Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 10
31. mars 2011 FIMMTUDAGUR10
SKIPULAGSMÁL „Þessi fundur er
til að leggja fram kynningu og fá
athugasemdir íbúanna,“ segir Stef-
án Konráðsson, formaður skipu-
lagsnefndar Garðabæjar, um fund
í Sjálandsskóla í kvöld um skipu-
lagsmál á Arnarnesi.
Stefán segir það ekki rétt sem
komið hafi fram hjá Auði Hall-
grímsdóttur, varamanni lista
Fólksins í bænum í skipulags-
nefnd, að á íbúafundinum yrðu
lögð fram drög að nýju deili-
skipulagi heldur yrðu þar kynnt
áhersluatriði skipulagsnefndar og
ýmis álitamál.
„Þegar við erum búin að fá fram
athugasemdir og sjónarmið eftir
fundinn verður unnin deiliskipu-
lagstillaga sem verður að sjálf-
sögðu auglýst. Þá gefst aftur tæki-
færi til að gera athugasemdir,“
útskýrir Stefán.
Þá segir Stefán það ekki rétt
að gert sé ráð fyrir stíg meðfram
ströndinni á Arnarnesi í aðal-
skipulagi. Við gerð aðalskipulags
árið 1995 hafi þáverandi skipu-
lagsnefnd fallið frá þeirri hug-
mynd. „Hugmyndinni var mót-
mælt kröftuglega af fjölmörgum
íbúum á þessum stað á þeim tíma.
Eignarhaldið og legan var þann-
ig að það var talið illframkvæm-
anlegt að standa að stígagerð.
Hins vegar sýnir aðalskipu-
lagið svokallaða útivistarleið,
sem þýðir að öllum er heimil
för um fjöruna,“ segir hann.
Í Fréttablaðinu í gær var
einnig fjallað um óánægju
íbúa í Túnunum sem segj-
ast verða fyrir ónæði frá
nálægu skátaheimili og klúbb-
húsi Kiwanis-manna. Stefán segir
að á fundi á dögunum með íbúum
hverfisins hafi þessar athuga-
semdir komið fram. „Við munum
vinna með þær og koma síðan með
okkar tillögu í nýju deiliskipulagi,“
segir formaður skipulagsnefndar
Garðabæjar. gar@frettabladid.is
Eignarhaldið og legan
var þannig að það var
talið illframkvæmanlegt að
standa að stígagerð.
STEFÁN KONRÁÐSSON
FORMAÐUR SKIPULAGSNEFNDAR
GARÐABÆJAR
2. apríl 2011 kl. 10:00 - 16:00
Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð
Dagskrá á www.sniglar.is
MÁLÞING
UM HAGSMUNI BIFHJÓLAFÓLKS
Útivistarleiðir
en ekki stígar
á Arnarnesi
Kröftug mótmæli íbúa og vafi um eignarhald urðu
til þess að þáverandi skipulagsnefnd hætti við stíga
á strandlengju Arnarness við gerð aðalskipulags, að
sögn formanns skipulagsnefndar Garðabæjar.
STEFÁN KONRÁÐSSON Kynnt
verða áhersluatriði varðandi breyt-
ingar á deiliskipulagi Arnarness á
íbúafundi, segir formaður skipulags-
nefndar Garðabæjar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ARNARNES Íbúar á Arnarnesi mótmæltu þegar til stóð að setja göngustíga fyrir
almenning neðan við sjávarlóðir á aðalskipulag fyrir hálfum öðrum áratug.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
STJÓRNLAGARÁÐ Óvíst er hvort sá
sem lenti í 26. sæti í kosningum
til stjórnlagaþings þiggur sæti
í stjórnlagaráði. Fyrsti fundur
stjórnlagaráðs er áformaður næst-
komandi miðvikudag.
Staðfest var í gær að 24 af þeim
25 sem náðu kjöri í kosningum
til stjórnlagaþings tækju sæti í
stjórnlagaráði. Aðeins Inga Lind
Karlsdóttir hafnaði því að taka
sæti. Frestur sem þau sem náðu
kjöri höfðu til að svara því hvort
þau tækju sæti í ráðinu rann út að
kvöldi síðastliðins þriðjudags.
Íris Lind Sæmundsdóttir varð
í 26. sæti í kosningunum,
og hefur henni því verið
boðið sæti Ingu Lindar á
þinginu.
Íris sagðist í sam-
tali við Fréttablaðið í
gær ekki hafa ákveð-
ið hvort hún tæki sæti
í stjórnlagaráði. Hún
hefur frest fram að
helgi til að tilkynna um
ákvörðun sína.
Eins og fram hefur
komið ógilti Hæsti-
réttur kosning-
ar til stjórn-
lagaþings. Í kjölfarið ákvað
Alþingi að skipa þá sem
náðu kjöri í stjórnlaga-
ráð. Ráðinu er ætlað að
endurskoða stjórnarskrá
lýðveldisins. Niðurstaða
ráðsins mun ekki ráða
úrslitum um breyting-
ar á stjórnarskránni,
þar sem það er aðeins
Alþingi til ráðgjafar. - bj
Alls ætla 24 af 25 sem kjörnir voru á stjórnlagaþing að taka sæti í stjórnlagaráði:
Óvíst hvort varamaður þiggur sæti
ÍRIS LIND
SÆMUNDS-
DÓTTIR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
HROLLKALDUR Harry prins var
kuldalegur á að líta þegar hann steig á
Norðurpólinn í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært tvítugan mann fyrir sér-
staklega hættulega líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að
hafa slegið annan mann með járn-
eða álröri í höfuðið. Fórnarlambið
hlaut skurð á enni sem sauma
þurfti saman. Atvikið átti sér stað
aðfaranótt sunnudagsins 20. júní
2010, á bifreiðaplani söluturns-
ins Aðalbrautar, við Víkurbraut
í Grindavík. Sá sem sleginn var
gerir einkaréttarkröfu í málinu.
Hann vill fá nær 900 þúsund krón-
ur úr hendi árásarmannsins. - jss
Sérlega hættuleg árás:
Barði mann í
höfuð með röri