Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 31.03.2011, Blaðsíða 64
31. mars 2011 FIMMTUDAGUR40 sport@frettabladid.is STJARNAN getur sópað Íslandsmeisturum Snæfells í sumarfrí í kvöld. Liðin mætast þá í þriðja sinn í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Garðbæingar hafa unnið tvo fyrstu leiki rimmunnar og geta með sigri í kvöld komist í úrslitaeinvígið í fyrsta skipti í sögu félagsins. Iceland Express-deild karla: Keflavík-KR 87-105 Keflavík: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 21/13 fráköst, Thomas Sanders 18, Andrija Ciric 16, Magnús Þór Gunnarsson 8/7 stoðsend- ingar, Hörður Axel Vilhjálmsson 7/4 fráköst/8 stoðsendingar/6 stolnir, Gunnar Einarsson 6/6 fráköst, Elentínus Margeirsson 5, Jón Nordal Haf- steinsson 4, Þröstur Leó Jóhannsson 2. KR: Marcus Walker 31/8 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 17/4 fráköst, Pavel Ermolinskij 17/15 fráköst/8 stoðsendingar/5 stolnir, Hreggviður Magnússon 10, Fannar Ólafsson 9/6 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 8, Finnur Atli Magnússon 6/5 fráköst, Ágúst Angantýsson 4, Jón Orri Kristjánsson 2/7 fráköst, Ólafur Már Ægisson 1. N1-deild kvenna: Fram-Stjarnan 38-30 (18-15) Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 10, Hildur Þorgeirs- dóttir 8, Stella Sigurðardóttir 5, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Pavla Nevarilova 4, Marthe Sördal 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, María Karlsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 18, Elísabeth Malmberg Arnarsdóttir 2. Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 10, Elísabet Gunnarsdóttir 7, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3, Kristín Jóhanna Clausen 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærnested 2, Hildur Harðardóttir 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Rut Steinsen 1, Þórhildur Gunnarsdóttir 1. Varin skot: Helga Dóra Magnúsdóttir 7, Sólveig Björk Ásmundardóttir 7. Valur-Fylkir 31-19 (16-9) Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 6, Íris Ásta Péturs- dóttir 6, Kristín Guðmundsdóttir 5, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 4, Karólína B. Gunnarsdóttir 4, Camilla Transel 2, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 2, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Anett Köbli 1. Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 8, Sunna Jónsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Anna María Guðmunds- dóttir 1, Nataly Sæunn Valencia 1, Tinna Soffía Traustadóttir 1. Sænski körfuboltinn: Solna-Norrköping 88-90 Logi Gunnarsson skoraði sex stig fyrir Solna. Hann reyndi að tryggja liðinu sigur með þriggja stiga skoti undir lokin en það geigaði. Solna er úr leik og farið í sumarfrí. Þýski handboltinn: Friesenheim-Lubbecke 26-34 Þórir Ólafsson skoraði 12 mörk fyrir Lubbecke og þar af 6 úr vítum. Danski handboltinn: AGK-Viborg 38-23 Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir AGK en Arnór Atlason lék ekki með liðinu. Nordsjælland-AaB 35-28 Ingimundur Ingimundarson náði ekki að skora fyrir AaB. Sænski handboltinn: GUIF-Drott 34-29 Haukur Andrésson komst ekki á blað fyrir GUIF sem bróðir hans, Kristján, stýrir. Gunnar Steinn Jónsson skoraði 4 mörk fyrir Drott, þar af eitt úr víti. ÚRSLIT Vegleg og aukin íþróttaumfjöllun í Fréttablaðinu mánudaga Íþróttahelgin gerð upp í Fréttablaðinu Allt sem þú þarft... KÖRFUBOLTI KR-ingar eru einum sigurleik frá úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express-deild karla eftir sannfær- andi 18 stiga sigur á Keflavík, 105- 87, í Toyota-höllinni í gærkvöldi. KR varð þar með fyrsta liðið til að vinna Keflvíkinga á heimavelli þeirra á árinu 2011 og það þarf mikið að breytast ætli Keflvík- ingar sér að vinna einhvern leik í þessari seríu. KR-ingar gáfu tóninn með frá- bærri byrjun og virtust alltaf eiga svör þegar Keflavíkurliðið reyndi að koma sér inn í leikinn aftur. Bakvarðarsveitin Marcus Walker, Pavel Ermolinskij og Brynjar Þór Björnsson áttu allir stjörnuleik og KR-ingar virtust bara vera núm- eri of stórir fyrir Keflavíkurliðið. Bakvarðasveitin var ekki bara í stuði í sókninni því í vörninni lok- uðu þeir flestum leiðum. Það sést vel á því að í seinni hálfleik skor- uðu þeir Thomas Sanders, Hörð- ur Axel Vilhjálmsson og Magnús Þór Gunnarsson aðeins fjögur stig saman og náðu enn fremur bara 9 skotum á körfuna. „Þetta var frábær sigur og við höfðum allir mjög góða tilfinningu fyrir þessum leik. Það var mikil ró yfir liðinu og við vissum alveg hvað við áttum að gera,“ sagði Pavel Ermolinskij sem var með 17 stig, 15 fráköst, 8 stoðsendingar og 5 stolna bolta í gær. KR-ingar voru óhræddir að keyra upp hraðann og Keflavíkurliðinu gekk illa að ráða við það. „Við breytum ekki okkar leik fyrir neinn og það er okkar leik- ur að keyra upp hraðann. Auðvi- tað vilja Keflvíkingar líka spila á þessum hraða en mér finnst við gera það betur en þeir og önnur lið,“ sagði Pavel en þessi leikstíll nýtist honum, Marcus og Brynjari afar vel. „Það erfitt að slökkva á öllum þessum vopnum. Þú getur slökkt á einum eða tveimur en það eru svo mörg vopn í þessu liði að það getur enginn haldið í við okkur alla. Svo pössum við þrír allir mjög vel saman og vegum hver annan upp,“ sagði Pavel. Pavel býst samt við alvöruleik á föstudagskvöldið í DHL-höllinni. „Það verður stríð í næsta leik. Það er ekki gott dæmi að mæta Kefl- víkingum með bakið upp við vegg og þú vilt ekki lenda í þeim. Þetta verður algjört stríð en við höldum bara áfram að gera okkar hluti og erum ekki að fara að breyta neinu. Þeir geta verið með einhverjar áherslubreytingar en það skiptir okkur engu máli. Við munum halda tryggð við okkar leik og treysta að það gangi upp,“ sagði Pavel. Útlitið er vissulega svart hjá Keflavíkurliðinu sem gafst upp í lokin í gær og þarf að finna ein- hvern aukakraft til að fá annan heimaleik í vetur. „Við erum vissulega 2-0 undir en þetta snýst um að vera fyrstur að vinna þrjá leiki. Þetta er ekk- ert flókið við þurfum bara að byrja á því að vinna einn útileik,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson. „Við þekkjum þessa stöðu og það verður gaman að sjá hvað ger- ist. Þetta er mikil áskorun fyrir okkur að sjá hvort við getum þetta eða ekki,“ sagði Magnús sem var í aðalhlutverki árið 2008 þegar Keflavík varð eina liðið í sögunni til að koma til baka eftir að hafa lent 2-0 undir. „Við spiluðum samt betur í þess- um leik heldur en í hinum leikn- um þannig að við erum á góðri leið. Verðum við ekki að segja allt þegar þrennt er. Ef við vinnum næsta leik þá erum við komnir í góð mál og komnir heim aftur. Við verðum bara að fara átta okkur á því að leikurinn stendur í 40 mínútur,“ sagði Magnús Þór. ooj@frettabladid.is Erfitt að slökkva á öllum þessum vopnum okkar Keflvíkingar réðu ekkert við bakvarðasveit KR-inga í Toyota-höllinni í gær- kvöldi og eru bara einum tapleik frá sumarfríi. KR er hins vegar í meistaraham. Marcus Walker, Pavel Ermolinskij og Brynjar Björnsson áttu allir stjörnuleik. SJÓÐHEITUR Marcus Walker hefur farið á kostum með KR í úrslitakeppninni og átti enn enn stórleikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Undanúrslit N1-deildar kvenna hófust í gær. Valur vann fyrirhafnarlítinn ellefu marka sigur á Fylki á sama tíma og Fram lagði Stjörnuna með átta marka mun. Framstúlkur héldu 3-4 marka forskoti allan fyrri hálfleikinn og komust mest í 5 marka for- ystu 13-8. Garðbæingar bitu hins vegar aðeins frá sér í lok fyrri hálfleiks og minnkuðu muninn í þrjú mörk. Fram var eina liðið á vellinum í síðari hálfleik og skoruðu Fram- stúlkur sjö mörk gegn tveimur á fyrstu tíu mínútum seinni hálf- leiks og Garðbæingar áttu fá svör við frábærum leik Framara. Mestur fór munurinn í 10 mörk 34-24 þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum. ,,Ég bjóst ekki alveg við þessu, enda átti ég von á hörkuleik og þetta var þannig í fyrri hálf- leik. Við spiluðum frábærlega í seinni hálfleik og þar skildu leið- ir,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, kampakátur í leikslok enda fyrri leikir þessara liða í vetur verið mun jafnari. ,,Við fórum vel yfir það sem mátti laga í hálfleiknum og stelp- urnar löguðu það enda erum við að spila á móti mjög sterku liði. Þær sýndu það í dag með því að skora 30 mörk á útivelli og leikur- inn á laugardaginn verður þraut- inni þyngri.“ Gústaf Adolf Björnsson, þjálf- ari Stjörnunnar, var allt annað en sáttur við sitt lið eftir leik- inn í kvöld enda munurinn á milli liðanna heldur mikill ,,Þetta er alltaf hættan gegn sterkum liðum og ef þú ert ekki tilbúinn hvað varðar vinnslu og grimmd þá verðurðu bara undir í dag á móti svona öflugu Fram- liði,“ sagði Gústaf. Næsti leikur Fram og Stjörn- unnar fer fram næstkomandi laugardag í Garðabænum og þar verða Stjörnustúlkur að sigra ætli þær sér lengra. - hv N1-deild kvenna: Auðveldir sigrar hjá Val og Fram GRIMMAR Stjörnustúlkan Jóna Margrét Ragnarsdóttir er hér stöðvuð í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.