Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 35
Starfsmenn Íslenzku
húðflúrstofunnar hafa verið
sigursælir í keppnum og
standa bestu tattúmeisturum
heims á sporði. Þeir gera mest
af stórum, litríkum myndum.
„Við sækjum ekki lengur um að
komast á ráðstefnur heldur er
okkur boðið á þær út um allan
heim,“ segir Jón Páll Halldórs-
son, annar eigenda Íslenzku húð-
flúrstofunnar á Hverfisgötu 39.
Hinn gengur undir nafninu Búri.
Þegar þessar línur birtast eru þeir
og samstarfsmaður þeirra, Fjölnir
Bragason, einmitt á leið á húðflúr-
ráðstefnu og sölusýningu í Kaup-
mannahöfn, eina þá merkustu í
Evrópu þetta árið að þeirra sögn.
„Þarna verða stærstu nöfnin í
bransanum,“ segir Jón Páll sem er
bókaður alla helgina við að tattú-
vera ráðstefnugesti. „Þetta er öðru
vísi en margir halda,“ tekur hann
fram. „Fólk sér fyrir sér blek,
blóð og villimennsku á svona sam-
komum en allt er mjög vel skipu-
lagt, hreint og fínt og ekkert rugl
í gangi. Þó menn séu þarna víga-
legri en verstu fautar þá er þetta
allt ljúfasta fólk.“
Jón Páll segir mikla þróun hafa
átt sér stað í húðflúrinu frá því
hann byrjaði en hann lærði það úti
í Aþenu fyrir 17 árum. Heimkom-
inn opnaði hann stofu, kenndi þar
Fjölni fræðin og þeir ráku saman
stofuna í nokkur ár. Jón Páll
hélt aftur utan til náms og lærði
teiknimyndagerð upp á gamla
mátann, vann síðan hjá tölvuleikja-
fyrirtæki við Play Station-leik, fór
þaðan til CCP og hannaði persón-
urnar fyrir fyrstu útgáfuna af
leiknum EVE Online, en um leið
og leikurinn kom út fór hann yfir
til Latabæjar og vann þar í þrjú ár.
„Ég hafði yfirgefið tattúið með
bros á vör því mér fannst það svo
staðnað en árið 2005 fór ég aftur
að horfa til bransans. Þá voru
komnir litir og brjálaðar mynd-
ir og þar með opnaðist möguleiki
á að taka teikninguna og mynd-
listina út í ystu æsar. Nú lítum við
á tattú sem listaverk. Við prentum
ekki lengur mynstur eftir pöntun-
um heldur teiknum allt frá grunni.
Sumir viðskiptavinirnir koma
samt með hugmyndir sem líkja
má við fræ.“
Lítum á tattú sem list
Fjölskyldustemning hjá starfsfólki Íslenzku húðflúrstofunnar, Jóni Páli, Berglindi, Sindra og Fjölni. Búra vantar.
Húðakkeri er tegund af húðgöt-
un þar sem aðeins hluti lokksins
er sýnilegur. Lítilli plötu er komið
fyrir rétt undir yfirborði húð-
arinnar og í plötunni er áfastur
pinni sem kemur upp á yfirborðið.
Á pinnann er síðan hægt að skrúfa
á alls konar gerðir af hausum, til
dæmis demanta, kúlur, stjörnur
og margt fleira sem er þá sýnilegt.
Þetta er klárlega nýjasta æðið
í götunarheiminum í dag. Hefð-
bundna götunin er þó alltaf jafn
vinsæl og hefur vaxið síðustu ár ef
svo má segja. Þar er algengast að
fólk láti gata tungu, nafla, nef og
eyru. Það er sjúkraliðinn Berglind
sem sér um þann þátt á Íslenzku
húðflúrstofunni, enda hefur hún
hlotið viðurnefnin Gatfríður eða
Lafði Lokkaprúð!
http://facebook.com/icelandic.
piercing er facebooksíða götunar-
starfseminnar á stofunni.
Húðakkeri njóta
vaxandi hylli
Vinsælustu staðirnir fyrir húðakkeri eru
bringusvæði og framhandleggir.
Hluti af tattúráðstefnum snýst um
keppnir, þar sem dómnefnd metur
hvernig unnið er, bæði tæknilega
og fagurfræðilega. Jón Páll, Búri
og Fjölnir hafa rúllað upp hverri
keppninni af annarri síðustu ár. Í
Stokkhólmi í ágúst 2010 hlaut Búri
stærstu verðlaunin, fyrir besta
tattúið sem gert var á staðnum
og Jón Páll nældi í verðlaun fyrir
besta litatattúið. Það er á öðru lær-
inu á Fjölni en var tilbúið áður en
farið var út.
Verðlaunalærið
Lærið á Fjölni er litskrúðugt.
Sindri er nýi gæinn á Íslenzku húð-
flúrstofunni. Hann er búinn að
vera á annað ár að læra listina að
húðflúra, undir handarjaðri Jóns
Páls og er kominn vel á flug. Til
að byrja með var hann að horfa á,
iðka teikningu og gera allskyns
æfingarverkefni. Nú sér hann
orðið um allt minna flúr á stofunni
enda hefur hann sýnt það í verki að
listin er honum í blóð borin.
Nýi gæinn
Sindra er listin í blóð borin.
Athygli vekur að Jón Páll á Ís-
lenzku húðflúrstofunni notar orðið
húðflúr til jafns við tattú. „Við Ís-
lendingar erum ein af fáum þjóð-
um í heiminum sem eiga orð yfir
tattú sem lýsir því hvað það er.
Við hér á stofunni erum hrifin af
orðinu flúr,“ segir hann og bætir
við: „Enda erum við dálítið þjóð-
leg, erum með skjaldarmerkið í
lógóinu okkar og Jón Sigurðsson
uppi á vegg.“
Þrátt fyrir þjóðlegheitin er stof-
an á Facebook og slóðin er http://fa-
cebook.com/icelandic.tattoo.
Fáar þjóðir eiga
orð yfir tattú
Landvættirnar vaka yfir stofunni.