matsaðila frá
hverju tilfelli fyrir sig, en vinnur
út frá gildandi samkomulagi við
Félag fasteignasala um sölu og mat
á eignum.
„Við miðum að því að nota þá
sala sem sem næst eru hverri eign
en reynum að dreifa þessu nokkuð
jafnt. Það hægir kannski á ferlinu
en kosturinn við þetta er að jafn-
ræðissjónarmiða er gætt. - þj
Frumvarp um niðurfærslu lána Íbúðalánasjóðs samþykkt á Alþingi:
Stefna að endurmati eignanna
NIÐURFÆRSLA Íbúðalánasjóður mun að
öllum líkindum framkvæma endurmat
á verðmæti eigna þar sem sótt er um
niðurfærslu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Auður, stíga menn ekki í vitið í
skipulagsmálum á Arnarnesi?
„Hafa menn ekki bara hlaupið á sig?“
Auður Hallgrímsdóttir, varamaður í
skipulagsnefnd Garðabæjar, segir það
óviðunandi að ekki verði gert ráð fyrir
göngustígum meðfram ströndinni á
Arnarnesi í breyttu deiliskipulagi.
Hrinti lögreglumanni
Ríkissaksóknari hefur ákært mann
á fertugsaldri fyrir að ráðast með
ofbeldi á lögreglumann við störf
á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ.
Manninum er gefið að sök að hafa
hrint lögreglumanninum, þannig að
hann hlaut eymsl af.
DÓMSTÓLAR
REYKJAVÍKURBORG Íbúasamtök
miðborgar Reykjavíkur segja
í bréfi til borgaryfirvalda að
ótækt sé „að tilteknir eigendur
fasteigna fari þannig að ráði
sínu að tjón hljótist á eignum
annarra eigenda í nágrenninu“.
Andstætt sé hagsmunum
nágranna og almennings ef það
viðgangist að „óreiðuhús“ fái að
drabbast niður og samtökin vilji
að ekki verði „hikað við að beita
heimild til dagsekta til að knýja
húseigendur til að halda húsum í
viðunandi ástandi“.
Í bréfi sem samtökin sendu
þáverandi formanni skipulags-
ráðs í febrúar í fyrra var stung-
ið upp á því að ef ekki yrði
brugðist við gæti borgin eignast
viðkomandi húseignir og „síðan
úthlutað þeim til þeirra sem
áhuga hafa á að eignast þær og
lagfæra“. - gar
Íbúasamtök skora á borgina:
Beitið skussana
dagsektum
ALGENG SJÓN Viðhaldi sumra húsa í
miðborginni er lítt sinnt.
SAMGÖNGUR Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra býður
Reykjavíkurborg þá sátt að koma
upp færanlegri flugafgreiðslu á
Reykjavíkurflugvelli. „Norður-
suðurbrautinni verður lokað eftir
fimm ár, og vellinum síðan alfar-
ið eftir þrettán ár, samkvæmt
stefnu borgarinnar, en fyrr í
vetur höfnuðu ráðamenn hennar
áformum um samgöngumiðstöð,“
segir visir.is.
Ögmundur segist hafa lagt til
að nýtt húsnæði verði við hlið
Flugfélagsafgreiðslunnar. Ekki
séu til peningar til að flytja
flugvöllinn. „Þannig að það er
tómt mál um það að tala,“ sagði
Ögmundur á Alþingi. - gar
Styður Reykjavíkurflugvöll:
Engir peningar
fyrir flutningi
FÉLAGSMÁL Stefán Einar Stefáns-
son viðskiptasiðfræðingur er nýr
formaður VR. Úrslit formanns-
kjörs í félaginu
voru kynnt í
gær.
Stefán hlaut
20,6 prósent
atkvæða. Alls
höfðu sjö gefið
kost á sér, og
fékk sá sem
næstur kom
um 18 prósent
atkvæða.
Fremur
dræm þátttaka var í kosningun-
um, og greiddu aðeins um sautj-
án prósent félagsmanna atkvæði
í formannskjörinu.
Nokkurrar ólgu varð vart
meðal félagsmanna VR í gær
vegna úrslita kjörsins. Nokkuð
var um að félagsmenn í VR hefðu
samband við Bandalag háskóla-
manna í gær til þess að kanna
stöðu sína ef þeir skiptu um
stéttarfélag. - bj
Úrslit formannskjörs VR kynnt:
Stefán Einar
nýr formaður
STEFÁN EINAR
STEFÁNSSON
BORGARBYGGÐ Byggðaráð Borgar-
byggðar samþykkir að veita Orku-
veitu Reykjavíkur 75 milljóna
víkj andi lán með fyrirvara um að
bærinn eigi féð ekki handbært.
Borgarbyggð á 0,93 prósenta
hlut í OR og á samkvæmt áætlun
að leggja fyrirtækinu til 12 millj-
óna króna lán að auki á næsta ári.
Fráveitugjald hækkar aðeins um 8
prósent í Borgarbyggð í stað 45 pró-
senta vegna þess að framkvæmdir
við fráveitu frestast og fráveitu-
gjöld hafa verið mun hærri þar en
hjá öðrum eigendum Orkuveitunn-
ar, segir á vef Borgarbyggðar. - gar
Borgarbyggð leggur inn í OR:
Lána þótt fé sé
ekki handbært
SPURNING DAGSINS