Fréttablaðið - 31.03.2011, Side 39
• 7
saga. Mér finnst að öllum þurfi að líka
vel við mig. Það er helsti gallinn minn.“
Óli Geir reddaði berbrjósta
stelpu
Nú voru Auddi og Sveppi, félagar
þínir, gagnrýndir í vikunni fyrir fram-
komu sína í gagnvart Einar Bárðarsyni
í þætti sínum. Óttast þú slík viðbrögð
í þinn garð?
„Nei. Ég held ekki. Auddi og Sveppi
eru með þannig þátt að þeir eru mjög
auðveld skotmörk. Fólk elskar að
bögga þá. Við komumst upp með
meira en þeir, enda eru þættirnir
okkar leiknir. Í bíó kemst maður svo
upp með enn þá meira og í leikhúsi
kemst maður upp með allt. Það geta
verið nauðganir og barnaníðingar –
mesti viðbjóður í heimi í leikhúsinu
í nafni listarinnar. Grín er list. Ekkert
annað. Við erum að gera leikið efni
og komumst upp með ýmislegt. Það
má til dæmis vera nekt í leiknu sjón-
varpsefni.“
Er nekt í nýju þáttaröðinni?
„Það er atriði þar sem Pappírs-Pési
er heitum ástarleik með píu og hún er
nakin. Það verður tryllt kynlífsatriði
með Pappírs-Pésa.“
Hvar fannstu stelpu til að leika í
atriðinu?
„Ég sá myndband á netinu frá Dirty
Night-kvöldi Óla Geirs [partíhaldari
og fyrrverandi herra Ísland] og hringdi
því í hann og spurði hvaða stelpur
væru að dansa í myndbandinu. Hann
gaf mér númerið hjá stelpu sem gaf
mér númerið hjá annarri stelpu sem
var til í þetta. Mig vantaði sem sagt
berbrjósta stelpu þannig að ég hringdi
í Óla Geir!“
En finnurðu fyrir þrýstingi á vera
fyrirmynd fyrir ungt fólk?
„Ég hef aldrei litið á mig sem fyrir-
mynd. En ég er góð fyrirmynd! Ég
drekk í hófi – eða nei, ég er mjög
drykkfelldur. En samt vil ég meina að
ég sé góð fyrirmynd. Við erum að láta
drauma okkar rætast með því að búa
til grín. Ég nota engin fíkn… ég reyki
reyndar, en nota engin fíkniefni. Ég
er farinn að passa hvar ég kveiki mér
í – farinn að hugsa mig tvisvar um. Ég
veit ekki hvort það er rétt eða rangt.
En ég tefli á netinu á hverjum einasta
degi. Ég er ógeðslega góður í skák.
Þannig að ég myndi segja að ég væri
góð fyrirmynd. Mér finnst það vera
hið besta mál ef krakkar líta upp til
mín. Ég er enginn vitleysingur – bara
góður í að leika vitleysing.“
Byrjar í jóga í sumar
Þegar annarri þáttaröð er lokið hyggst
Steindi taka sér gott sumarfrí, en svo
verður haldið áfram að skrifa. Stöð 2
hefur ekki samið við strákana um gerð
þriðju þáttaraðarinnar, en Steindi er
viss um að hún verði gerð.
„Við gerum pottþétt eitthvað. Við
viljum gera allavega eina þáttaröð í
viðbót áður en við gerum eitthvað
nýtt. Í sumar ætla ég svo að taka kúrsa
í leiklist. Grín er yfirleitt þannig að það
mega ekki vera tvö fífl – það verður
að vera eitt fífl og einn venjulegur. Ég
leik yfirleitt fíflið og við fáum gesti og
flotta leikara til að leika á móti. Ég hef
komist upp með að vera alltaf fíflið,
en það væri gaman að læra leiklist
til að geta leikið alvarlegri hlutverk.
Mig langar að eiga möguleika á að
leika grafalvarlegt hlutverk. Svo ætla
ég að læra smá söng og byrja í jóga
svo ég verði liðugri. Ég er svo stirður
og það háir mér í gríninu. Fólk heldur
að þetta sé engin hreyfing, en þetta
er heljarinnar átak fyrir líkamann.“
Hvað með framtíðina? Þú ert búinn
að vera lengi með kærustunni, orðinn
26 ára gamall og nokkuð ráðsettur.
Ertu byrjaður að huga að barneignum?
„Að dúndra einu í ofninn? Málið
er að Dóri [DNA] félagi minn var
að eignast barn um daginn. Hann
hringir daglega í mig og spyr hvort
ég ætli ekki að gera það líka. Ég hef
sagt áður að ég sé hræddur um að
mínir menn séu ekki syndir. Þetta er
tilfinning. Annars er ég ekki á neinni
hraðferð. Ég og kærastan mín búum
saman í Mosfellsbæ. Hún er nýbúin
að klára nám. Ætli við séum ekki að
safna. Ég veit það ekki. Þetta mun
sennilega vera slysabarn, þegar það
kemur. Ég er slysabarn. En mig langar
að eignast barn, bara ekki núna.“
Zoom H4n
kr. 54.100-
Zoom Q3 HD
kr. 54.200-
Zoom H1
kr. 21.100-
Zoom H2
kr. 35.500-
Handhæg up
ptökutæki
frá Zoom á f
rábæru verð
i!
Þér er í
lófa lagið
að taka upp
Hjá okkur fæ
rðu
faglega þjó
nustu,
byggða á þ
ekkingu
og áratuga
reynslu.